Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

44. fundur
Föstudaginn 06. desember 1991, kl. 23:59:00 (1694)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
     Í tilefni orðræðu hv. 5. þm. Suðurl. mun ég gera stutt hlé á þessum fundi. Það verður ekki lengra en 10 mínútur. --- [Fundarhlé.]
    Að gefnu tilefni og vegna spurningar hv. 5. þm. Suðurl. hefur orðið samkomulag á milli formanna þingflokka og forseta þingsins um að hæstv. félmrh. tali síðust hér í kvöld. Síðan verði gert hlé á umræðunni og henni haldið áfram kl. 10.30 í fyrramálið og að því stefnt að umræðunni verði lokið á morgun.