Iðnráðgjöf á landsbyggðinni

21. fundur
Fimmtudaginn 07. nóvember 1991, kl. 10:48:00 (715)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
     Virðulegi forseti. Ég held að þetta sé mál sem full ástæða er til að hafa áhyggjur af. Ég held við verðum að skoða það í ljósi yfirlýsinga núv. ríkisstjórnar gagnvart Byggðastofnun og byggðastefnu. Hæstv. forsrh. hefur haft um alla þá starfsemi eina setningu, þ.e. ,,sukk og svínarí``. Það er ekkert rökstutt frekar.
    Hæstv. iðnrh. sagði á iðnþingi fyrir nokkrum dögum að það yrði að hætta að henda peningum í vandamál, eins og hann orðaði það. Til þess að leggja áherslu á orð sín mælti hann þetta bæði á íslenskri og enskri tungu. Þegar það svo blasir við að þessi verkefni á að færa undir Byggðastofnun, sem ekki er hægt að skilja öðruvísi á ummælum hæstv. forsrh. en að gera eigi að lítilsmegnugri upplýsinga- og ráðgjafarskrifstofu, er fyllsta ástæða til að hafa áhyggjur.