Ferill 13. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 13 . mál.


13. Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um flóttamenn á Íslandi.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



    Hversu margt fólk, sem fellur undir skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna á flóttamönnum, hefur beðið um hæli hér á landi undanfarin fimm ár?
    Hversu margir flóttamenn hafa fengið hæli hér á landi sl. fimm ár?
    Hafi útlendingum verið synjað um landvist sl. fimm ár, af hvaða ástæðum hefur það verið gert og frá hvaða löndum hafa þeir komið?
    Hversu mörgum útlendingum hefur verið vísað frá Íslandi „á landamærum“, þ.e. í flughöfninni í Keflavík og höfnum landsins?
    Hafa stjórnvöld vitneskju um flóttamenn sem dveljast hér á landi ólöglega?