Fjárlög 1992

59. fundur
Sunnudaginn 22. desember 1991, kl. 03:44:00 (2494)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
     Herra forseti. Það er ekki nauðsyn að samgrh. fari úr salnum en hér er verið að greiða atkvæði um það hvort við skulum skera niður í vegamálum á Íslandi. Fáir liðir eru viðkvæmari gagnvart hinum dreifðu byggðum þessa lands og viðhorf ríkisstjórna til dreifbýlisins speglast í viðhorfi til þessa liðar.
    Hæstv. heilbrrh. var mjög glaðbeittur þegar hann gerði grein fyrir því hvaða tillögur hann sem formaður fjárveitinganefndar hafði í fyrra gert um ákveðinn lið fjárlaga. Ég vænti þess að hæstv. heilbrrh. verði jafnglaðbeittur þegar hann gerir grein fyrir þeirri stefnumörkun sem hann sem formaður fjárveitinganefndar gerði í þessum málum. Ég segi nei.