Fjárlög 1992

50. fundur
Fimmtudaginn 12. desember 1991, kl. 23:54:00 (1877)

     Ólafur Þ. Þórðarson (andsvar) :
     Herra forseti. Það er viðskrh. Íslands með 20 milljarða hallann sem hefur verið hvað kokhraustastur í ræðustól og telur að nú sé tími til kominn að hann gerist lífvörður hæstv. félmrh. En það vil ég segja hæstv. viðskrh. að svo er komið hjá íslenskri þjóð að það er mjög ólík staða hæstv. félmrh. og hæstv. viðskrh. Þrátt fyrir árásir flokksformanns Alþfl., þrátt fyrir árásir Seðlabankans og þrátt fyrir árásir fjmrh. er félmrh. ekki í neinni hættu en guð hjálpi hæstv. viðskrh. ef hann álpast í framboð á Reykjanesi í næstu kosningum.