Ferill 152. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 152 . mál.


164. Tillaga til þingsályktunar



um eflingu Akureyrar og Eyjafjarðarsvæðisins sem miðstöðvar fræðslu og rannsókna á sviði sjávarútvegs.

Flm.: Steingrímur J. Sigfússon, Guðmundur Bjarnason, Sigbjörn Gunnarsson,


Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Jón Kristjánsson, Össur Skarphéðinsson,


Kristín Ástgeirsdóttir, Jóhann Ársælsson.



    Alþingi ályktar að á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu skuli byggja upp miðstöð fræðslu og rannsókna á sviði sjávarútvegs.
     Alþingi felur því ríkisstjórninni að láta gera tímasetta áætlun sem miði að uppbyggingu sjávarútvegsbrautar Háskólans á Akureyri og sjávarútvegsbrautarinnar á Dalvík og eflingu hvers kyns rannsókna- og þróunarstarfsemi á svæðinu.

Greinargerð.


         Tillaga þessi var flutt á 113. löggjafarþingi af Birni Val Gíslasyni en varð þá ekki útrædd. Hún er nú endurflutt óbreytt, enda er gildi hennar hið sama og áður. Nú fara fram miklar umræður um sjávarútvegs- og byggðamál og liggur því beint við að Alþingi taki til umfjöllunar og afgreiðslu þær hugmyndir sem ræddar hafa verið um uppbyggingu og eflingu sjávarútvegsmiðsvæðis við Eyjafjörð. Að baki liggur sú hugmynd að þannig megi slá a.m.k. tvær flugur í einu höggi, þ.e. að sækja fram á sviði sjávarútvegs til aukinnar þekkingar og þróunar í þessari höfuðatvinnugrein landsmanna og efla byggð og styrkja uppbyggingu háskólanáms og rannsókna í miðstöð slíkrar starfsemi á landsbyggðinni. Rétt er að taka fram að þegar leitað var eftir meðflutningsmönnum meðal þingmanna Sjálfstæðisflokksins kom í ljós að tveir þeirra voru með skylt mál í undirbúningi. Eftirfarandi greinargerð fylgdi tillögunni þegar hún var flutt í hið fyrra sinn.
    Fiskveiðar og vinnsla hafa lengi verið ein mikilvægasta undirstaða atvinnulífs við Eyjafjörð eins og annars staðar á landinu. Hvergi hefur þó vöxtur sjávarútvegsfyrirtækja orðið meiri á síðustu árum en á þessu svæði þótt ástand sjávar út af Norðurlandi hafi verið mjög óhagstætt um árabil. Fjölbreytt útgerð báta og skipa af ýmsum stærðum hefur treyst útgerðina við Eyjafjörð og stuðlað að meiri fjölbreytni og sérhæfingu fiskvinnslufyrirtækja en víðast hvar annars staðar þekkist.
     Frá Eyjafirði er gerður út öflugur togarafloti sem telur yfir 20 skip og hefur vaxið ört á undanförnum árum. Einnig er gerður þaðan út stór floti nóta- og rækjuskipa, auk mikils fjölda annarra báta. Sameiginlega hefur þessi floti allur náð að skapa mikla fjölbreytni í vinnslu sjávarafurða á Eyjafjarðarsvæðinu.
     Í kjölfar þess stíganda, sem hefur verið í útgerð og fiskvinnslu í Eyjafirði, hefur komið ýmis þjónusta tengd sjávarútveginum beint eða óbeint. Öflug þjónustufyrirtæki hafa náð að skjóta þar rótum og hafa flest hver fest sig í sessi. Þekktasta þjónustufyrirtæki sjávarútvegsins í Eyjafirði er auðvitað Slippstöðin hf. á Akureyri sem í áratugi hefur verið leiðandi í skipasmíðum hér á landi og auk þess séð um viðhald og endurbætur á stærstum hluta stórskipaflota landsins. Einnig skulu nefnd fyrirtækin Sæplast hf. og Fiskmiðlun Norðurlands hf. sem hvort um sig hafa skapað sér nafn í þjónustu við sjávarútveginn. Öll þessi fyrirtæki auk margra ónefndra hafa náð að festa sig í sessi og eru viðurkennd hér heima og erlendis og njóta virðingar fyrir með mikla þekkingu á fiskveiðum og vinnslu.
