Seðlabanki Íslands

34. fundur
Þriðjudaginn 26. nóvember 1991, kl. 22:11:00 (1271)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti vill taka það fram að hann mun að sjálfsögðu gera viðvart þeim hæstv. ráðherrum sem óskað er eftir að séu við þessa umræðu, en það mun vera hæstv. sjútvrh. og svo að sjálfsögðu sá ráðherra sem málið varðar, hæstv. viðskrh. Þeir eru báðir í húsinu. Hæstv. sjútvrh. er hér í hliðarsal og fylgist með umræðunni og hæstv. viðskrh. verður látinn vita að umræðan sé að hefjast.