Ferill 124. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 124 . mál.
129. Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 40 15. maí 1990, um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins.
(Lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991.)
1. gr.
1. gr. laganna orðist svo:
Stofna skal sjóð er nefnist Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins. Hlutverk Hagræðingarsjóðs er að stuðla að aukinni hagkvæmni í útgerð með því að laga stærð og afkastagetu fiskiskipastólsins að afrakstursgetu nytjastofna sjávar. Í þessu skyni skal sjóðurinn veita styrki til úreldingar skipa enda sé tryggt að í stað hinna úreltu skipa komi ekki ný skip í fiskiskipaflotann eða afkastageta flotans aukist með öðrum hætti.
2. gr.
2. gr. laganna orðist svo:
Stjórn Fiskveiðasjóðs Íslands skal jafnframt annast stjórn Hagræðingarsjóðs sjávarútvegsins.
Fiskveiðasjóður annast reikningshald og rekstur Hagræðingarsjóðs.
Fjárhagur Hagræðingarsjóðs skal aðskilinn fjárhag Fiskveiðasjóðs.
3. gr.
5. gr. laganna orðist svo:
Hagræðingarsjóði skal á hverju fiskveiðiári úthlutað aflaheimildum er nema 12.000 þorskígildum í lestum talið. Skal þessum aflaheimildum skipt á þær botnfisktegundir sem sæta hámarksafla í hlutfalli við leyfðan heildarafla og miðað við þau verðmætahlutföll er ráðherra ákveður. Taka skal tillit til aflaheimilda Hagræðingarsjóðs við ákvörðun aflamarks einstakra skipa.
4. gr.
6. gr. laganna orðist svo:
Hagræðingarsjóður skal við upphaf hvers fiskveiðiárs gefa útgerðum þeirra skipa er aflahlutdeild hafa af botnfisktegundum sem sjóðurinn fær úthlutað skv. 5. gr. kost á að fá framseldar til sín aflaheimildir sjóðsins gegn endurgjaldi. Skal forkaupsrétturinn boðinn útgerðum í hlutfalli við aflahlutdeild hvers skips af þeim tegundum sem sjóðurinn hefur forræði á. Endurgjald skal miðað við almennt gangverð á sams konar heimildum að mati ráðherra. Ráðherra getur með reglugerð ákveðið lágmark þeirra aflaheimilda sem forkaupsréttur samkvæmt þessari málsgrein nær til.
Þær veiðiheimildir, sem forkaupsréttur er ekki nýttur á skv. 1. mgr., skal framselja hæstbjóðanda samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur í reglugerð.
Öllum tekjum Hagræðingarsjóðs af ráðstöfun aflaheimilda samkvæmt þessari grein skal varið til að standa straum af kostnaði við Hafrannsóknastofnunina. Sjóðurinn skal standa stofnuninni jafnharðan skil á innheimtum tekjum.
5. gr.
7. gr. laganna orðist svo:
Úreldingarstyrkur skal vera tiltekið hlutfall af húftryggingarverðmæti fiskiskips að hámarki 30%. Skal ráðherra ákveða styrkhlutfall fyrir upphaf hvers almanaksárs að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins. Úreldingarstyrkur vegna hvers einstaks skips skal þó aldrei vera hærri en 50 m.kr. Sú fjárhæð er grunnfjárhæð sem breytist í sama hlutfalli og gjald til sjóðsins skv. 4. mgr. 4. gr.
Sjóðurinn veitir eingöngu styrki vegna úreldingar þeirra skipa sem gjaldskyld eru skv. 1. mgr. 4. gr. Skal styrkur miðaður við það hlutfall er gilti á því ári er umsókn um styrkinn barst og styrkur reiknaður af húftryggingarverðmæti skips í upphafi þess árs.
Komi í ljós að fjárhagur sjóðsins leyfi ekki greiðslu úreldingarstyrkja skv. 1. mgr. þessarar greinar er ráðherra heimilt að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins að lækka þegar ákveðið styrkhlutfall ársins. Jafnframt er stjórn sjóðsins heimilt að ákveða frestun á greiðslu styrkja ef hún telur að um tímabundinn skort á ráðstöfunarfé sé að ræða.
6. gr.
8. gr. laganna orðist svo:
Skilyrði fyrir veitingu loforðs um styrk vegna úreldingar fiskiskips er að eigandi þess lýsi því yfir að skipið verði tekið af skipaskrá, að réttur til endurnýjunar þess verði ekki nýttur og enn fremur að allar veiðiheimildir skipsins verði varanlega sameinaðar aflaheimildum annarra fiskiskipa.
