Greiðsla kostnaðar við pólitíska fundi

31. fundur
Fimmtudaginn 21. nóvember 1991, kl. 12:26:00 (1164)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
     Virðulegi forseti. Það er af hinu góða og hinu góða einu að þingmenn og ráðherrar hafi góð tengsl við fólkið í landinu og þetta má gera með tvennum hætti. Annars vegar með því að boða stefnu sína og síns flokks og það á að sjálfsögðu að gera á vegum þess flokks og þjóðin á ekki að þurfa að borga kostnaðinn af því. Hins vegar er að sjálfsögðu oft á tíðum ástæða til að ráðuneyti kynni einstök mál og þá ber þeim að gera það og þjóðin á kröfu á að það sé gert á óhlutdrægan hátt.