Jólakveðjur

59. fundur
Sunnudaginn 22. desember 1991, kl. 04:47:00 (2509)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Ég þakka hv. 9. þm. Reykn. fyrir hlýleg orð til mín og fjölskyldu minnar og öllum þingmönnum fyrir að taka undir orð hennar. Ég endurtek óskir mínar um gleðileg jól og gæfuríkt ár öllum hv. alþm. og starfsliði Alþingis til handa, svo og Íslendingum öllum.