Ferill 56. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 56 . mál.
57. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um Lyfjatæknaskóla Íslands, lögum um sjúkraliða, lögum um Ljósmæðraskóla Íslands og á ljósmæðralögum.
(Lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991.)
1. gr.
15. gr. laga nr. 76/1982, um lyfjadreifingu, með síðari breytingum, orðist svo:
Menntamálaráðuneytið starfrækir við framhaldsskóla nám í lyfjatækni í samvinnu við samtök lyfsala. Menntamálaráðherra setur með reglugerð ákvæði um námið og tilhögun þess.
Lyfjabúðum er skylt samkvæmt nánari ákvörðun heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra í reglugerð að vista lyfjatækninema til verklegs náms.
2. gr.
1. mgr. 2. gr. laga um sjúkraliða, nr. 58/1984, með síðari breytingum, orðist svo:
Leyfi skv. 1. gr. má veita þeim sem lokið hafa námi frá skóla hér á landi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið viðurkennir.
4. mgr. 5. gr. laga um sjúkraliða, nr. 58/1984, eins og greininni var breytt með lögum nr. 73/1989, fellur niður.
3. gr.
Við 6. gr. laga nr. 35/1964, um Ljósmæðraskóla Íslands, bætist nýr málsliður svohljóðandi:
Lög þessi falli úr gildi 31. desember 1992.
4. gr.
1. mgr. 2. gr. ljósmæðralaga, nr. 67/1984, orðist svo:
Leyfi skv. 1. gr. má veita þeim sem lokið hafa námi frá skóla hér á landi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið viðurkennir.
5. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1992.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Á 113. löggjafarþingi 1990 var lagt fram á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins frumvarp til laga um flutning Lyfjatæknaskóla Íslands og Þroskaþjálfaskóla Íslands til menntamálaráðuneytisins. Jafnframt voru lagðar til breytingar á lögum um sjúkraliða, nr. 58/1984, en Sjúkraliðaskóli Íslands var formlega lagður niður 1. nóvember 1990, og lögum nr. 35/1964, um Ljósmæðraskóla Íslands, þess efnis að hann yrði lagður niður á árinu 1992.
Á Alþingi náðist aðeins að afgreiða yfirfærslu Þroskaþjálfaskóla Íslands til menntamálaráðuneytisins, sbr. lög nr. 30/1991, um breytingu á lögum um Þroskaþjálfaskóla Íslands, nr. 40/1985. Eftir stendur því að taka afstöðu til flutnings Lyfjatæknaskóla Íslands, breytinga á lögum um sjúkraliða, vegna þess að sá skóli hefur verið lagður niður, og um að leggja niður Ljósmæðraskóla Íslands, en ekki vannst tími til þess á síðasta þingi að taka afstöðu til þessara þátta.
Á árinu 1990 tókst samkomulag milli heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og menntamálaráðherra um að menntamálaráðuneytið tæki við yfirstjórn og rekstri náms þroskaþjálfa, lyfjatækna og sjúkraliða. Var við það miðað að þessi breyting ætti sér stað 1. júlí 1991. Eins og áður segir var lögum breytt sl. vor þannig að starfsemi Þroskaþjálfaskólans hefur verið færð til menntamálaráðuneytisins. Frá og með 1. nóvember 1990 var Sjúkraliðaskóli Íslands formlega lagður niður en það kallaði ekki á lagabreytingar þótt breyta þurfi lögunum um sjúkraliða með hliðsjón af því að skólinn er ekki lengur til. Þannig er Þroskaþjálfaskóli Íslands nú undir yfirstjórn menntamálráðuneytis og hið sama gildir um nám sjúkraliða sem er stundað í fjölbrautaskólum víðs vegar í landinu. Hefur Fjölbrautaskólinn við Ármúla í Reykjavík yfirtekið húsnæði og kennslugögn Sjúkraliðaskólans en hann var til húsa í næsta nágrenni við Fjölbrautaskólann. Þar sem breytingar á lögum um sjúkraliða, nr. 58/1984, með síðari breytingum, náðu ekki fram á síðasta þingi, er á nýjan leik gerð tillaga þar að lútandi, en engum tilgangi þjónar að vísa til Sjúkraliðaskóla Íslands í lögunum þar sem hann er ekki lengur starfandi.
Það er skoðun heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins að rekstur skóla, hvaða nafni sem þeir nefnast, eigi að vera á verksviði menntamálaráðuneytisins og í samræmi við það leggur ráðuneytið til á nýjan leik að Lyfjatæknaskóli Íslands lúti yfirstjórn menntamálaráðuneytsins með sama hætti og aðrir skólar, svo sem Þroskaþjálfaskóli Íslands, í samræmi við áðurnefnt samkomulag milli ráðuneytanna.
Ráðuneytin hafa enn fremur komist að samkomulagi um að Ljósmæðraskóli Íslands verði lagður niður á árinu 1992 og að sá hópur sem hóf nám í fyrra haust verði síðasti hópurinn sem lýkur námi frá skólanum, en það mun eiga sér stað vorið 1992. Á vegum menntamálaráðuneytisins er hafin athugun á framtíðarskipan ljósmæðranáms og hugsanlegum tengslum þess við námsbraut í hjúkrunarfræði í Háskóla Íslands. Til þess að þessar breytingar á Ljósmæðraskóla Íslands nái fram að ganga þarf að breyta tvennum lögum, annars vegar lögum nr. 35/1964, um Ljósmæðraskóla Íslands, þar sem gert yrði ráð fyrir að lögin falli úr gildi 31. desember 1992, og hins vegar 1. mgr. 2. gr. ljósmæðralaga, nr. 67/1984, vegna veitingar starfsleyfa fyrir ljósmæður.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um. 1. gr.
Gert er ráð fyrir að Lyfjatæknaskóli Íslands flytjist yfir til menntamálaráðuneytisins og hefur menntamálaráðuneytið hug á að hann verði sérstök námsbraut innan framhaldsskólakerfisins.
Um 2. gr.
Hér er fjallað um breytingar á 1. mgr. 2. gr. laga um sjúkraliða, nr. 58/1984, með síðari breytingum, þar sem í stað þess að vísa til Sjúkraliðaskóla Íslands, sem ekki er lengur til, er gert ráð fyrir því að veita skuli þeim leyfi til að stunda störf sjúkraliða sem lokið hafa námi frá skóla hér á landi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið viðurkennir. Eins og áður kemur fram fer kennsla sjúkraliða nú fram í nokkrum fjölbrautaskólum í landinu.
Enn fremur er lagt til að 4. mgr. 5. gr. laga um sjúkraliða, nr. 58/1984, eins og greininni var breytt með lögum nr. 73/1989, verði felld niður, og helgast það af því að óraunhæft er að vísa til náms í skóla, sem hefur verið lagður niður, sbr. reglugerð um afnám reglugerðar nr. 357/1983 fyrir Sjúkraliðaskóla Íslands og um réttindi og skyldur sjúkraliða með breytingu nr. 127/1987 frá 10. apríl 1991.
Um 3. gr.
Ákveðið hefur verið í samráði við menntamálaráðuneytið að Ljósmæðraskóli Íslands verði lagður niður og er því gert ráð fyrir því að lög um Ljósmæðraskóla Íslands, nr. 35/1964, falli úr gildi í lok næsta árs.
Um 4. gr.
Í greininni er fjallað um nauðsynlegar breytingar á ljósmæðralögum nr. 67/1984, vegna þess að Ljósmæðraskóli Íslands verður lagður niður, og er þá óraunhæft að skírskota til hans í lögunum.
Um 5. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.