Ferill 3. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 3 . mál.


3. Beiðni um skýrslu



frá heilbrigðisráðherra um málefni og hagi aldraðra.

Frá Svavari Gestssyni, Guðrúnu Helgadóttur, Hjörleifi Guttormssyni,


Jóhanni Ársælssyni, Kristni H. Gunnarssyni, Margréti Frímannsdóttur,


Ólafi Ragnari Grímssyni, Ragnari Arnalds og Steingrími J. Sigfússyni.



    Með tilvísun til 46. gr. þingskapa óskum við undirritaðir alþingismenn eftir því að heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra gefi Alþingi skýrslu um málefni aldraðra þar sem fram komi meðal annars:
    Yfirlit yfir þau úrræði aldraðra sem veitt eru í dag að því er varðar hjúkrunarrými eftir landshlutum, dagvistun aldraðra, rými fyrir heilabilaða aldraða einstaklinga, endurhæfingu, öldrunarlækningar og þátt heilsugæslunnar í þjónustu við aldraða.
    Yfirlit yfir þróun málefna aldraðra sl. 10 ár að því er varðar sömu þætti, þ.e. fjölda aldraðra sem þurfa á þjónustu að halda, hjúkrunarrými, aðra aðstöðu aldraðra, svo sem endurhæfingu, öldrunardeildir, heimaþjónustu, þátt sveitarfélaganna og hlut heilsugæslunnar í þjónustu við aldraða.
    Yfirlit yfir þá stefnu sem ríkisstjórnin kann að hafa í uppbyggingu þjónustu við aldraða, þar með taldir allir þeir þættir sem á undan eru nefndir, auk yfirlits yfir þau vandamál sem heilbrigðisráðuneytið telur að helst steðji að öldruðu fólki á komandi árum, bæði heilsufarsleg vandamál og félagsleg vandamál. Þá verði gerð grein fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar almennt og því er varðar einstök atriði eins og
        —    þörf á hjúkrunarrými fyrir aldraða eftir landsvæðum,
        —    þörf á öldrunarlækningum,
        —    þörf á dagvistum,
        —    þörf á hvíldarinnlögnum,
        —    þörf á rými fyrir heilabilaða aldraða,
        —    breytingar á þjónustu heilsugæslustöðva við gamalt fólk,
        —    þörf á íbúðum fyrir aldraða og stefnumótun í þeim efnum eftir landsvæðum,
        —    þörf á heimilisþjónustu og áform sveitarfélaganna í þeim efnum.
    Yfirlit yfir kjör aldraðra með hliðsjón af greiðslum almannatrygginga og frá lífeyrissjóðum.
    Yfirlit yfir framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra frá upphafi eftir landshlutum, bæði heildargreiðslur og árlegar greiðslur.
    Yfirlit yfir önnur atriði og upplýsingar sem ríkisstjórnin telur að veiti sem gleggsta heildarmynd af málefnum aldraðra og þeim úrræðum sem grípa verður til í þeim málaflokki nú og á komandi árum.
    Þess er óskað að skýrslan verði tekin til umræðu á Alþingi svo fljótt sem verða má. Jafnframt er þess óskað að skýrslubeiðnin verði prentuð með skýrslunni þannig að þar komi fram með skýrum hætti samhengi skýrslunnar og þessarar skýrslubeiðni.