Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 112 . mál.
115. Frumvarp til laga
um stofnun hlutafélags um Staðlaráð Íslands.
(Lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991.)
1. gr.
Ríkisstjórnin skal beita sér fyrir stofnun hlutafélags er heiti: Staðlaráð Íslands hf.
Í því skyni er ríkisstjórninni heimilt:
Við stofnun skal a.m.k. 50% hlutabréfa í hlutafélaginu vera í eigu ríkissjóðs.
2. gr.
Til samvinnu um stofnun og starfrækslu hlutafélags skv. 1. gr. skal kveðja innlenda áhuga- og hagsmunaaðila.
3. gr.
Heimili og varnarþing félagsins skal vera í Reykjavík.
4. gr.
Hlutverk félagsins er að vera vettvangur stöðlunar fyrir íslenskt atvinnulíf og neytendur. Með því móti skal félagið vinna að því að auka vöxt og nýsköpun íslensks atvinnulífs, bæta starfsskilyrði þess og vinna að aukinni vernd og öryggi neytenda samkvæmt nánari ákvæðum í samþykktum félagsins. Stöðlun skal lúta þeim reglum sem settar eru samkvæmt lögum þessum og nánari ákvæðum í samþykktum félagsins.
Félagið hefur einkarétt til að gefa út íslenska staðla.
Félaginu er heimilt að stunda þjónustustarfsemi sem tengist stöðlum og stöðlun. Því er jafnframt heimilt að eiga hlut í félögum með takmarkaðri ábyrgð sem veita slíka þjónustu.
Félagið skal eiga aðild að alþjóðlegu samstarfi staðlaráða fyrir Íslands hönd og fara með atkvæði landsins á þeim vettvangi. Heimilt er félaginu að fela stofnun, fyrirtæki eða samtökum að annast í umboði þess þátttöku í alþjóðastaðlasamstarfi.
5. gr.
Eigi sjaldnar en ársfjórðungslega skal á vegum félagsins gefa út Staðlatíðindi þar sem m.a. skal:
Við útgáfu auglýsinga og ákvörðun tímafrests samkvæmt þessari grein skal miða við að aðilar, er hagsmuna eiga að gæta, geti haft áhrif á gerð staðalsins svo sem nánar skal kveðið á um í samþykktum félagsins.
Félagið skal halda skrá yfir alla gilda íslenska staðla. Skráin skal birt eigi sjaldnar en einu sinni á ári.
6. gr.
Hugtökin staðall, alþjóðlegur staðall, stöðlun, reglugerð á tæknisviði, tæknileg forskrift og sammæli hafa alþjóðlega viðurkennda merkingu og skal hún sett fram í íslenskum staðli sem íðorð í stöðlun og skyldri starfsemi.
7. gr.
Íslenskur staðall er staðall sem hefur verið staðfestur af Staðlaráði Íslands.
Staðall er til frjálsra afnota. Stjórnvöld geta þó gert notkun tilgreinds staðals skyldubundna með vísun til hans í opinberum stjórnvaldsfyrirmælum.
Heimilt er að gefa út íslenskan staðal á erlendu tungumáli ef sýnt er að það hindri ekki eðlileg not staðalsins.
8. gr.
Iðnaðarráðherra er heimilt að skipa til tveggja ára hverju sinni allt að sjö manna umsagnarráð helstu hagsmunaaðila stjórn félagsins til ráðuneytis og aðstoðar um gerð staðla og stöðlun.
9. gr.
Ríkissjóður getur ekki boðið meiri hluta hlutabréfa í félaginu til sölu nema hafa til þess samþykki Alþingis.
10. gr.
Iðnaðarráðherra fer með eignarhluta ríkissjóðs í félaginu.
11. gr.
Fastráðnir starfsmenn staðladeildar Iðntæknistofnunar Íslands skulu hafa rétt til að starfa hjá hinu nýja hlutafélagi og skal þeim boðið sambærilegt starf hjá félaginu og þeir gegndu áður hjá staðladeild Iðntæknistofnunar. Taki þeir starfið skulu ákvæði 14. gr. laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, ekki eiga við um þá starfsmenn.
