Fyrirspyrjandi (Lára Margrét Ragnarsdóttir)
:
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir svar hæstv. menntmrh. Ég vil ítreka fyrst og fremst þá skoðun mína að Stýrimannaskólinn þarfnast viðgerða og endurnýjunar hvort sem fjármögnunin verður bein í fjárlögum eða fer í gegnum húsafriðunarnefnd. Ég hvet til þess að skólanum verði jafnframt fundið hlutverk hið fyrsta.