Ferill 18. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. –
18
. mál.
18. Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um framkvæmdir við að bæta móttökuskilyrði útvarps og sjónvarps.
Frá Stefáni Guðmundssyni.
Hvað hefur áunnist í að bæta móttökuskilyrði útvarps og sjónvarps eftir samþykkt Alþingis frá 11. maí 1988 þar sem afdráttarlaus vilji Alþingis kom fram um úrbætur?
Hver eru framkvæmdaáform um að koma upp þeim búnaði sem enn skortir til þess að allar útsendingar Ríkisútvarpsins frá stöðvum þess í Reykjavík náist hvar sem er á landinu og á helstu fiskimiðum við landið?