12. gr.
Ákvæði 2. mgr. 3. gr. laga um hlutafélög, nr. 32/1978, gildir ekki um tölu stofnenda í hlutafélaginu, né heldur ákvæði 1. mgr. 17. gr. sömu laga um tölu hluthafa.
Stofnfund hins nýja hlutafélags skal halda eigi síðar en tveimur mánuðum eftir gildistöku laganna og skal leggja fram drög að stofnsamningi og samþykktum fyrir félagið á stofnfundinum.
13. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Hlutafélag skv. 1. gr. yfirtekur eignir og starfsemi staðladeildar Iðntæknistofnunar Íslands 1. mars 1992.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Tilgangurinn með frumvarpi þessu er tvíþættur. Annars vegar að breyta rekstrarformi núverandi staðladeildar Iðntæknistofnunar Íslands, sem starfar á grundvelli heimildar í 3. mgr. 2. gr. laga nr. 41/1978, um Iðntæknistofnun Íslands, í hlutafélag í samvinnu við innlenda áhuga- og hagsmunaaðila, þó þannig að ríkið verði eigandi a.m.k. helmings hlutabréfa í félaginu og að sala umfram 50% hlutafjár í félaginu geti aðeins komið til með samþykki Alþingis. Hins vegar er tilgangurinn með frumvarpinu að styrkja lagagrundvöll reglna um staðla hér á landi. Frumvarp til laga um stöðlun var fyrst flutt á 112. löggjafarþingi og endurflutt á 113. löggjafarþingi. Frumvarp það, sem nú er flutt, byggir á sömu sjónarmiðum og fyrri frumvörp að öðru leyti en því að nú er lagt til að Staðlaráð Íslands verði hlutafélag en ekki sjálfseignarstofnun sem starfi á grundvelli stofnskrár.
Á 111. löggjafarþingi var lagt fram frumvarp um stofnun hlutafélags um Ríkisprentsmiðjuna Gutenberg. Frumvarpið varð að lögum vorið 1989 og var hlutafélag stofnað í september sama ár er tók við rekstri Gutenber 1. janúar 1990. Röksemdir fyrir stofnun hlutafélags um starfsemi staðladeildar Iðntæknistofnunar Íslands eru þær sömu og giltu um Gutenberg.
Starfsemi hlutafélaga er í vandlega skilgreindu formi víðast í heiminum og hér á landi hefur löggjafinn sett ítarlegar reglur um starfsemi hlutafélaga. Í þeirri löggjöf eru nákvæmar reglur um starfssvið stjórnar, framkvæmdastjórnar og aðalfundar. Í hlutafélagalögunum er ákvæði sem verndar rétt minnihlutaeigenda og þar sem ríkið býður öðrum til samstarfs um atvinnurekstur er því hlutafélagaformið sérstaklega viðeigandi.
Kostir þess að reka staðladeild Iðntæknistofnunar í hlutafélagsformi eru að með því verður reksturinn sveigjanlegri. Fjárhagsleg uppbygging fyrirtækis veldur því að mjög æskilegt er að reka fyrirtæki í eign ríkisins í hlutafélagaformi. Hverju fyrirtæki er nauðsynlegt að fjárfesta, ráðast í nýjungar og efla starfsemi sína til að vernda stöðu sína á markaðnum. Vilji ríkið ekki leggja fram aukið hlutafé til að halda eiginfjárhlutföllum í horfinu þegar kemur til þess að fjármagna þarf nýja fjárfestingu er unnt að leita eftir nýjum hluthöfum sem færa með sér nýtt hlutafé. Með því móti verður komist hjá því að ríkið taki í sífellu á sig skuldbindingar, t.d. í formi ríkisábyrgðar, er fyrirtæki í eigu þess þurfa að ráðast í framkvæmdir.
