Ferill 70. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 70 . mál.
71. Frumvarp til laga
um breyting á lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, nr. 19 6. apríl 1966, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991.)
1. gr.
3. mgr. 1. gr. fellur niður.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Á síðasta Alþingi voru sett lög um breytingu á lagaákvæðum er varða fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri o.fl. 8. gr. þessara laga, sem eru nr. 23 27. mars 1991, breytir 1. gr. laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, nr. 19 6. apríl 1966. Meginbreytingin er í því fólgin að þeim erlendum ríkisborgurum, sem átt hafa lögheimili á Íslandi samfleytt í a.m.k. 5 ár, er heimilað að eignast fasteignir eða afnotarétt yfir þeim hér á landi á sama hátt og íslenskum ríkisborgurum. Einnig eru þeim heimiluð sömu réttindi sem hér hafa rétt til að stunda atvinnurekstur og vilja öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteign til eigin nota og/eða til notkunar í atvinnustarfsemi sinni.
Í niðurlagi 1. gr., eins og henni er breytt með 8. gr. laga nr. 23 27. mars 1991, segir að leggja skuli fyrir dómsmálaráðuneyti samninga, afsöl eða önnur heimildarskjöl vegna eignar- og afnotaréttinda erlendra aðila hér á landi og öðlast gerningurinn ekki gildi fyrr en ráðuneytið hefur staðfest hann með áritun sinni. Þannig er lögð skylda á þá erlenda ríkisborgara sem vilja hagnýta sér lagaheimild til þess að eignast fasteign eða taka hana á leigu hér á landi án þess að þurfa til þess sérstakt leyfi að leita sérstakrar staðfestingaráritunar dómsmálaráðuneytisins á skjöl varðandi bæði eignarréttindi og afnotaréttindi yfir fasteignum. Þetta þýðir í framkvæmd að sérhver útlendingur, sem tekur á leigu herbergi eða íbúð þó að það sé aðeins til nokkurra mánaða, þarf samkvæmt ákvæðum þessarar greinar að leita staðfestingaráritunar ráðuneytisins á leigusamninginn til þess að hann taki gildi.
Að mati ráðuneytisins hefur slík áritunarskylda óþarfa skriffinnsku í för með sér þegar um er að ræða gerninga sem lagaheimild er fyrir og verður ekki séð að ráðuneytið geti synjað um staðfestingu ef lagaskilyrði eru fyrir hendi.
Á það má benda að sé óskað eftir að fylgjast með því hvaða samninga um eignakaup erlendir aðilar gera hér á landi samkvæmt þeim lagaheimildum sem nefnd 1. gr. veitir þeim er unnt að sjá það með því að leita í fasteignaskrá ríkisins, en þangað ber að senda til skráningar öll fasteignakaupaskjöl. Á því að vera hægt að sjá þar með nútímatölvutækni hverjir erlendir ríkisborgarar eru skráðir eigendur fasteigna hér á landi.
Ráðuneytið leggur því til að felld verði niður síðasta málsgrein 1. gr. laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna eins og hún hljóðar eftir breytingu skv. 8. gr. laga nr. 23 27. mars 1991.
Umsögn um frumvarp til laga
um breytingu á lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna
,nr. 19 6. apríl 1966, með síðari breytingum.
Breytingin lýtur að brottfalli ákvæðis um að leggja skuli fyrir dómsmálaráðuneyti samninga, afsöl eða önnur heimildarskjöl vegna eignar- og afnotaréttinda erlendra aðila hér á landi. Eins og fram kemur í athugasemdum við frumvarpið telur dómsmálaráðuneytið að umrætt ákvæði leggi óþarfa skyldu á erlenda borgara og óþarfa vinnu á ráðuneytið. Breytingin hefur þau áhrif að létta af ráðuneytinu nokkru vinnuálagi sem hlýst af framfylgd þessa lagaákvæðis. Hún veldur ekki teljandi lækkun kostnaðar en gefur ráðuneytinu rýmri tíma til annarra verkefna.