Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson)
:
Frú forseti. Síst af öllu geri ég athugasemdir við það sjónarmið hv. fyrirspyrjanda hversu brýn nauðsyn er á að Landhelgisgæslan eignist viðbótar öfluga björgunarþyrlu en vil aðeins minna á að gerð nákvæmra sjókorta sem grundvölluð eru á nýjum mælingum er líka mikið öryggisatriði fyrir sæfarendur.