Stjórn Iðntæknistofnunar Íslands fól nokkrum hagsmunaaðilum í október 1987 að annast skyldu stofnunarinnar gagnvart stöðlum. Þessir aðilar komu saman á vettvangi sem nefndur var Staðlaráð Íslands og samdi sér starfsreglur sem stjórn Iðntæknistofnunar samþykkti að væri forsenda framsalsins.
Staðladeild Iðntæknistofnunar Íslands starfar á grundvelli fyrrnefndra starfsreglna sem stjórn Iðntæknistofnunar setti 27. október 1987 með heimild í 3. mgr. 2. gr. laga nr. 41/1978, um Iðntæknistofnun Íslands. Þar segir að ráðið gegni hlutverki sínu m.a. með stöðlun. Lagalegur grundvöllur starfseminnar er hins vegar ófullnægjandi miðað við þá auknu áherslu sem lögð er á stöðlun og tengda starfsemi í Evrópu, þar á meðal hér á landi.
Á alþjóðavettvangi hefur einkum verið fjallað um staðla í viðræðum um hindrunarlaus viðskipti á milli landa. Gerður hefur verið samningur á vettvangi GATT um viðskiptahindranir á tæknisviðum. Í samningnum eru hugtökin staðall og stöðlun skilgreind, auk þess sem kveðið er á um að vísa skuli til alþjóðlegra staðla í opinberum stjórnvaldsfyrirmælum fremur en að tilgreina í einstökum atriðum hverjar tæknilegar kröfur skuli gera til vöru eða þjónustu.
Samkvæmt reglum Alþjóðastaðlasambandsins ISO (International Organization for Standardization) og Alþjóðaraftækniráðsins IEC (International Electrotechnical Commission) er eitt megineinkenni staðla og stöðlunar að þeir eru samdir í samvinnu helstu hagsmunaaðila og í þeim endurspeglast góður framkvæmdamáti að bestu manna yfirsýn. Af þessu leiðir að enginn einstaklingur eða stofnun getur samið staðal án samráðs við hagsmunaaðila. Þetta samráð greinir staðla frá öðrum reglum og vöruforskriftum.
Annað atriði, sem greinir staðla frá öðrum stjórnvaldsfyrirmælum, er að staðlar eru frávíkjanlegir.
Vegna þessara eiginleika staðla ákvað framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins (EB) að þeir skyldu gegna veigamiklu hlutverki í áformum þess að gera bandalagið að einum markaði fyrir árslok 1992. Hinn 7. maí 1985 ákvað ráðherraráð EB að beita svokallaðri „nýrri aðferð“ (new approach) við að samhæfa tæknilegar reglur og staðla í aðildarríkjunum. Samkvæmt nýju aðferðinni á að takmarka lögbundna samhæfingu, þ.e. samhæfingu í tilskipunum EB, á tæknisviðum við grunnkröfur um öryggi og heilsu manna og dýra og verndun umhverfisins. Síðan var þeim stofnunum (félögum) sem höfðu unnið að stöðlun í iðnaði fengið það hlutverk að semja tæknilegar forskriftir í einstökum atriðum. Þessar forskriftir eru síðan gefnar út sem samhæfðir staðlar í aðildarlöndum bandalagsins. Framleiðendum er í sjálfsvald sett hvort þeir nota staðlana en svo er litið á að sá sem fylgir stöðlunum hafi fullnægt grunnkröfunum í tilskipunum.
Á sama tíma var gerður rammasamningur við evrópsku staðlasamböndin, CEN (Comité Européen de Normalisation) á almennu sviði og CENELEC (Comité Européen de Normalisation Electrotechnique) á raftæknisviði, um að stýra gerð þeirra staðla sem gert væri ráð fyrir í tilskipunum EB. Í rammasamningunum er það gert að skilyrði að samþykktir staðlar á vettvangi staðlasambandanna (Evrópustaðlar) verði gerðir að landsstöðlum í hverju aðildarlandi CEN og CENELEC innan missiris frá samþykkt þeirra og þeir landsstaðlar numdir úr gildi sem brjóta í bága við Evrópustaðla. Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA, fylgdu á eftir og gerðu samsvarandi samning við staðlasamböndin. Í yfirstandandi samningaviðræðum um Evrópskt efnahagssvæði er gert ráð fyrir að vísað verði til samræmdu staðlanna í stjórnvaldsfyrirmælum á tæknisviðum og við opinber innkaup.
