Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 20 . mál.


20. Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um endurskoðun almannatryggingalaga.

Frá Finni Ingólfssyni.



    Hyggst ráðherra leggja fram á Alþingi frumvarp það um almannatryggingar sem fyrrverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra lagði fram á síðasta þingi og ekki var afgreitt?
     Ef ekki, hyggst þá ráðherra láta fara fram heildarendurskoðun á lögum nr. 67/1971, með síðari breytingum, um almannatryggingar, og þá með hvað að markmiði?