Ólafur Þ. Þórðarson
(andsvar)
:
Herra forseti. Ég vil ekki hefja stórar deilur um það hvort áróðursstríðið hefði getað skilað öðrum manni til valda ef það hefði tapast, en ég fagna því að hér er það staðfest af hv. 3. þm. Reykv. að það varð vestrænni menningu til blessunar að Gorbatsjov komst til valda í Sovétríkjunum.