Jöfnunargjald

54. fundur
Þriðjudaginn 17. desember 1991, kl. 18:50:00 (2217)

     Kristín Einarsdóttir (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Ég spurði áðan einnig þeirrar spurningar ef í lagi væri að leggja þetta jöfnunargjald á til 1. júlí og það væri svo mikill skortur á fé í ríkissjóð, hvers vegna væri þá ekki í lagi að leggja þetta gjald á í heilt ár. Ég beindi þessari spurningu að vísu beinlínis til hæstv. utanrrh., en þar sem hann er ekki hér þá langar mig til þess að fá að beina henni til hæstv. fjmrh.