Viðvera ráðherra og tilhögun þinghalds

41. fundur
Miðvikudaginn 04. desember 1991, kl. 14:06:00 (1550)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Það er algjör misskilningur hjá hv. 8. þm. Reykn. að mál geti ekki komist hér áfram vegna fjarvista hæstv. ráðherra. Forseti gat þess að þetta væri vegna fjarvista nokkurra þingmanna og telur ekki ástæðu til að upplýsa af hvaða ástæðum það er, en telur eðlilegt að verða við óskum um að það sé látið bíða um sinn að taka mál á dagskrá vegna þess að viðkomandi þingmaður getur ekki komið hér á fundinn fyrr en eftir hálftíma frá þessari stundu.