Staðlaráð Íslands gerðist aðili að staðlasamböndunum CEN og CENELEC um miðbik ársins 1988.
Með þeirri nýju stefnu, sem hér hefur verið lýst, breytist hlutverk þeirra sem semja staðla í smærri Evrópuríkjum mikið. Áður voru nánast einvörðungu samdir staðlar sem iðnaðurinn í viðkomandi ríki taldi sig þurfa á að halda á þeim hraða sem aðstæður leyfðu hverju sinni. Engar kvaðir lágu á stjórnvöldum að vísa til staðlanna. Á þrjátíu ára tímabili höfðu þannig alls verið staðfestir um fimmtíu staðlar á Íslandi en síðan Staðlaráð gerðist aðili að CEN og CENELEC 1988 hafa um 900 staðlar verið staðfestir.
Í ljósi þess mikilvæga hlutverks, sem stöðlum er ætlað í framtíðinni innan Evrópu, er einstökum ríkjum nauðsynlegt að fylgjast vel með samningu þeirra og taka fullan þátt í þeirri vinnu á þeim sviðum sem varða hagsmuni þeirra.
Með bréfi dagsettu 2. ágúst 1989 skipaði iðnaðarráðherra eftirtalda menn í nefnd til að gera tillögu um frumvarp til laga um staðla: Halldór Jón Kristjánsson, tilnefndan af iðnaðarráðuneyti, Halldór Árnason, tilnefndan af sjávarútvegsráðuneyti, Sturlaug Daðason, tilnefndan af Útflutningsráði Íslands, Sigurð Arnalds tilnefndan, af Verkfræðingafélagi Íslands, og Davíð Lúðvíksson, tilnefndan af Staðlaráði Íslands. Nefndinni var falið að hafa samráð við þá hagsmunaaðila sem málið varðaði. Framkvæmdastjóri Staðlaráðs, Jóhannes Þorsteinsson, starfaði með nefndinni.
Til undirbúnings vinnu nefndarinnar var aflað gagna um tilhögun staðlamála í Evrópu. Þáverandi framkvæmdastjóri CEN, Evangelos Vardakas, lagði fram tillögur um löggjöf um staðla á Íslandi og einnig var safnað athugasemdum við tillögur hans víðs vegar að. Tillögurnar og athugasemdir við þær voru grundvöllur starfsins í nefndinni. Nefndin lauk störfum með því að skila af sér frumvarpi til laga um Staðlaráð Íslands sem tvívegis hefur verið lagt fram á Alþingi án þess að útrætt væri.
Helstu ákvæði frumvarpsins nú eru þessi:
Í fylgifrumvarpi eru gerðar ýmsar breytingar á sérlögum í samræmi við meginreglur frumvarps þessa.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Með grein þessari er ríkisstjórninni gert að stofna hlutafélag er yfirtaki starfsemi og eignir staðladeildar Iðntæknistofnunar Íslands. Allar eignir deildarinnar og starfsemi færast yfir til hins nýja hlutafélags. Að minnsta kosti helmingur hlutafjár í félaginu, líklega mun meira og jafnvel allt, verður í eigu ríkissjóðs við stofnun hlutafélagsins. Nauðsynlegt er að fram fari mat á eignum deildarinnar sem ekki eru þó verulegar er notað verði til viðmiðunar við ákvörðun hlutafjár hins nýja hlutafélags. Verðgildi hlutafjár þarf þó ekki að merkja hvers virði viðkomandi fyrirtæki er. Þar koma til fleiri atriði eins og arðsemi, eftirspurn eftir hlutabréfum o.fl.
Um 2. gr.
