Fjárlög 1992

51. fundur
Föstudaginn 13. desember 1991, kl. 16:02:00 (1996)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
     Herra forseti. Sá liður sem hér er um að ræða er upp á 6,5 millj. Sú skýring sem er gefin á tilvist hans er þessi, með leyfi forseta: ,,Þá er fjárveiting vegna kvikmynda, myndbanda og landkynningar sameinuð fjárveitingu á viðfangsefninu upplýsinga- og kynningarstarfsemi.``
    Í trausti þess að sú landkynning sem hér er verið að leggja til verði landinu til sóma og í trausti þess að hæstv. utanrrh. geri greinarmun á áróðri og kynningarstarfsemi greiði ég ekki atkvæði.