Einar K. Guðfinnsson
:
Virðulegi forseti. Í tilefni þessara umræðna er nauðsynlegt að rifja upp að nýlega gerðist sá fáheyrði atburður að Landsvirkjun ákvað að breyta þannig verðlagningu orkusölunnar að í stað þess að nota meðaltal fjögurra hæstu afltoppa við ákvörðun á afltoppum til tiltekinna kaupenda á orkunni er núna notaður hæsti afltoppur. Þetta neyðir væntanlega orkusölufyrirtæki, eins og Rarik og Orkubú Vestfjarða, til að breyta sínum töxtum með svipuðum hætti. Ef þetta gengur eftir mun þetta þýða verulegan kostnaðarauka fyrir stóra kaupendur eins og fiskimjölsiðnaðinn í landinu sem núna býr við afar erfiðar aðstæður.
Ég vil vekja athygli á í þessu sambandi að samkvæmt útreikningum Félags fiskimjölsframleiðenda þýðir þetta að kostnaður við afltoppinn hækkar um 10--11% og getur þýtt fyrir einstakar verksmiðjur kostnaðarauka oft upp á 600--700 þús. á ári. Á sama tíma liggur fyrir að unnt er að kaupa fullbúnar dísilrafstöðvar hingað til lands, sem nægja til þess að keyra niður þennan topp, sem kosta ekki nema um milljón. Það er því ekki hægt að sjá annað en að þrátt fyrir að um sé að ræða umframraforkuframleiðslu í landinu sé Landsvirkjun að neyða þennan iðnað til óþarfa fjárfestinga og óþarfa gjaldeyrisnotkunar.