     Fyrir nokkrum árum hófst kennsla í skipstjórn á Dalvík. Í fyrstunni var aðeins um að ræða námskeiðahald og undirbúningskennslu fyrir frekara nám annars staðar. Nú er hins vegar full kennsla fyrir þá sem vilja læra til skipsstjórnar á fiskiskipum. Nú eru 30 nemendur við stýrimannaskólann á Dalvík og hefur aðsókn að skólanum aukist jafnt og þétt síðustu árin.
     Fiskvinnsluskóli er einnig nýtekinn til starfa á Dalvík og er eini skóli sinnar tegundar utan Reykjavíkursvæðisins. Skólinn hefur á þeim stutta tíma sem hann hefur starfað sýnt það og sannað að löngu var orðið tímabært að bjóða upp á nám í fiskvinnslu á landsbyggðinni. Kennt er við skólann á öllum stigum fiskvinnslu og verða fyrstu fullnuma nemendurnir útskrifaðir næsta vor.
     Nýhafin er kennsla við Háskólann á Akureyri í sjávarútvegsfræðum og eru miklar vonir bundnar við þessa deild Háskólans meðal þeirra sem starfa við sjávarútveginn í landinu. Markmið sjávarútvegsdeildar Háskólans á Akureyri er að mennta einstaklinga í öllum undirstöðuatriðum íslensks sjávarútvegs og þjálfa þá í beitingu faglegra vinnubragða við stefnumörkun, ákvarðanatöku og stjórnun í greininni. Er þetta í fyrsta sinn sem kennsla í sjávarútvegsfræðum fer fram hér á landi.
     Jafnframt er nú verið að opna útibú Hafrannsóknastofnunar á Akureyri auk þess sem Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er þar fyrir. Ljóst er að samstarf þessara stofnana og annarra ókominna fyrirtækja í sjávarútvegi verður í framtíðinni að vera mjög náið. Þess vegna er mjög áríðandi að efla rannsóknastofnanir sjávarútvegsins í Eyjafirði og beina áframhaldandi uppbyggingu slíkra stofnana á þetta svæði.
     Eins og hér hefur komið fram er fjölbreytt atvinnulíf í sjávarútvegi við Eyjafjörð og töluvert um nýjungar á mörgum sviðum þessarar atvinnugreinar. Það hlýtur því að vera freistandi fyrir stjórnvöld, sem á annað borð kenna sig við byggðastefnu, að vera af fullum krafti með í þessari uppbyggingu og nýta sér alla þá reynslu og þekkingu sem fyrir er á þessu svæði í sjávarútvegi.
     Það er þjóðhagslega mikilvægt að gott samstarf sé á milli stofnana ríkisins á sviði sjávarútvegs og fyrirtækja í greininni. Þetta er ekki síst mikilvægt nú í þeirri umræðu sem er um Ísland og Evrópubandalagið. Þess vegna er okkur nauðsynlegt að nýta okkur þá þekkingu og reynslu sem til er í landinu á þáttum sjávarútvegsins svo að við náum að verjast ásókn erlendra þjóða í þessa atvinnugrein og standast harðnandi samkeppni.
     Þessi tillaga felur það í sér að á Akureyri og í Eyjafirði verði í framtíðinni höfuðstöðvar fræðslu og rannsókna á sviði sjávarútvegs og framtíðaruppbygging á vegum ríkisins hvað þetta varðar fari hér eftir fram í Eyjafirði. Það er mjög mikilvægt að slík miðstöð sjávarútvegsins verði byggð upp þar sem þekking og reynsla er og allar ytri aðstæður sem með þarf.
     Því er lagt til að ríkisstjórnin geri nú sem fyrst áætlun um uppbyggingu slíkrar miðstöðvar sjávarútvegsins í Eyjafirði og verði sú áætlun lögð fyrir Alþingi fyrir lok þessa kjörtímabils.




Fylgiskjal I.


Háskólinn á Akureyri:

Sjávarútvegsdeild.