Óheimilt er að greiða úreldingarstyrk fyrr en fyrir liggur vottorð Siglingamálastofnunar ríkisins um afskráningu skipsins af skipaskrá og yfirlýsing frá sjávarútvegsráðuneytinu um að allar aflaheimildir skipsins hafi varanlega verið sameinaðar aflaheimildum annarra skipa og að fallið hafi verið frá rétti til endurnýjunar skipsins.
7. gr.
9. og 10. gr. laganna falli niður og breytist töluröð annarra greina til samræmis við það. Jafnframt fellur ákvæði til bráðabirgða II niður.
8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.
Á fiskveiðiárinu 1. september 1991 til 31. ágúst 1992 skal þeim aflaheimildum, sem
Hagræðingarsjóður fær til ráðstöfunar skv. 5. gr. laga nr. 40 15. maí 1990, varið til hækkunar á aflamarki einstakra skipa í hlutfalli við aflahlutdeild hvers skips af þeim fisktegundum sem sjóðurinn hefur til umráða.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Á 111. löggjafarþingi var lagt fram frumvarp til laga um Úreldingarsjóð fiskiskipa.
Þetta frumvarp hlaut ekki afgreiðslu á því þingi og því var það endurflutt á 112. löggjafarþingi. Með frumvarpinu var lagt til að stofnaður skyldi sjóður sem hefði það hlutverk að stuðla að fækkun fiskiskipa. Þessu hlutverki skyldi sjóðurinn sinna með tvennum hætti. Í fyrsta lagi skyldi sjóðurinn kaupa fiskiskip með aflaheimildum. Í öðru lagi skyldi sjóðurinn greiða úreldingarstyrki sem gátu numið allt að 10% af húftryggingarverðmæti fiskiskipa.
Við afgreiðslu Alþingis á frumvarpinu vorið 1990 voru gerðar verulegar breytingar á efni þess. Nafni sjóðsins var m.a. breytt í Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins og sjóðnum úthlutað aflaheimildum sem námu allt að 12.000 þorskígildislestum. Þessum aflaheimildum átti sjóðurinn að ráðstafa með tvennum hætti. Í fyrsta lagi skyldi sjóðurinn framselja allt að helmingi þessara aflaheimilda til eflingar fiskvinnslu í byggðarlögum sem standa höllum fæti. Í öðru lagi skyldi sjóðurinn framselja heimildir sínar til einstakra fiskiskipa. Allar tekjur sjóðsins af framsali aflaheimilda áttu að renna til að standa undir fækkun fiskiskipa.
Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I við lög nr. 40/1990, um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins, skyldi sjóðurinn fá úthlutað allt að 8.000 þorskígildislestum á fiskveiðitímabilinu sem hófst 1. janúar 1991 og lauk 31. ágúst 1991. Með lögum nr. 13/1991, um ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum, var sjávarútvegsráðherra veitt heimild til að úthluta aflaheimildum sjóðsins til loðnuskipa. Ráðherra nýtti þessa heimild laganna og var með reglugerð nr. 152/1991 tekin ákvörðun um skiptingu 8.000 þorskígildislesta milli einstakra loðnuskipa. Hagræðingarsjóður fékk því ekki úthlutað aflaheimildum á umræddu fiskveiðitímabili.
Með þessu frumvarpi er lagt til að talsverðar breytingar verði gerðar á lögum um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins. Í fyrsta lagi er lagt til að hlutverk sjóðsins verði einfaldað verulega frá því sem gildandi lög um sjóðinn gera ráð fyrir. Tilgangur þessarar breytingar er að stuðla að raunhæfri fækkun fiskiskipa. Í öðru lagi er lagt til að allar tekjur sjóðsins af framsali aflaheimilda renni til Hafrannsóknastofnunar. Er þetta í samræmi við þá stefnu ríkisstjórnarinnar að láta atvinnuvegina bera í ríkari mæli en nú kostnað af því rannsóknar- og þjónustustarfi sem fram fer í þeirra þágu á vegum ríkisins. Jafnframt er gert ráð fyrir að samfara þessu verði hafrannsóknir efldar og hefur m.a. verið tekin ákvörðun um að hefja umfangsmiklar fjölstofnarannsóknir og rannsóknir á heildarsamhengi lífríkis sjávar.
