Ferill 84. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 84 . mál.


87. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um afnot Ríkisútvarpsins af ljósleiðara.

Frá Ragnari Arnalds.



    Hvað mundi það kosta Póst og síma ef Ríkisútvarpið fengi afnot af ljósleiðarakerfinu eins og það er á hverjum tíma en greiddi sjálft fjárfestingar sem nauðsynlegar eru í því skyni?
    Hvað kostar það Póst og síma að senda eftir ljósleiðara sjónvarpsútsendingar fyrir Ríkisútvarpið frá Blönduósi til Hvítabjarnarhóls í Vestur-Húnavatnssýslu, svo að dæmi sé tekið?
    Hvaða gjald mundi Póstur og sími taka fyrir afnot af ljósleiðaranum á fyrrnefndri leið samkvæmt núgildandi gjaldskrá?
    Hver eru áform ríkissjónvarpsins um notkun ljósleiðara í þágu sjónvarps og útvarps?