Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Varðandi það að ekki er leitað afbrigða fyrir þessum málum sem hv. 4. þm. Norðurl. e. minntist á og eru hér neðarlega á dagskrá fundarins þá er það einfaldlega vegna þess að það ber ekki að leita afbrigða fyrir málum þegar þingskjöl eru komin fram a.m.k. einni nóttu fyrir fund. Það var því ekki nauðsynlegt að leita afbrigða af þeim ástæðum. Það er ekki farið á svig við þingsköpin í þessum efnum.
Hins vegar skilur forseti vel að það er mikið annríki bæði hjá nefndum og hér á þingfundum og forseti vill gjarnan leita leiða til þess að menn fái tækifæri til að ljúka því að semja nál. áður en þessi mál koma á dagskrá hér síðar. Það er 20. og 21. dagskrármálið. Ef forseti skildi rétt þá voru það þau mál sem hann nefndi sérstaklega. En það er hægt að taka önnur mál sem ekki þarf að leita afbrigða við og byrja á þeim og reyna svo að gefa mönnum svigrúm til þess að ljúka við að semja nál. sem nefnd voru.