Samkvæmt gildandi lögum um Hagræðingarsjóð er sjóðnum heimilt að greiða úreldingarstyrki sem nema allt að 10% af húftryggingarmati fiskiskipa. Skilyrði fyrir greiðslu slíkra styrkja er að aflaheimildir þess fiskiskips, sem úrelt er, verði sameinaðar varanlega aflaheimildum annarra fiskiskipa í flotanum. Reynslan hefur sýnt að þetta hlutfall er of lágt því að sjóðnum hefur nánast ekki borist fullgild umsókn um greiðslu styrks. Hafa margir útgerðarmenn frekar kosið að selja endurnýjunarrétt fiskiskipa sem aflaheimildir hafa verið fluttar af eða að halda þeim til veiða á vannýttum tegundum. Þetta mun hins vegar leiða til vaxandi sóknar í þessar tegundir og getur þannig flýtt fyrir að grípa verði til þess að setja hámarksafla á fleiri tegundir en nú er. Þá liggja allmörg fiskiskip bundin við bryggju þar sem ákvörðun hefur ekki verið tekin um hvernig skipin skulu nýtt. Hætt er við að sum þessara skipa muni verða nýtt til stækkunar á nýjum skipum. Með því að hækka þetta hlutfall í allt að 30% af húftryggingarverðmæti er gert ráð fyrir að hægt verði að ná umtalsverðum árangri í að fækka fiskiskipum.
Með frumvarpinu er ekki lagt til að gjald, sem eigendur fiskiskipa 10 brl. og stærri greiða til sjóðsins í samræmi við stærð skipanna, verði hækkað. Árlegar tekjur sjóðsins af þessu gjaldi nema um 80 millj. kr. en eigið fé hans nam 600 millj. kr. 1. september sl. Reynist eftirspurn eftir styrkjum til úreldinga mikil á næstu árum þarf því annaðhvort að hækka iðgjöldin eða lækka það hlutfall af húftryggingarverðmæti sem styrkfjárhæðin miðast við.
Með frumvarpinu er lagt til að heimild sjóðsins til þess að kaupa fiskiskip með aflaheimildum verði felld niður. Reynslan hefur sýnt að umframeftirspurn er eftir fiskiskipum til kaups. Þetta endurspeglast í háu verði á fiskiskipum og hætt er við að samkeppni frá opinberum sjóði geti haft óheppileg áhrif á alla verðmyndun. Þá er vandséð miðað við hið háa verð að kaup á fiskiskipum í því skyni að framselja árlegar aflaheimildir þeirra til að standa undir kaupverðinu fái staðist. Það er því eðlilegt að þessi heimild sjóðsins verði felld úr gildi.
Þá er í frumvarpinu lagt til að það hlutverk sjóðsins að koma til aðstoðar við einstök byggðarlög verði fellt úr gildi. Mun eðlilegra er að Byggðastofnun eða öðrum stjórnvöldum sé falið að grípa til þeirra ráðstafana sem þurfa þykir til að hafa áhrif á byggðaþróun í landinu.
Eins og áður er rakið er gert ráð fyrir að andvirði þeirra 12.000 þorskígildislesta, sem sjóðurinn fær árlega úthlutað, verði varið til Hafrannsóknastofnunar. Meginhluta teknanna verður varið til að standa undir almennum rekstrarkostnaði stofnunarinnar en að hluta verða þessir fjármunir nýttir til að standa undir sérstökum rannsóknarverkefnum sem eru fyrirhuguð. Gert er ráð fyrir að árlegar aflaheimildir sjóðsins verði framseldar til fiskiskipa eftir sömu reglum og eru í gildandi lögum um sjóðinn. Í upphafi hvers fiskveiðiárs verður útgerðum því boðinn forkaupsréttur að aflaheimildum sjóðsins í réttu hlutfalli við aflahlutdeild hvers skips. Nýti útgerð ekki forkaupsrétt verða þær aflaheimildir, sem þannig falla niður, framseldar hæstbjóðanda.
Með þeim breytingum, sem lagðar eru til á lögum nr. 40/1990, um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins, er gert ráð fyrir að hlutverk sjóðsins verði einfaldað verulega frá því sem er. Með hliðsjón af því er lagt til að ekki verði skipuð sérstök stjórn fyrir sjóðinn eins og kveðið er á um í gildandi lögum. Í þess stað er lagt til að stjórn Fiskveiðasjóðs Íslands verði falið að annast veitingu úreldingarstyrkja úr sjóðnum en samkvæmt gildandi lögum um Hagræðingarsjóð annast Fiskveiðasjóður daglegan rekstur sjóðsins.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Hér er kveðið á um að nafn sjóðsins skuli óbreytt, þ.e. Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins. Hins vegar er gerð breyting á hlutverki sjóðsins frá því sem áður var. Hlutverk sjóðsins er nú eingöngu að draga úr afkastagetu fiskiskipaflotans og auka þar með hagkvæmni í útgerð. Heimild sjóðsins til að koma til aðstoðar einstökum byggðarlögum er því felld niður.
