Fyrirspyrjandi (Össur Skarphéðinsson)
:
Frú forseti. Ég ber hér fram fsp. til sjútvrh. um veiðiheimildir Færeyinga og Belga. Báðar þessar þjóðir hafa notið veiðiheimilda í íslenskri fiskveiðilögsögu um talsvert langt skeið. Heimildir Belga voru upphaflega veittar sökum liðveislu þeirra í erfiðu landhelgisstríði Íslendinga og þá fengu 14 nafngreindir togarar heimild til veiða í íslenskri landhelgi. Þetta var raunar svokallaður sólarlagssamningur sem gerir ráð fyrir því að þegar umræddir togarar falla sökum aldurs eða úreldingar úr veiðiflota, þá megi ekki aðrir togarar ganga inn í kvótann. Í dag eru einungis þrír togarar eftir sem hafa heimild til þess að veiða samtals um það bil 4.400 tonn.
Samningurinn við Færeyinga er hins vegar með öðrum hætti. Frá 1979 hafa íslensk stjórnvöld sjálf getað ákveðið árlegt hámark botnfiskafla, að vísu að höfðu samráði við færeysku landsstjórnina. Í upphafi máttu Færeyingar veiða alls 17.000 tonn botnfisks og af því máttu alls 8.000 tonn vera þorskur. Hámarki aflaheimilda hefur hins vegar mörgum sinnum verið breytt í takt við ástand fiskstofna við Ísland og þannig hefur heildarafli minnkað verulega en hlutfall þorsks þó enn meira. Nú er svo komið að fyrir árið 1991 var heildaraflinn sem Færeyingum var leyfður einungis 9.000 tonn eða nærri því helmingi minni en í upphafi og leyfilegur afli á þorski var færður niður í 1.500 tonn en hafði þá verið 2.000 tonn allt frá því 1981.
Eins og ég greindi frá, frú forseti, hefur kvóti Færeyinga oftlega breyst í takt við ástand fiskstofna við Ísland og nú er svo komið að fiskstofnum hefur hrakað verulega og raunar hafa nú orðið skjót umskipti til hins verra. Því er eðlilegt að stjórnvöld séu innt eftir því hvort fyrirhugað sé að breyta þeim veiðiheimildum sem Belgar og Færeyingar hafa en þær nema nú sameiginlega 14.000 tonnum. Það er ekki síst nauðsynlegt fyrir sjávarútveginn í landinu að fá fram sem fyrst hvort fyrirhugað er að minnka þær eða jafnvel afnema með öllu, og bæta þannig innlendum sjávarútvegsfyrirtækjum upp það verðmætatap sem kvótaskerðing mun fyrirsjáanlega hafa á næsta ári. En síðast en ekki síst er það nauðsynlegt fyrir frændur vora og vini Færeyinga að fá svar við þessu vegna þess að nú árar líka illa hjá þeim eins og fram hefur komið í fregnum síðustu daga. Því er nauðsynlegt að þeir fái líka í tæka tíð ráðrúm til þess að búa sig undir minnkandi veiðiheimildir ef um það er að ræða. Og því spyr ég formlega þessarar spurningar: ,,Eru fyrirhugaðar breytingar á heimildum Færeyinga og Belga til veiða á botnfiski við Ísland?``