Ólafur Þ. Þórðarson
:
Herra forseti. Ég vil trúa því að við Reyðarfjörð eigi eftir að rísa stóriðja í framtíðinni. Mér er ljóst að verð á jörðum undir stóriðju er nokkuð hátt ef miðað er við þann stuðning sem hæstv. iðnrh. veitti við kaup á jörðinni Flekkuvík. Mér sýnist því ekki vitlegt að selja þessar jarðir, sé ekki að verði þær seldar á háu verði verði þær látnar fara frá ríkinu í dag en sé fyrir mér að þær muni kosta háar upphæðir verði þær keyptar síðar undir stóriðjuframkvæmdir. Þess vegna er ég alfarið andvígur því að í þessa sölu verði ráðist og segi nei.