Um 2. gr.
Í 1. mgr. er kveðið á um stjórn sjóðsins. Er lagt til að stjórn Fiskveiðasjóðs verði falið að annast stjórn sjóðsins en ekki verði skipuð sérstök stjórn eins og kveðið er á um í gildandi lögum. Þessi breyting þykir eðlileg þar sem gert er ráð fyrir að hlutverk sjóðsins verði einfaldað verulega.
Þá er kveðið á um að sjóðurinn skulu áfram vistaður hjá Fiskveiðasjóði og fjárhagur sjóðsins verði aðskilinn fjárhag Fiskveiðasjóðs.
Um 3. gr.
Samkvæmt þessari grein skal sjóðnum árlega úthlutað 12.000 þorskígildislestum af botnfiski. Lagt er til að aflaheimildir skiptist milli einstakra botnfisktegunda í hlutfalli við leyfðan heildarafla og miðað við verðmætahlutföll milli tegunda sem ráðherra ákveður í upphafi hvers fiskveiðiárs. Áður en leyfilegum heildarafla er skipt á milli einstakra fiskiskipa þarf því að taka tillit til aflaheimilda sjóðsins með sambærilegum hætti og gert er varðandi þann hluta línuafla sem telst utan aflamarks í fjóra mánuði á ári hverju.
Um 4. gr.
Í þessari grein er kveðið á um hvernig aflaheimildum sjóðsins skuli ráðstafað. Er lagt til að útgerðum fiskiskipa, sem hafa aflahlutdeild af þeim tegundum sem sjóðurinn fær úthlutað, verði veittur forkaupsréttur að aflaheimildum sjóðsins. Forkaupsrétturinn verður boðinn í upphafi hvers fiskveiðiárs í hlutfalli við aflahlutdeild hvers fiskiskips af þeim tegundum sem sjóðurinn hefur forræði á. Verðið skal ákveðið af ráðherra og miðast við gangverð sambærilegra heimilda. Er gert ráð fyrir að framkvæmd þessara atriða verði í samráði við sjávarútvegsráðuneytið og að forkaupsrétturinn verði boðinn um leið og ráðuneytið sendir út tilkynningar um aflaheimildir við upphaf hvers fiskveiðiárs.
Þær aflaheimildir, sem forkaupsréttur er ekki nýttur á, skulu framseldar hæstbjóðanda. Er gert ráð fyrir að stjórn sjóðsins verði falið að annast útboð þeirra aflaheimilda samkvæmt reglum sem ráðherra setur.
Öllum tekjum Hagræðingarsjóðs af ráðstöfun aflaheimilda skal varið til að standa straum af kostnaði við Hafrannsóknastofnunina. Er hér um breytingu að ræða frá gildandi lögum en samkvæmt þeim skal tekjum sjóðsins af ráðstöfun aflaheimilda varið til fækkunar fiskiskipa.
Um 5. gr.
Til að minnka afkastagetu fiskiskipaflotans skal sjóðurinn greiða styrki til úreldingar fiskiskipa sem nema allt að 30% af húftryggingarverðmæti þess skips sem úrelda á. Er lagt til að ráðherra ákveði, að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins, fyrir upphaf hvers almanaksárs hve háu hlutfalli af húftryggingarverðmæti fiskiskips styrkurinn nemur. Það ræðst fyrst og fremst af fjárhagsstöðu sjóðsins og áætlunum um úreldingu skipa hversu hátt þetta hlutfall verður. Þá er lagt til að sett verði 50 m.kr. hámark á þann styrk sem greiða má vegna úreldingar hvers einstaks skips. Er það gert til að beina úreldingu frekar að eldri og verðminni skipum og draga úr hættu á því að einstakar úreldingar geti kollvarpað fjárhagsáætlunum sjóðsins. Í þessu sambandi má einnig benda á að iðgjöld til sjóðsins sæta tilteknu hámarki. Í 2. mgr. er kveðið á um til hvaða fiskiskipa heimilt er að greiða styrki til úreldingar. Er einungis heimilt að greiða styrki vegna þeirra skipa sem gjaldskyld eru til sjóðsins. Jafnframt er kveðið á um að við greiðslu úreldingarstyrkja skuli miða við húftryggingarverðmæti fiskiskipa eins og það var í upphafi þess almanaksárs sem umsókn barst.