    Kennsla í sjávarútvegsfræði hefst í sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri í janúar 1990.

Markmið .
    Markmið náms í sjávarútvegsfræði er að mennta einstaklinga í öllum undirstöðuatriðum íslensks sjávarútvegs og þjálfa þá í beitingu faglegra vinnubragða við stefnumörkun, ákvarðanatöku og stjórnun í greininni.
Inntökuskilyrði.
    Inntökuskilyrði í sjávarútvegsdeild eru stúdentspróf og minnst eins árs starfsreynsla í sjávarútvegi. Umsækjendur með langa starfsreynslu, en aðra menntun en stúdentspróf, eiga þó kost á inngöngu. Slíkar umsóknir verða metnar sérstaklega í hvert sinn.
Námið .
    Sjávarútvegsfræðin verður til að byrja með 144 námseiningar, hver eining telst ein vinnuvika. Námsárið skiptist í tvær annir 3. janúar – 20. maí og 15. ágúst – 20. desember.
    Sjávarútvegsfræðin er þverfaglegt nám sem skiptist í fimm meginhluta:
    Líffræði/fiskifræði.
    Efnafræði/matvælafræði.
    Rekstrarhagfræði/fiskihagfræði.
    Tæknigreinar.
    Félags - og skipulagsmál sjávarútvegs.
Efnafræðihluti .
    Efnafræðihlutinn byrjar með almennri efnafræði. Síðan taka við lífræn - og lífefnafræði, þá örverufræði og loks efnafræði fiska. Námið er byggt upp frá undirstöðu efnafræðinnar og endar á matvælafræði. Markmið efnafræðigreina er að byggja upp þekkingu á nútíma matvælaiðnaði með fisk í aðalhlutverki. Starfsemi efnafræðihlutans mun verða tengd Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Rannsóknastofur fyrir kennslu og vinnuaðstöðu starfsmanna verða í viðbyggingu við núverandi húsnæði Háskólans á Akureyri.
Viðskipta - og hagfræðigreinar.
    Markmið viðskipta - og hagfræðigreina er að kenna meðferð fjármuna, rekstur fyrirtækja, markaðssetningu og hagkvæmni í nýtingu auðlinda (fiskstofna).
Félags - og skipulagsgreinar.
    Markmið kennslu í félags - og skipulagsgreinum er að upplýsa nemendur um innra skipulag sjávarútvegsins og hlutverk sjávarútvegsins í samfélaginu. Einnig verða kenndar nútímaaðferðir við stjórnun og samskipti.
Tæknigreinar .
    Kennd verða undirstöðuatriði í skipatækni, veiðitækni og vinnslutækni. Markmið kennslunnar er að nemendur verði færir um að leggja hlutlægt mat á mismunandi tæknilegar lausnir fyrir sjávarútveginn.
Líffræði/fiskifræði .
    Kennd verður sjávarvistfræði og líffræði. Náminu lýkur með fiskifræði þar sem megináhersla verður lögð á stofnstærðarreikninga og nýtingu fiskstofna. Gert er ráð fyrir verulegu samstarfi við Hafrannsóknastofnun í þessum greinum, stór hluti kennslunnar verður keyptur sem stundakennsla þaðan.
Námsgreinar skiptast á annir sem hér segir:
    1. ár. Vorönn: stærðfræði, tölfræði, tölvufræði, sjávarútvegskynning.     
                        Haustönn: efnafræði, lífræn – og lífefnafræði, reikningshald.
    2. ár. Vorönn: örverufræði, rekstrarhagfræði, sjávarlíffræði.
                        Haustönn: skipatækni, efnafræði fiska, skipulag sjávarútvegs, samskiptatækni.
    3. ár. Vorönn: fiskifræði, framleiðslutækni, fjármál og fjárfesting.
                       Haustönn: markaðsfræði, stjórnun og samskipti, veiðitækni, opinber                                                  stjórnsýsla.
    4. ár. Vorönn: fiskihagfræði, félagsfræði sjávarútvegs, rekstur fyrirtækja.
                        Haustönn: sjálfvalið lokaverkefni.


Fylgiskjal II.


Um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum.


