Tekjuskattur og eignarskattur

53. fundur
Mánudaginn 16. desember 1991, kl. 22:07:00 (2140)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
     Vegna beiðni hv. 4. þm. Norðurl. e. um að hæstv. forsrh. verði hér viðstaddur mun ég spyrjast fyrir um það hvort á því séu tök núna í kvöld. Ég ítreka aftur það sem ég sagði áður, að ég tel eðlilegt að þessi ósk, þessi ábending, sem ég þakkaði fyrir, af því að ég veit að velvilji liggur að baki, um að hraða megi þingstörfum, verði tekin fyrir á samráðsfundi forseta og formanna þingflokka. Ég tel að það þjóni fremur þeim tilgangi sem við höfum öll í huga um að mega ná sem bestum árangri og flýta störfum hér eins og kostur er án þess að það bitni á þeim störfum sem við þurfum að sinna.