Ferill 68. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 68 . mál.


69. Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um loðnuveiðar.

Frá Ragnari Arnalds.



    Er ekki hyggilegt að leyfa nú þegar loðnuveiðar upp að vissu marki til bráðabirgða?
    Hver væri þjóðhagslegur ávinningur af því ef loðnuveiðar færu alfarið fram á þeim tíma þegar fiskurinn er feitastur og verðmestur í stað þess að láta veiðarnar tefjast svo ár eftir ár að stór hluti loðnuaflans er tekinn úr sjó þegar loðnan gefur minnst af sér?