Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

50. fundur
Fimmtudaginn 12. desember 1991, kl. 12:26:00 (1834)

     Matthías Bjarnason :
     Þar sem fjmrh. hefur lýst því yfir að hann muni ekki nota sér slíka heimild þó samþykkt yrði sé ég enga ástæðu til þess að vekja væntingar hjá fólki með samþykkt þessarar tillögu. Þar við bætist að fyrir liggur hátíðlegt loforð fjmrh. um að hann muni aldrei taka aftur upp þennan ósvífna skatt. Því segi ég nei.