Össur Skarphéðinsson
:
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. sjútvn. um Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins. Nefndin fjallaði ítarlega um frv. og kvaddi á fund sinn fulltrúa frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Vélstjórafélagi Íslands, Sjómannasambandi Íslands auk fulltrúa frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna.
Frá því er skemmst að segja að nefndin mælir einróma með því að frv. verði samþykkt óbreytt.