Framhald umræðu um frv. um rétt til veiða í efnahagslögsögu Íslands

47. fundur
Þriðjudaginn 10. desember 1991, kl. 17:09:00 (1806)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :

     Forseti er búinn nú þegar að slíta þessari umræðu en vill láta þess getið, vegna þessara athugasemda, að hann skildi það svo að hv. 6. þm. Norðurl. e. væri að lýsa óánægju sinni með að forseti hefði tekið þetta mál á dagskrá í dag þar sem hv. 1. þm. Austurl. var með fjarvistarleyfi. Forseti svaraði því að hann vissi ekki að þessi ósk hefði komið fram hjá hv. 6. þm. Norðurl. e. Auk þess vill forseti benda á að hér er aðeins um 1. umr. málsins að ræða og málið fer til hv. sjútvn. væntanlega. Þar á hv. 1. þm. Austurl. sæti og að auki á málið eftir að koma aftur úr nefnd og til umræðu. Forseti telur því að hv. 1. þm. Austurl. og aðrir sem ekki hafa haft tækifæri til að taka þátt í þessari 1. umr. hafi tækifæri til þess síðar.