Tekjuskattur og eignarskattur

53. fundur
Mánudaginn 16. desember 1991, kl. 22:02:00 (2137)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
     Ég þakka hv. þingmönnum ábendingar um hvernig hraða megi þingstörfum. Ég tel eðlilegt að þessar ábendingar verði teknar til umræðu á samráðsfundi forseta og formanna þingflokka, hvort þinginu verði frestað eða á því gert hlé á meðan ríkisstjórn kannar hvernig best sé að koma sínum málum fram hér í þinginu. Ég vona að hv. þm. taki undir með mér að þar sé skynsamlegur vettvangur til að ná samkomulagi um slíkt hlé ef fallist verður á það.