Ummæli forsætisráðherra í fjölmiðlum um umræður á Alþingi um þyrlukaup

34. fundur
Þriðjudaginn 26. nóvember 1991, kl. 21:41:00 (1265)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti var búinn að upplýsa hv. þm. um að hæstv. forsrh. hefði tjáð forseta að hann gæti ekki verið á þessum fundi í kvöld vegna anna á öðrum vettvangi og það er ástæða þess að hann hefur ekki komið enn í húsið. Forseti vill benda hv. þm. á að hann er næstur á mælendaskrá í því máli sem er á dagskrá.