Ferill 66. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 66 . mál.


67. Tillaga til þingsályktunar



um yfirtökutilboð og önnur almenn tilboð í hlutafélög.

Flm.: Matthías Bjarnason, Eyjólfur Konráð Jónsson.



    Alþingi ályktar að fela viðskiptaráðherra að undirbúa nú þegar löggjöf um yfirtökutilboð og önnur almenn tilboð í hlutafélög til þess að vernda félagsmenn og aðra sem hagsmuna eiga að gæta. Leggja skal fram frumvarp um þetta efni fyrir 116. löggjafarþing svo að ný lög um þetta efni geti tekið gildi eigi síðar en 1. janúar 1993.

Greinargerð.


     Á síðasta löggjafarþingi var þessi þingsályktunartillaga lögð fram en kom ekki til umræðu. Fylgdi þeirri tillögu eftirfarandi greinargerð.
    Á Íslandi er ekki að finna almenn lög og reglur um yfirtökutilboð (takeover bids) og almenn tilboð (general bids) í hlutafélög. Reglur af þessu tagi hafa í aðalatriðum tvíþættan tilgang. Annars vegar að vernda hagsmuni hluthafa, ekki síst minni hlutans, þeirra hlutafélaga sem yfirtökutilboð er gert í. Hins vegar að hafa eftirlit með því að einokunaraðstaða og samþjöppun valds á fárra hendur verði ekki til skaða á kostnað einstaklinga og hagsmuna þjóðfélagsins í heild.
    Hlutafélög á Íslandi byggja í æ ríkari mæli á þátttöku almennings. Á síðustu örfáum árum hefur áhugi almennings á því að leggja fé sitt í hlutafélög til ávöxtunar og uppbyggingar atvinnulífsins farið vaxandi. Það er mjög óheppilegt að einstakir aðilar geti stjórnað slíkum fyrirtækjum, nánast eins og einkafyrirtækjum, án þess að eiga nema tiltölulega takmarkaðan hluta þeirra. Af þessum sökum er orðið tímabært að setja reglur sem tryggja að einstaklingar eða lögaðilar geti ekki náð virkum yfirráðum slíkra hlutafélaga með því að kaupa tiltekinn hluta hlutafjárins sem tryggir þeim slík yfirráð án þess að þeim sé um leið gert skylt að bjóða öðrum hluthöfum að kaupa þeirra hluti. Verði þetta ekki gert er hætt við því að sú staða kunni að koma upp að stór hluti hluthafanna sitji uppi með verðlaus eða verðminni hlutabréf en þeir áttu fyrir yfirtökuna.
    Um hlutafélög fer samkvæmt lögum nr. 32/1978, ásamt síðari breytingum. Í hlutafélagalögunum er að finna ákvæði sem er ætlað að vernda hagsmuni minni hlutans gegn tilteknum ráðstöfunum meiri hlutans. Minni hlutanum eru tryggð ýmis réttindi er varða: Boðun funda, 68. gr., ótilhlýðilegar ályktanir, 78. gr., arðgreiðslur, 109. gr., félagsslit, 115. gr., samruna, 126. og 128. gr., innlausn við samruna, 128. gr., og loks skaðabótakröfur, 133. gr.
    Þessum reglum hlutafélagalaganna er ekki ætlað að þjóna sama tilgangi og reglum um yfirtökutilboð og geta á engan hátt komið í stað þeirra. Í hlutafélagalögunum eru engin ákvæði um yfirtökutilboð. Þau hafa einungis að geyma reglur um innbyrðis samskipti hluthafa í hlutafélagi. Engin ákvæði taka til aðila sem standa utan hlutafélagsins. Ekki er rétt að breyta þessari uppbyggingu hlutafélagalaganna. Þess vegna verður að setja sérstök lög um yfirtökutilboð.
    Með yfirtökutilboði er átt við tilboð sem eigendum hluta, sem atkvæðisréttur fylgir, í hlutafélagi er gert í þeim tilgangi að eignast hlutina gegn gjaldi (peningum eða öðrum verðmætum). Tilboðið er venjulega gert í þeim tilgangi að ná virkum yfirráðum yfir hlutafélaginu eða styrkja fyrri völd tilboðsgjafans og tilboðið er skilyrt þannig að það gildir einungis ef nægilega margir tilboðshafa samþykkja tilboðið svo að tilboðsgjafinn nái markmiðum sínum.
    Yfirtaka hlutafélags með þessum hætti felur ekki í sér samruna hlutafélaga vegna þess að hvorugt félagið er leyst upp. Félagið, sem er yfirtekið, heldur áfram að vera til.
    Enda þótt yfirtaka hlutafélaga sé ekki algeng hér á landi enn sem komið er er engin ástæða til að ætla annað en þróunin verði svipuð hér og erlendis. Þar hefur yfirtaka hlutafélaga færst mjög í vöxt á undanförnum árum, ekki síst vegna sífellt opnari fjármagnsmarkaða og aukins frelsis til flutnings á fjármagni. Af þessum sökum hafa mörg ríki, m.a. í Evrópubandalaginu, sett lagareglur um þessi efni. Evrópubandalagið sjálft er að undirbúa löggjöf um þetta efni sem á að taka til allra aðildarríkjanna.
    Nauðsynlegt er að sambærilegar reglur gildi hér og í öðrum löndum. Þess vegna er rétt að hafa hliðsjón af þeim reglum við smíði frumvarpsins, en þó verður að taka fullt tillit til séríslenskra aðstæðna.
    Til þess að tryggja að allir hluthafar njóti jafnréttis verður að ákveða tiltekin mörk sem skylda tilboðsgjafa til þess að gera yfirtökutilboð. Hér er átt við tiltekið hlutfall hlutafjárins, t.d. 33,3%, eins og gert er ráð fyrir hjá EB. Þar að auki verður, til þess að tryggja hagsmuni minni hlutans og hindra spákaupmennsku, að setja reglur sem skylda tilboðsgjafann að bjóða í alla hluti í félaginu. Til þess að tryggja að hluthafar, sem fá tilboð með þessum hætti, geti gert upp hug sinn til tilboðsins á eðlilegum grundvelli verður að setja reglur sem skylda tilboðsgjafann til þess að gefa út tilboðslýsingu þar sem allir skilmálar tilboðsins eru raktir.
    Enn fremur verður að setja reglur sem tryggja að virkt óháð opinbert eftirlit sé til staðar sem tryggi hagsmuni þeirra sem hlut eiga að máli þegar yfirtökutilboð eru annars vegar.