Fram að stofndegi félagsins er gert ráð fyrir að kannaður verði áhugi hagsmuna- og áhugaaðila á þátttöku í stofnun og framtíðarstarfrækslu hlutafélags af þessu tagi. Útilokað er á þessari stundu að fullyrða hve víðtækur þessi áhugi er.
Um 3. gr.
Eðlilegt er að fram komi í lagatexta hvar heimili og varnarþing félagsins skuli vera.
Um 4. gr.
Rétt þykir að skilgreina í lögunum hlutverk hlutafélagsins að nokkru leyti. Jafnframt er lagt til að nánari ákvæði um hlutverk félagsins verði sett í samþykktum þess. Með þessu hefur eigandinn nokkra möguleika til að laga hlutverk félagsins að aðstæðum hverju sinni.
Í samræmi við stefnumótun í Evrópu um að staðlamál verði samræmd er í 3. mgr. lagt til að félaginu verði veittur einkaréttur til að gefa út íslenska staðla. Með þessu móti er leitast við að tryggja að enginn vafi leiki á því hvað getur talist íslenskur staðall.
Í 4. mgr. er kveðið á um að félaginu sé heimilt að stunda þjónustustarfsemi sem tengist stöðlum og stöðlun. Jafnframt er því heimilað að eiga hlut í félögum með takmarkaðri ábyrgð sem veita slíka þjónustu. Sem dæmi um þjónustu af þessu tagi má nefna vottun sem felst í því t.d. að staðfesta að tiltekin vara sé framleidd í samræmi við þá staðla sem um hana gilda.
Enn fremur er í 5. mgr. lagt til að félagið eigi aðild að alþjóðasamstarfi staðlaráða fyrir Íslands hönd. Rétt þykir þó að ráðinu sé heimilt að fela öðrum þátttöku í slíku samstarfi. Þessi málsgrein tekur til aðildar að Alþjóðastaðlasambandinu (ISO), Alþjóðaraftækninefndinni (IEC), auk evrópsku staðlasambandanna, CEN og CENELEC. Hún tekur hins vegar ekki til margvíslegrar þátttöku íslenskra stjórnvalda og stofnana í samhæfingarvinnu á alþjóðavettvangi að því marki sem þessi vinna miðast ekki við setningu landsstaðla. Greinin tekur þannig ekki til þess starfs sem fer fram hjá Codex Alimentarius, en þátttaka Íslendinga í þeim samtökum er á vegum heilbrigðisráðuneytis. Ekki er þó útilokað að síðar verði sú aðild á vegum félagsins.
Um 5. gr.
Hér er fjallað um birtingu staðla og tilkynninga um ný stöðlunarverkefni. Greininni er ætlað að tryggja að allir þeir, sem hagsmuna eiga að gæta, geti haft áhrif á gerð staðals. Skýrar reglur um birtingu staðla auðvelda enn fremur tilvísun í staðla í opinberum reglugerðum.
Um 6. gr.
Merking hugtakanna í greininni skal vera í samræmi við GATT-samninginn um viðskiptahindranir á tæknisviðum, samkomulag EFTA-ríkjanna um gagnkvæma viðurkenningu á niðurstöðum prófana og staðfestingum á samræmi (Tampere-samkomulagið) og leiðbeiningarrit ISO og IEC nr. 2. Leiðbeiningarritið skal gefa út sem íslenskan staðal.
Í leiðbeiningarritinu hafa eftirfarandi hugtök þessa merkingu:
Staðall (e. standard): sérstök gerð opinbers skjals sem er byggt á sammæli hagsmunaaðila og staðfest af þar til bærum aðila. Í því eru settar fram reglur, leiðbeiningar fyrir eða lýsing á einkennum algengrar og endurtekinnar starfsemi eða afrakstri hennar. Markmið með gerð slíks skjals er að ná sem mestri samskipan á gefnu sviði með sem víðtækastri notkun þess.
Stöðlun (e. standardization): það að ná sammæli um skjal til víðtækrar notkunar sem inniheldur lýsingu á reglum, leiðbeiningum fyrir eða lýsingu á einkennum algengrar og endurtekinnar starfsemi eða afrakstri hennar. Skjalið skal samið í þeim tilgangi að ná fram sem mestri samskipan mála á gefnu sviði og það staðfest af þar til bærum aðila.
