Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins

23. fundur
Mánudaginn 11. nóvember 1991, kl. 14:47:01 (839)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
     Virðulegi forseti. Ég mun að ráði hv. 1. flm. þessa frv. ekki fara út í mikla almenna umræðu um það, enda mun mér gefast kostur á að spyrja þeirra spurninga sem mér liggja á hjarta í sjútvn.
    Mig langar hins vegar til að fram komi í þessari umræðu að nú þegar blasa við ýmsar spurningar varðandi Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins. Hugsunin að baki þessa sjóðs er að sjálfsögðu mjög góð --- að eiga eitthvað í sjóði til mögru áranna --- en því er ekki að neita að þær spurningar hafa komið upp hversu vel þetta fé nýtist þeim sem leggja fyrir. Einn anga þeirrar umræðu má sjá í því frv. sem hér liggur fyrir. Það skiptir máli hvar fjármunir eru ávaxtaðir.

    Því er heldur ekki að neita að ýmsir telja að með því að greiða í Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins hafi þeir e.t.v. glatað fé. Ekki síst á þetta við ef fyrirtæki lendir í greiðsluerfiðleikum eða stendur frammi fyrir gjaldþroti. Því væri forvitnilegt ef sjútvn. mundi líta örlítið ofan í þau mál. Ég veit ekki hvort hún mun telja þau á sínu verksviði, en mig langaði til að það kæmi fram í þessari umræðu að ég mun spyrja þessarar spurningar.
    Mér þætti jafnframt, eins og hv. 1. flm. þessa máls, vænt um að heyra skoðun hæstv. sjútvrh., þar sem hann er staddur hér, á því máli sem hér liggur fyrir og ekki væri lakara ef hægt væri að fá upplýsingar um þær spurningar sem ég boðaði hér að ég mundi leggja fram í sjútvn. til umræðu. En þar sem ég mun virða það að fara ekki út í almenna umræðu um Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins ætla ég ekki að hafa fleiri orð um þetta og þakka hv. flm. fyrir að hreyfa þessu máli.