Lánshlutföll Fiskveiðasjóðs til skipasmíða

42. fundur
Fimmtudaginn 05. desember 1991, kl. 11:17:00 (1608)

     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
     Frú forseti. Vegna fsp. hv. 4. þm. Norðurl. v. um það hvenær Fiskveiðasjóður tók ákvarðanir um að veita þessi lánsloforð, þá hef ég ekki gögn um það undir höndum hér í þingsalnum en ég hygg að að einhverjum hluta megi rekja lánsloforð 1--2 ár aftur í tímann en að stærri hluta til nýrra ákvarðana. Ég tek það fram að ég hef ekki undir höndum gögn um þetta en sjálfsagt að leita þeirra upplýsinga og veita þær.