Alþjóðlegur staðall (e. international standard): opinber staðall sem hefur verið staðfestur af alþjóðastaðlasambandi.
Reglugerð á tæknisviði (e. technical regulation): skjal þar sem kveðið er á um lagalega bindandi kröfur á tæknisviði, staðfestar af stjórnvaldi. Kröfurnar eru ýmist tilgreindar í einstökum atriðum, með vísun til staðals, tæknilegrar forskriftar eða framkvæmdastaðals, eða með því að taka staðalinn upp í heild sinni. Undir þetta falla m.a. lög, reglugerðir, tilkynningar og orðsendingar.
Tæknileg forskrift (e. technical specification): skjal þar sem mælt er fyrir um þær kröfur sem vara, ferli eða þjónusta á að fullnægja og þær tilgreindar í einstökum atriðum.
Sammæli (e. consensus): almennt samkomulag sem mikilvægir hagsmunaaðilar í málinu haldi ekki uppi andstöðu við í veigamiklum atriðum. Sammæli næst með því að leitast er við að taka tillit til sjónarmiða allra aðila sem málinu tengjast og vinna að lausn sem sameinar andstæðar röksemdir.
Með frumvarpinu er lagt til að þessi hugtök og viðteknar skilgreiningar á þeim verði settar ásamt öðrum helstu hugtökum á þessu sviði í íslenskan staðal.
Tekið skal fram í þessu sambandi að Evrópustaðall er opinber staðall sem hefur verið staðfestur af öðru hvoru evrópsku staðlasambandanna, CEN eða CENELEC.
Um 7. gr.
Í 1. mgr. er lagt til að skýrt verði kveðið á um hvað geti talist íslenskur staðall. Þessu ákvæði er einnig ætlað að taka til samsetninga þar sem einkunnum eða öðrum ákvæðisliðum kann að vera bætt við orðalagið íslenskur staðall. Þó að hlutafélag taki nú við starfsemi Staðlaráðs Íslands er ekki gert ráð fyrir því að nýja félagið þurfi að endurstaðfesta alla fyrri staðla sem hafa verið staðfestir samkvæmt lögum um Iðntæknistofnun Íslands. Þeir halda sínu gildi nema á þeim verði gerð breyting.
Í 2. mgr. er lagt til að lögfest verði sú meginregla að staðlar séu til frjálsra afnota í skiptum manna á meðal. Í samræmi við alþjóðlega þróun er hins vegar gert ráð fyrir að stjórnvöld hér á landi muni í auknum mæli vísa til staðla í reglugerðum og öðrum stjórnvaldsfyrirmælum þannig að sá sem fylgir tilgreindum stöðlum teljist hafa fullnægt ákvæðum stjórnvaldsfyrirmælanna. Einnig er sá möguleiki fyrir hendi að stjórnvöld geti gert notkun staðals skyldubundna.
Í 3. mgr. er lagt til að heimilt verði að staðfesta staðal sem íslenskan staðal þótt hann sé á erlendu máli ef ljóst er að not hans eru bundin við aðila er kunna þá tungu, t.d. flóknir staðlar á flugmálasviði. Þetta er í samræmi við breytingar sem gerðar hafa verið á stefnu einstakra Norðurlanda í þessum efnum. Nefna má að Finnar hafa breytt stjórnarskrárákvæði er kveður á um lögbirtingu á finnsku og sænsku á þann veg sem hér er lagt til. Heppilegt þykir að lögfesta ekki að staðlar skuli ávallt gefnir út á íslensku. Þess í stað verði metið í hverju tilviki, m.a. með tilliti til notkunar staðalsins, hvort staðall skuli þýddur.
Um 8. gr.
Í greininni er iðnaðarráðherra heimilað að skipa sérstakt tímabundið umsagnarráð helstu hagsmunaaðila til að vera félaginu til ráðuneytis og aðstoðar í störfum sínum.
