Ferill 163. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 163 . mál.
175. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 36 5. maí 1986.
Flm.: Steingrímur Hermannsson, Ólafur Ragnar Grímsson.
1. gr.
Við lögin bætist svohljóðandi ákvæði til bráðabirgða:
Þrátt fyrir ákvæði 9. gr. skal Seðlabankinn tryggja að raunvextir útlána innlánsstofnana verði á árinu 1992 eigi hærri en að jafnaði í helstu viðskiptalöndum Íslands.
Seðlabankinn skal jafnframt gera ráðstafanir til þess að ávöxtun verðbréfasjóða og annarra peningastofnana verði í samræmi við þá hámarksvexti sem bankinn ákveður.
Þá skal Seðlabankinn gera tillögu til ríkisstjórnarinnar um hámarksvexti af ríkistryggðum skuldabréfum og stefnu í peningamálum sem samræmist ákvörðun bankans.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Níunda grein laga um Seðlabanka Íslands hljóðar svo:
„Seðlabankinn ákveður vexti af innlánum við bankann og af lánum sem hann veitir.
Seðlabankinn getur að fengnu samþykki ráðherra bundið vaxtaákvarðanir innlánsstofnana takmörkunum til að tryggja að raunvextir útlána innlánsstofnana verði eigi hærri en þeir eru að jafnaði í helstu viðskiptalöndum Íslands, svo og til að draga úr óhæfilegum vaxtamun milli inn- og útlána.
Ákvarðanir Seðlabankans skv. 2. mgr. skulu birtar í Lögbirtingablaði.“
Þrátt fyrir ofangreind ákvæði hafa raunvextir hér á landi undanfarin ár verið töluvert hærri en í helstu viðskiptalöndum Íslands. Samkvæmt skýrslu Seðlabankans frá 30. janúar 1991 leit þessi samanburður þannig út:
Tafla 1.
Vextir af skammtímalánum fyrirtækja.
(Meðaltal raunvaxta.)
1987
1988
1989
1990
Sjöveldin
5
,6
4
,5
5
,8
5
,4
Norðurlönd
7
,8
7
,6
7
,8
8
,3
Önnur Evrópulönd
8
,2
5
,9
6
,7
7
,9
Viðskiptavog alls
6
,4
5
,3
6
,3
6
,2
Ísland
Ísland
Óverðtryggð skuldabréf
4
,7
11
,8
4
,7
9
,1
Verðtryggð skuldabréf
7
,7
9
,2
6
,0
8
,0
Samkvæmt tímaritinu „The Economist“ frá 16. til 22. nóvember 1991 og vaxtatöflu Morgunblaðsins frá 22. sama mánaðar eru kjörvextir og verðbólga í nokkrum löndum nú sem hér segir:
Tafla 2.

Kjörvextir útlána viðskiptabanka á Íslandi
og í nokkrum viðskiptalöndum.
Hundraðshlutar
Vextir
Verðbólga 1)
Raunvextir
Frakkland
10
,0
3
,3
6
,5
Þýskaland
11
,5
4
,0
7
,2
Holland
11
,25
8
,1
2
,9
Japan
7
,0
0
,0
7
,0
Spánn
16
,0
7
,0
8
,4
Bretland
11
,5
1
,8
9
,5
Bandaríkin
7
,5
3
,0
4
,4
Ísland, óverðtryggt
16
,1
1
,5
14
,3
verðtryggt 8 ,3
verðtryggt, meðalvextir 10 ,0
1) Verðbólga síðustu þrjá mánuði umreiknað til árshækkunar. Fyrir Ísland er notuð lánskjaravísitala.
Með tilvísun til ákvæðis 9. gr. laga um Seðlabanka Íslands virðist eðlilegast að bera vexti hér á landi saman við vexti í öðrum löndum með viðskiptavog. Af töflu 1 sést að samkvæmt því hafa raunvextir hér verið hærri öll árin frá 1987 nema árið 1989.
Á þessu ári hafa meðalraunvextir af óverðtryggðum útlánum hækkað gífurlega, úr 9,1 af hundraði í 15,7 af hundraði nú. Sama er um verðtryggð lán, þar hafa meðalvextir af skammtímalánum hækkað úr 8,0 af hundraði í 10,0 af hundraði. Eins og fram kemur í töflu 2 eru þetta langtum hærri vextir en í helstu viðskiptalöndum Íslendinga.
