Nauðungarsala

50. fundur
Fimmtudaginn 12. desember 1991, kl. 12:05:00 (1831)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti vill vekja athygli á því að þetta frv. sem áður hefði sætt meðferð í deildum er hið fyrsta af því tagi sem Alþingi samþykkir sem lög eftir að það hóf starf í einni málstofu. Áður höfðum við samþykkt fjáraukalög fyrir 1991 en slík frumvörp voru áður rædd við þrjár umræður í sameinuðu þingi.