Framhald 3. umr. fjárlaga

56. fundur
Fimmtudaginn 19. desember 1991, kl. 14:07:00 (2311)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti tekur það ekki nærri sér þó að þingmenn gagnrýni störf og stjórn forseta og reynir að hlusta með athygli á slíka gagnrýni, taka hana til greina og læra af henni ef ástæða er til. En það að gagnrýna störf þeirra embættismanna og starfsmanna sem leggja sig fram um að þjóna hverjum einasta þingmanni dag og nótt árið út og árið inn getur forseti ekki sætt sig við og vísar slíkri gagnrýni á bug. Hún er ósanngjörn.