Ferill 54. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 54 . mál.


55. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um málefni flugfélaga á landsbyggðinni.

Frá Jónu Valgerði Kristjánsdóttur.



    Er gert ráð fyrir að sú reglugerð um flugmál, sem koma á til framkvæmda um næstu áramót og skyldar flugfélög til að hafa tvo flugmenn í öllum flugvélum, komi til framkvæmda?
    Ef svo er, mun þá póstflug og sjúkraflug í landshlutunum leggjast af?
    Hvernig verður þá íbúum þessara svæða tryggð sú þjónusta og það öryggi sem í því hefur verið fólgið að flugvélar hafa haft aðsetur úti á landsbyggðinni?