Úr lögum nr. 112/1984. — 5. og 6. gr. III. kafla.


    Eftirtalin stig skipstjórnarnáms við Stýrimannaskólann í Reykjavík, Stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum og sjávarútvegsbrautina á Dalvík eru grundvöllur atvinnuréttinda stýrimanna sem hér segir:
   I.      Á fiskiskipum:
         
    
    1. stig: 200 rúmlesta skip og minni í innanlandssiglingum.
         
    
    2. stig: Ótakmörkuð stærð og farsvið ótakmarkað.
  II.      Á flutningaskipum, farþegaskipum og varðskipum:
         
    
    2. stig: 1. 400 rúmlesta skip og minni, farsvið ótakmarkað.
                                  2. Undirstýrimaður á skipum af ótakmarkaðir stærð,
                       farsvið ótakmarkað.
             
    
 3. stig: Ótakmörkuð stærð og farsvið ótakmarkað.
 III.      Á öðrum skipum:
         
    
    1. stig: 200 rúmlesta skip og minni í innanlandssiglingum.
             
    
    2. stig: 400 rúmlesta skip og minni og farsvið ótakmarkað.
             
    
    3. stig: Ótakmörkuð stærð og farsvið ótakmarkað.

     Atvinnuréttindi stýrimanna eru bundin eftirfarandi skilyrðum um siglingatíma:
     Siglingatími telst sá tími er stýrimannsefni starfar á skipi sem er í förum og þar sem viðkomandi fær undirstöðuþekkingu í störfum á þilfari og í brú, stjórn manna og forsjá. Af siglingatíma verður stýrimannsefni að hafa gengið sjóvaktir a.m.k. 6 mánuði í brú undir umsjón skipstjórnarmanns.
     Siglingatíma skal sanna með sjóferðabók, innlendri eða útlendri, eða vottorði frá lögskráningarstjóra. Ef skip er lagt upp án þess að lögskráð sé úr skipsrúmi skal þess getið í sjóferðabók. Liggi skip um kyrrt með þessum hætti lengur en lögskráningartími hlutaðeigandi stýrimannsefnis skal sá sem umfram er eigi reiknast til siglingatíma.
     Af óskilgreindum siglingatíma mega 6 mánuðir vera við önnur störf en skipstjóra-, stýrimanns- eða hásetastörf. Heimilt er einnig að meta eftirfarandi nám eða starf til óskilgreinds siglingatíma: Eins vetrar nám í sjómannafræðum framhaldsskóla, samkvæmt námsskrá menntamálaráðuneytisins, jafngildi siglingatíma í 3 mánuði . Tveggja mánaða starf á viðurkenndu veiðarfæraverkstæði og tengd störf jafngilda eins mánaðar siglingatíma á fiskiskipi. Nám í verklegri sjómennsku, nýrri verktækni og notkun öryggis- og björgunarbúnaðar á námskeiðum eða í farskóla, sem Slysavarnafélag Íslands eða samtök sjómanna og útgerðarmanna beita sér fyrir, má meta sem þrefaldan siglingatíma þó aldrei meira en einn mánuð. Ofangreind störf og/eða nám skulu þó aldrei metin til lengri siglingatíma en 6 mánaða í heildarsiglingatíma stýrimannsefnis . Óskilgreindur siglingatími, sem stýrimannsefni ávinnur sér við störf í landi, skal staðfestur af tveimur trúverðugum mönnum.
    Skip í förum er skip sem siglir utan hafna, fljóta og vatna.
    Á fiskiskipum:
         
    
     Réttindi í innanlandssiglingum á 200 rúmlesta skipum:
                    24 mánuðir og af þeim tíma a.m.k. 12 mánuði háseti á fiskiskipi sem er yfir 30 rúmlestir að stærð. Heimilt er að af þessum tíma séu 6 mánuðir á trillu sem er undir 12 rúmlestum að stærð og sé það vottað af tveimur trúverðum mönnum.
         