Þessi samanburður segir þó ekki alla söguna. Eins og kunnugt er eru íslensk fyrirtæki stórum skuldsettari en almennt gerist í viðskiptalöndum okkar. Háir vextir eru því íslenskum fyrirtækjum yfirleitt langtum þyngri byrði en þeim erlendu. Auk þess eru skuldir fyrirtækja hér á landi yfirleitt til mjög skamms tíma og afborganir því þungar.
Þessar staðreyndir koma glöggt fram í samanburði á afkomu íslenskra fyrirtækja undanfarin ár. Lækkun vaxta árið 1989 réð úrslitum í endurreisn atvinnulífsins.
Samkvæmt greinargerð Þjóðhagsstofnunar frá 1. nóvember 1989 um hlutfall vaxta í þjóðartekjum og þjóðarútgjöldum var það sem hér segir:
Tafla 3.
Vaxtagjöld (af hundraði) sem:

Vaxtagjöld atvinnurekstrar.
1985
1986
1987
1988
Vaxtagjöld (af hundraði) sem:
hlutfall af veltu
1
,3
2
,7
2
,3
3
,7
hlutfall af vergum rekstrarafgangi
11
,8
23
,4
24
,7
42
,4
hlutfall af vergum þáttatekjum
4
,3
8
,7
6
,9
11
,0
Þess ber að geta að hér eru aðeins reiknaðir raunvextir. Verðbótaþáttur fjármagnskostnaðar íþyngir að sjálfsögðu ekki síður atvinnuvegum, sérstaklega þegar honum er ekki mætt með hækkun á söluverði framleiðslunnar.
Hvað sem því líður er ljóst að vaxtabyrði atvinnuveganna nálægt því þrefaldaðist frá 1985 til 1988. Árið 1988 voru atvinnuvegirnir að stöðvast ekki síst vegna fjármagnskostnaðar.
Meðalvextir nú eru hærri en þeir voru 1988, eins og fram kemur í töflum 1 og 2, og þótt verðbólga sé nú minni en 1988 er vaxtabyrðin enn afar mikil. Þjóðhagsstofnun áætlar jafnframt að raunvaxtagreiðslur atvinnuveganna hafi árið 1988 numið nálægt 16,5–17 milljörðum kr. Samkvæmt upplýsingum Þjóðhagsstofnunar jafngildir 1 af hundraði lækkun allra vaxta um 2,5 milljarða kr. lækkun útgjalda atvinnurekstrar í landinu miðað við verðlag og veltu á þessu ári, en 1 af hundraði lækkun vaxta af innlendum lánum u.þ.b. 1,5 milljarða kr. lækkun. Lækkun vaxta mun því gera atvinnuvegunum kleift að verða við réttmætum kröfum um kjarabætur fyrir þá sem lægri hafa launin.
Samkvæmt fyrrnefndri greinargerð Þjóðhagsstofnunar námu raunvaxtagreiðslur einstaklinga árið 1988 um 5,7 milljörðum kr. Fyrir heimilin er lækkun vaxta því ein besta kjarabótin. Lækkun vaxta er jafnframt forsenda nýrrar þjóðarsáttar.
Tilgangur löggjafans með orðalagi 9. gr. var augljóslega sá að tryggja að vextir hér á landi yrðu ekki hærri en í helstu viðskiptalöndum Íslendinga. Þetta hefur brugðist með svo alvarlegum afleiðingum að óhjákvæmilegt er að bregðast við því.
Í þessu frumvarpi er sú leið valin að breyta til bráðabirgða 9. gr. laga um Seðlabanka Íslands úr heimild til að ákveða hámark vaxta í skyldu. Með tilliti til samdráttar í hagkerfinu árið 1992 og þess að gert er ráð fyrir að erlendir fjármagnsmarkaðir opnist árið 1993 þykir hins vegar ekki nauðsynlegt að hafa umrædda skyldu nema árið 1992. Að sjálfsögðu er jafnframt nauðsynlegt að ávöxtun hjá öðrum peningastofnunum lækki til samræmis við vexti viðskiptabankanna. Er Seðlabankanum ætlað að tryggja það. Loks er lagt til að Seðlabankinn geri tillögu til ríkisstjórnar um hámark vaxta af ríkistryggðum skuldabréfum og um peningamálastefnu.
Þótt ætla megi að ríkisstjórnin lækki vexti til samræmis og dragi úr útgáfu annarra ríkistryggðra skuldabréfa, t.d. húsbréfa, til að draga úr þrýstingi á peningamarkaðinn, þykir rétt, til að stuðla að samræmi, að Seðlabankinn geri tillögur þar að lútandi.