Þar sem ekki er gert ráð fyrir að sjóðnum verði heimilt að taka lán er í 3. mgr. ákvæði þess efnis að hægt sé að lækka styrkhlutfallið innan ársins. Þá er stjórn sjóðsins enn fremur heimilt að fresta greiðslu styrkja ef hún telur að um tímabundinn skort á ráðstöfunarfé sé að ræða.
Um 6. gr.
Í þessari grein er kveðið á um þau skilyrði sem eigandi fiskiskips sem sækir um styrk til úreldingar þarf að uppfylla áður en stjórn sjóðsins er heimilt að veita loforð um styrk. Í fyrsta lagi þarf eigandi skips að lýsa því yfir að skipið verði tekið af skipaskrá. Í öðru lagi að réttur til endurnýjunar þess verði ekki nýttur. Í þriðja lagi að allar aflaheimildir skipsins verði sameinaðar varanlega aflaheimildum annarra skipa. Með þessu móti er tryggt að greiðsla úreldingarstyrks úr sjóðnum mun í öllum tilvikum leiða til að dragi úr afkastagetu fiskiskipaflotans. Þá er í 2. mgr. kveðið á um að stjórn sjóðsins sé óheimilt að greiða út styrk fyrr en öll þau skilyrði, sem rakin eru í 1. mgr., hafa verið uppfyllt.
Um 7. gr.
Þessa grein leiðir af breyttu hlutverki sjóðsins og þarfnast því ekki frekari skýringa.
Um 8. gr.
Þessi grein þarfnast ekki skýringa. Rétt er þó að taka fram að ákvæði 3. gr. frumvarpsins koma ekki til framkvæmda fyrr en við úthlutun aflaheimilda í upphafi þess fiskveiðiárs sem hefst 1. september 1992. Þær heimildir, sem sjóðurinn fær til ráðstöfunar á yfirstandandi fiskveiðiári, eru því skv. 5. gr. laga nr. 40/1990. Hér er um að ræða samtals rúmlega 11.000 þorskígildislestir. Um ráðstöfun þeirra er gerð tillaga í ákvæði til bráðabirgða.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Hér er kveðið á um ráðstöfun aflaheimilda sjóðsins á fiskveiðiárinu sem hófst þann
1. september 1991 og lýkur 31. ágúst 1992. Lagt er til að öllum aflaheimildum sjóðsins á þessu fiskveiðiári verði varið til hækkunar á aflamarki einstakra fiskiskipa í samræmi við aflahlutdeild þeirra af þeim tegundum sem sjóðurinn hefur til umráða. Það verður því fyrst við upphaf þess fiskveiðiárs sem hefst 1. september 1992 sem eigendum fiskiskipa verður boðinn forkaupsréttur að aflaheimildum sjóðsins samkvæmt ákvæðum 4. gr.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins.
Með frumvarpinu eru gerðar tvenns konar breytingar á lögum nr. 40/1990, um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins. Annars vegar eru breytt ákvæði um ráðstöfun aflaheimilda sjóðsins. Hins vegar eru breytt ákvæði um styrkveitingar sjóðsins til úreldingar fiskiskipa.
Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1992 er gert ráð fyrir að afla Hafrannsóknastofnun 525 m.kr. með sérstökum tekjum. Samkvæmt frumvarpinu hyggst sjávarútvegsráðuneytið ná því marki með framsali aflaheimilda Hagræðingarsjóðs sjávarútvegsins til eins árs í senn gegn endurgjaldi, en sjóðurinn fær úthlutað 12.000 þorskígildislestir á ári hverju. Til þess að ná áðurnefndri fjárhæð þyrfti meðalverð hvers kílós, sem sjóðurinn framselur, að vera tæpar 44 kr. Þetta mun vera nokkuð umfram gangverð slíkra heimilda í dag. Þar sem hér er um mjög mikið magn að ræða er óvíst hver áhrif sölunnar verða á markaðinn. Ef ekki tekst að afla áðurnefndra tekna með þessu móti verður að leita annarra leiða til að ná endum saman í rekstri Hafrannsóknastofnunar á árinu 1992.
Breytingar frumvarpsins varðandi styrki til úreldingar fiskiskipa hafa ekki áhrif á fjárhag ríkissjóðs þar sem þeir eru fjármagnaðir með sérstöku gjaldi á fiskiskip en ekki með framlagi úr ríkissjóði.