    
     Ótakmörkuð réttindi:
                    27 mánuðir og af þeim tíma a.m.k. 12 mánuði háseti á fiskiskipi sem er yfir 100 rúmlestir að stærð eða hafa réttindi til að vera stýrimaður á flutningaskipi, farþegaskipi eða varðskipi og að auki a.m.k. 6 mánuði háseti á fiskiskipi sem er yfir 100 rúmlestir að stærð.
     Á flutningaskipum, farþegaskipum og varðskipum:
         
    
          Réttindi á 400 rúmlesta skipum:
                         36 mánuðir og af þeim tíma a.m.k. 18 mánuði háseti á flutningaskipi, farþegaskipi eða varðskipi sem er yfir 100 rúmlestir að stærð eða hafa réttindi sem stýrimaður á fiskiskipi sem er yfir 200 rúmlestir að stærð og að auki a.m.k. 9 mánuði háseti á flutningaskipi, farþegaskipi eða varðskipi sem er yfir 100 rúmlestir.
                        Ótakmörkuð undirstýrimannsréttindi:
                         27 mánuðir og af þeim tíma a.m.k. 15 mánuði háseti á flutningaskipi, farþegaskipi eða varðskipi sem er yfir 100 rúmlestir að stærð eða hafa réttindi sem stýrimaður á fiskiskipi sem er yfir 200 rúmlestir að stærð og að auki a.m.k. 6 mánuði háseti á flutningaskipi, farþegaskipi eða varðskipi sem er yfir 100 rúmlestir að stærð.
         
    
     Ótakmörkuð réttindi:
                    36 mánuði og af þeim tíma a.m.k. 18 mánuði háseti á flutningaskipi, farþegaskipi eða varðskipi sem er yfir 100 rúmlestir að stærð eða hafa réttindi til að vera stýrimaður á fiskiskipi sem er yfir 200 rúmlestir að stærð og auk þess a.m.k. 12 mánuði háseti á flutningaskipi, farþegaskipi eða varðskipi sem er yfir 100 rúmlestir að stærð.
     Á öðrum skipum:
         
    
     Réttindi í innanlandssiglingum á 200 rúmlesta skipum:
                    24 mánuðir og af þeim tíma a.m.k. 12 mánuði háseti á skipi yfir 30 rúmlestir að stærð.
         
    
     Réttindi á 400 rúmlesta skipum og ótakmörkuð undirstýrimannsréttindi:
                    27 mánuðir og af þeim tíma a.m.k. 12 mánuði háseti á skipi sem er yfir 100 rúmlestir að stærð.
         
    
     Ótakmörkuð réttindi:
                    36 mánuðir og af þeim tíma a.m.k. 18 mánuðir háseti á skipi sem er yfir 100 rúmlestir að stærð.

    Ath.: Með væntanlegri aðild að alþjóðasamþykkt um menntun, þjálfun, skilríki og vaktstöðu sjómanna (STCW — 1978) má búast við breytingu á lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna til samræmis við þessa samþykkt.
    Skipstjórnarnámið veiti þá eftirtalin réttindi til yfir- og undirstýrimanna:
1. stigið:      Til innanlandssiglinga á fiskiskip og önnur skip sem eru 200 rúmlestir eða minni.
2. stigið:     1. Réttindi yfir- og undirstýrimanna á fiskiskip af hvaða stærð sem er og far    svið ótakmarkað.
                        2. Réttindi yfirstýrimanns á farskip og önnur skip 200 rúmlestir og minni í      innanlandssiglingum.
                        3. Réttindi yfirstýrimanns á farskip og sérhæfð skip af hvaða stærð sem er og     farsvið ótakmarkað.
    Önnur skip er samkvæmt lögum um atvinnuréttindi hvert það skip sem skrásett er til verkefna annarra en fiskiskip, flutningaskip, farþegaskip og varðskip eru skráð undir.
    Réttindi skipstjóra eru óbreytt, en samkvæmt STCW-samþykktinni á yfirstýrimaður að geta tekið að sér ábyrgð skipstjóra hvenær sem þurfa þykir.
    Menntun yfirmanns og skipstjóra verður því að vera hin sama til réttinda á mismunandi gerðir skipa.


Fylgiskjal III.


Almennar upplýsingar um fiskvinnsludeild.


