Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Vegna þeirra athugasemda sem komu fram hjá hv. 5. þm. Reykv. um þingsköp vill forseti taka það fram að það var niðurstaða af samtölum í morgun milli forseta og hv. 5. þm. Reykv. og við forsrh. að umræðan færi ekki fram. Þetta er það svar sem forseti getur gefið. Það er ekki venja að forseti leyfi utandagskrárumræðu öðruvísi en að höfðu samráði við viðkomandi hæstv. ráðherra.