Ferill 154. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 154 . mál.
166. Tillaga til þingsályktunar
um að enska verði kennd sem fyrsta erlenda tungumálið í grunnskóla.
Flm.: Ingi Björn Albertsson.
Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að breyta aðalnámsskrá þannig að enska verði kennd sem fyrsta erlenda tungumálið í grunnskóla.
Greinargerð.
Um langan aldur hefur danska verið fyrsta erlenda tungumálið sem börn og unglingar hafa lært í skólum. Hvílir þessi hefð m.a. á sögulegum grunni. Í 42. gr. laga um grunnskóla, nr. 63/1974, með síðari breytingum, er fjallað um efni aðalnámsskrár og í h-lið greinarinnar segir að sett skuli ákvæði í aðalnámsskrá um „kennslu í erlendum tungumálum, og séu forsendur fyrir vali þeirra annars vegar að varðveita tengslin við uppruna þjóðarinnar og norræna menningu og hins vegar að opna Íslendingum leið til samskipta við sem flestar þjóðir“.
Í ljósi þess að enska nýtur sífellt meiri viðurkenningar sem aðaltungumálið á alþjóðlegum vettvangi telur flutningsmaður rétt að leggja meiri rækt við enskukennslu í skólum þannig að enska verði fyrsta erlenda tungumálið sem kennt er börnum á grunnskólastigi. Skilar það nám sér almennt mun betur sem veganesti fyrir framtíðina en svo rík áhersla á nám í Norðurlandatungumálum. Því er lagt til að Alþingi álykti um að fela menntamálaráðherra að breyta aðalnámsskrá í þessa veru.