Gunnlaugur Stefánsson
(um atkvæðagreiðslu)
:
Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort það er vegna misskilnings eða reynsluleysis hæstv. forsrh. að hann hefur ritað þetta bréf sem hv. þm. Egill Jónsson las hér áðan. Hann hefði ekki þurft annað en spyrja varaformann fjárln., hv. þm. Pálma Jónsson, að því að þessi niðurstaða lá fyrir í fjárln. hálfum mánuði áður en forsrh. ritaði sitt bréf.