    Hlutverk fiskvinnsludeildarinnar er að veita fræðslu í vinnslu sjávarafla. Námið er sniðið að mestu eftir Fiskvinnsluskólanum í Hafnarfirði og útskrifar fiskiðnaðarmenn. Kennsla deildarinnar miðar að því að fiskiðnaðarmenn hafi öðlast nægilega undirstöðuþekkingu, bóklega og verklega, til þess að geta annast almenna verkstjórn, gæðaflokkun, einfalda vinnuhagræðingu og stjórnun. Náminu er skipt í bóklegt og verklegt skólanám og starfsþjálfun á vinnustöðum.
    Til að öðlast starfsréttindi sem fiskiðnaðarmaður skal nemandi hafa staðist próf upp úr fiskvinnsludeildinni og auk þess hafa lokið 36 vikna skipulagðri starfsþjálfun á vinnustöðum frá því að hann innritaðist í skólann.

Inntökuskilyrði.


     Nemandi, sem lokið hefur námi í grunnskóla eða hlotið aðra jafngilda menntun, hefur rétt til að hefja nám í fiskvinnsludeildinni.
     Nemendur, sem hefja nám á 3. önn, skulu hafa lokið átta vikna starfsþjálfun hjá viðurkenndum fiskvinnslufyrirtækjum. Þó skal tekið fram að æskilegra er að nemandi hafi starfað mun lengur við fiskvinnslu.


Fylgiskjal IV.

Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins.


Markmið Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins eru:
—      að afla þekkingar sem fiskiðnaður og tengdar greinar matvælaiðnaðar geta hagnýtt,
—      að hafa með höndum fræðslu og upplýsingamiðlun um nýjungar í fiskiðnaði,
—      að veita fiskiðnaðinum virka og skjóta sérfræðiþjónustu í hæsta gæðaflokki,
—      að efla traust á íslenskum sjávarafurðum með rannsóknum.
Leiðir:
Rannsóknir.
—      Stofnunin stundar hverjar þær rannsóknir sem falla að faglegum grunni hennar og efla það starf sem henni er ætlað.
—      Við val á rannsóknaverkefnum er miðað við að niðurstöður geti fyrirsjáanlega orðið hagnýtar og gefið arð.
—      Rannsóknir fyrir eða í samvinnu við aðila fiskiðnaðarins njóta að öðru jöfnu forgangs, enda kemur slíkt samstarf niðurstöðum best til skila.
Þjónusta.
—      Stofnunin sinnir lögboðnu eftirliti og mælingum sem henni er falið, svo og öðrum opinberum skyldum.
—      Áhersla er lögð á hagkvæma, skjóta og góða þjónustu í samræmi við þarfir notenda án þess að fórna faglegum skyldum.
Kynning og fræðsla.
—      Stofnunin stundar kynningar - og fræðslustarf um þá þætti sem ákvarða gæði, geymsluþol og vinnslu sjávarafla.
—      Verkefni, sem unnið er að hverju sinni, eru kynnt með áherslu á árangur og tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf.
—      Námskeið um sérhæfð efni eru haldin á vegum stofnunarinnar. Auk þess leggur stofnunin til kennsluaðstöðu í matvælafræðum og skyldum greinum.
Fagleg þekking.
—      Með verkefnavali og mannaráðningum byggir stofnunin upp þekkingargrunn á sérstökum áherslusviðum sem mikilvæg eru fyrir framþróun fiskiðnaðarins á hverjum tíma.
—      Stofnunin veitir starfsmönnum sínum sem víðtækasta reynslu og þekkingu með virkri verkefnastjórnun og sérmenntun.
—      Stofnunin vinnur sem heild að lausn verkefna og starfsmenn miðla hver öðrum af þekkingu sinni.
Gæði rannsókna og þjónustumælinga.
—      Lögð er áhersla á að rannsóknir stofnunarinnar standist alþjóðlegar kröfur og niðurstöður séu hæfar til birtingar í viðurkenndum fagtímaritum.
—      Allar mælingar stofnunarinnar skulu gerðar samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum aðferðum eða aðferðum sem stofnunin hefur sannreynt og framkvæmdar í tækjabúnaði sem sannarlega má treysta.