Ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum

35. fundur
Miðvikudaginn 27. nóvember 1991, kl. 16:03:00 (1321)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
     Virðulegi forseti. Það er ekki að ástæðulausu að við höfum áhyggjur af aðgerðum eða réttara sagt aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar. Því miður hefur sá andi verið ríkjandi að leyfa ætti atvinnulífinu úti á landi, og einkum sjávarútvegi, að sigla sinn sjó og gera helst ekki neitt á meðan. Með stjórnvaldsaðgerðum er jafnframt verið að gera erfitt fyrir t.d. með stefnu í vaxtamálum og með því að vera með rangar áherslur í atvinnumálum eins og við kvennalistakonur höfum mjög oft bent á. Þetta er spurning um atvinnu og afkomu heilla byggðarlaga og það er ekki hægt að sitja hjá og þaðan af síður að þykjast sitja hjá, bíða eftir að atvinnulífið taki kipp á meðan þrengingar eru í sambandi við kvóta, minnkandi fiskafla og störf í fiskvinnslu dragast saman, um heil 20% á seinustu fjórum árum sýnist mér á síðustu tölum þar sem er greint frá ársverkum í frystingu, söltun og herslu. Þetta eru störf sem eru mjög mikilvæg á Íslandi. Það er von er að flestir taki viðbragð þegar forsrh. lætur í það skína að ekkert liggi á. Við erum einfaldlega hrædd um að þetta verði að kæk og vana og það liggi ekkert á vikum eða jafnvel mánuðum saman. En það liggur á. Hér er um atvinnu að ræða í byggðum landsins og hér er um afkomu fólks í byggðum landsins að ræða.