Eignarréttur og afnotaréttur fasteigna

23. fundur
Mánudaginn 11. nóvember 1991, kl. 14:20:00 (836)

     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
     Frú forseti. Ég ítreka að sú litla breyting sem hér er verið að gera felur ekki í sér neinar efnisbreytingar heldur það eitt að draga úr tvöfaldri skriffinnsku sem ég tel að sé óþörf og hefur hvorki áhrif á efnislegar niðurstöður né möguleika til eftirlits. Að því er varðar þessi lög og samninga okkar við Evrópubandalagið um aðild að Evrópska efnahagssvæðinu þá fela þeir samningar einmitt í sér viðurkenningu á því að því er varðar fjárfestingu útlendinga í sjávarútvegi að þau lög sem við höfum sett um þau efni gilda áfram. Þær girðingar sem reistar hafa verið í íslenskri löggjöf um fjárfestingu útlendinga í sjávarútvegi standast þá nýju samninga sem gerðir hafa verið. Og um þau efni eru lögin býsna skýr enda nýlega sett af Alþingi og í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa. Um framkvæmd þeirra lagaákvæða vísa ég hins vegar til þeirra stjórnvalda sem með þá framkvæmd fara lögum samkvæmt.