Ráðherra er hins vegar ekki skylt að skipa slíkt ráð. Takist ekki að fá hagsmuna- og áhugaaðila til þátttöku í stofnun og starfrækslu félagsins strax í upphafi og ríkið verði einn eignaraðili félagsins í upphafi er heppilegt að geta skipað slíkt umsagnarráð helstu hagsmunaaðila stjórn félagsins til aðstoðar og ráðgjafar í störfum sínum.
Um 9. gr.
Með tilliti til þess að félagið hefur einkarétt til útgáfu íslenskra staðla og fer með atkvæði Íslands í alþjóðlegu samstarfi staðlaráða er eðlilegt að Alþingi fjalli um hugsanlega sölu á meiri hluta hlutabréfa í félaginu áður en af henni verður.
Um 10. gr.
Iðnaðarráðherra mun fara með eignarhlut ríkissjóðs í félaginu enda hefur starfsemi staðladeildar Iðntæknistofnunar Íslands heyrt undir starfssvið iðnaðarráðuneytisins.
Um 11. gr.
Með þessari grein er núverandi fastráðnum starfsmönnum staðladeildar Iðntæknistofnunar Íslands tryggður réttur til sambærilegs starfs hjá hinu nýja félagi. Taki þeir því er ljóst að þeir njóta ekki lengur lögkjara sem opinberir starfsmenn. Sérstaklega er hnykkt á að taki þeir upp sambærilegt starf hjá félaginu þá falli niður réttur þeirra til biðlauna skv. 14. gr. laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna. Ætlunin með þessu ákvæði er að koma í veg fyrir að þeir starfsmenn, sem halda áfram sambærilegu starfi, fái greidd tvöföld laun í einhvern tíma. Hins vegar er ekki ætlunin að svipta þá rétti til biðlauna sem ekki kjósa að starfa hjá nýja félaginu. Ef sú er afstaða einstakra starfsmanna og þeim ekki boðið sambærilegt starf hjá ríkinu er ljóst að þeir eiga kost á biðlaunum samkvæmt ákvæðum 14. gr. laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna.
Um 12. gr.
Nauðsynlegt er að veita undanþágu frá ákvæðum hlutafélagalaga um lágmarkstölu stofnenda og hluthafa í félaginu. Hið nýja félag lýtur hins vegar öðrum almennum reglum hlutafélagalaga. Gert er ráð fyrir að iðnaðarráðherra sjái til þess að fram fari viðræður við helstu hagsmunaaðila um stofnun hlutafélagsins og útbúin verði drög að stofnsamningi og hann samþykktur fyrir félagið til framlagningar á stofnfundi sem haldinn verði eigi síðar en tveimur mánuðum eftir gildistöku laganna og áður en breytingin á sér stað.
Um 13. gr.
Lögin öðlast þegar gildi, en félagið yfirtekur starfsemi og eignir staðladeildar Iðntæknistofnunar Íslands 1. mars 1992. Í sérstöku fylgifrumvarpi er jafnframt lagt til að til samræmis breytist orðalag um staðla og stöðlun í ýmsum sérlögum sem þar eru talin upp.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa.
Umsögn um frumvarp til laga
um stofnun hlutafélags um Staðlaráð Íslands.
Í frumvarpinu koma ekki fram nægilega skýrar forsendur til að unnt sé að gera sér fyllilega grein fyrir því hvort frumvarpið muni hafa í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. Starfsemi staðladeildar Iðntæknistofnunar Íslands hefur á undanförnum árum verið fjármögnuð með eftirfarandi hætti:
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að gert er ráð fyrir að iðnaðarráðuneytið greiði nýja félaginu þann kostnað sem hlýst af þátttöku Íslands í staðlasamböndunum CEN og CENELEC og kostnað af lágmarksmeðhöndlun evrópskra staðla til að gera þá að íslenskum stöðlum. Ekkert kemur fram um hversu háa fjárhæð sé að ræða, en ráðgert er að iðnaðarráðuneytið geri sérstakan þjónustusamning við hið nýja félag vegna þessa. Ekki verður séð að breyting á rekstrarformi hafi sérstök áhrif á þennan kostnað. Eðlilegt verður að telja að sá hluti ríkisframlags Iðntæknistofnunar, sem áður rann til staðladeildar, falli niður við stofnun hins nýja félags. Að öðru leyti verður ekki annað ráðið af frumvarpinu en að félagið þurfi að fjármagna starfsemi sína með því að selja staðla og þjónustu til opinberra aðila og einkaaðila. Umfang starfseminnar mun því að verulegu leyti ráðast af því hversu vel tekst til við eigin fjáröflun.
