Skattskylda innlánsstofnana

52. fundur
Laugardaginn 14. desember 1991, kl. 14:52:00 (2073)

     Ólafur Þ. Þórðarson (um þingsköp) :
     Herra forseti. Af því að á þessum vetri hafa verið lagðar á það hömlur upp úr hvaða ritum mætti lesa hér í ræðustól. Andsvar hæstv. fjmrh. gæti leitt til þess að óskað yrði eftir því að fá að lesa upp úr vanskilaskrám skatta þó að það séu ekki milljarðar sem menn skulda heldur milljónir. Þá yrði eðlilegt að spyrja að því hvort slíkt yrði leyft, að maður læsi hér upp úr vanskilaskrám skatta því að ég kynni því illa að vera rekinn úr pontu ef ég væri kominn með ritið í hendurnar hingað upp.