Ljóst er að breyting á rekstrarformi mun hafa nokkurn útgjaldaauka í för með sér. Þannig mun hið nýja félag bera ábyrgð á ýmsum útgjöldum sem áður voru annaðhvort hluti af heildarútgjöldum Iðntæknistofnunar eða á ábyrgð ríkissjóðs án þess að þau kæmu sérstaklega fram. Í þessu sambandi má t.d. benda á ýmsar tryggingar vegna starfsmanna, kostnað við bókhald og ýmsa aðra aðkeypta sérfræðiþjónustu, lögfræðiþjónustu o.þ.h.
Breyting á rekstrarforminu hefur í för með sér að ábyrgð ríkisins á starfseminni takmarkast við hlutafé þess. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að ríkið leggi félaginu til eignir staðladeildar Iðntæknistofnunar Íslands en þær eru einkum ýmiss konar búnaður og staðlasafnið. Að öðru leyti er ekki gert ráð fyrir að ríkið leggi félaginu til fé. Fyrirhugað er að leita til innlendra áhuga- og hagsmunaaðila um að gerast hluthafar í félaginu. Reynist ekki vera áhugi fyrir hendi hjá slíkum aðilum kann fjárhagur hins nýja félags að reynast ótraustur nema ríkissjóður leggi fram hlutafé umfram eignir staðladeildar. Um þetta er þó erfitt að fullyrða þar sem engar rekstraráætlanir fyrir hið nýja félag koma fram í athugasemdum með frumvarpinu.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að fastráðnum starfsmönnum staðladeildar Iðntæknistofnunar Íslands skuli boðið sambærilegt starf hjá hinu nýja félagi og því eigi 14. gr. laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, ekki við. Væntanlega er þar átt við biðlaunarétt skv. 1. mgr. téðrar greinar. Hvorki er vikið að lífeyrisréttindum þessara starfsmanna í frumvarpsgreininni né í skýringum með henni. Ráðuneytið telur eðlilegt að í lögum þessum verði ákvæði sem hindra að 2. mgr. 17. gr. laga um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins verði notuð.
Með breytingum samkvæmt frumvarpinu verða rofin tengsl milli starfskjara og lífeyrisréttinda og skuldbindingar munu hlaðast upp vegna lífeyrisréttinda umfram það sem iðgjöld standa undir. Sé ekkert að gert falla þessar skuldbindingar á ríkissjóð. Sem dæmi má taka að maður, sem hefur verið í tvö ár eða lengur í starfi sem lagt er niður, getur haldið áfram að vinna sér inn réttindi á kostnað ríkissjóðs sem svara til um 15% af launum hans ár hvert.
Í 10. gr. segir að iðnaðarráðherra skuli fara með eignarhlut ríkisins í nýja félaginu. Samkvæmt auglýsingu nr. 96/1969, um staðfestingu forseta Íslands á reglugerð um Stjórnarráð Íslands, skal fjármálaráðherra fara með eignir ríkisins, þar á meðal hlutabréf. Telja verður að rétt sé og skylt að fara eftir þessu almenna ákvæði nema sérstakar ástæður séu til að fara eftir undantekningarákvæðum auglýsingarinnar. Lagt er til að greininni verði breytt þannig að fjármálaráðherra verði falið að fara með eignarhlut ríkisins í félaginu en skuli tilnefna í stjórn félagsins að fenginni tillögu iðnaðarráðherra.