Ferill 172. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 172 . mál.
187. Frumvarp til laga
um breyting á lögum um eftirlaun til aldraðra, nr. 2 14. febrúar 1985, sbr. lög nr. 130/1989.
(Lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991.)
1. gr.
12. gr. laganna orðist svo:
Eftirlaun skv. I. og II. kafla skiptast í ellilífeyri, örorkulífeyri og makalífeyri.
Fjárhæð ellilífeyris í hverjum mánuði er hundraðshluti af grundvallarlaunum eins og þau eru í byrjun hvers mánaðar og nemur hundraðshluti þessi samanlögðum stigafjölda sem hlutaðeigandi hefur áunnið sér skv. 11. gr., margfölduðum með 1,8. Aldrei skal þó reiknað með færri stigum en 5. Til frádráttar ofangreindum stigafjölda skulu koma þau stig sem maðurinn hefur áunnið sér með greiðslum iðgjalda til lífeyrissjóðs, reiknuðum á sama hátt og segir í 2. mgr. 11. gr.
Fjárhæð örorkulífeyris, miðað við 100% örorku, reiknast á sama hátt og ellilífeyrir með þeirri breytingu að auk áunninna stiga skal reikna þau stig sem ætla má að öryrkinn hefði áunnið sér fram til 70 ára aldurs, miðað við meðaltal stiga þrjú síðustu almanaksárin áður en hann varð öryrki. Sé orkutap minna en 100% greiðist örorkulífeyrir í hlutfalli við orkutapið. Örorkulífeyrir fellur niður við 70 ára aldur. Reiknast þá ellilífeyrir í samræmi við þann stigafjölda sem örorkulífeyrir miðast við.
Fjárhæð makalífeyris í hverjum mánuði er hundraðshluti af grundvallarlaunum eins og þau eru í byrjun hvers mánaðar og nemur hundraðshluti þessi samanlögðum stigafjölda sem hinum látna var reiknaður að viðbættum 5 stigum. Falli maður frá áður en hann nær 70 ára aldri skal auk áunnina stiga reikna þau stig sem ætla má að hann hefði áunnið sér fram til 70 ára aldurs, miðað við meðaltal stiga þrjú síðustu almanaksárin áður en hann féll frá. Til frádráttar ofangreindum stigafjölda skulu koma þau stig sem maðurinn hefur áunnið sér með greiðslum iðgjalda til lífeyrissjóðs, reiknuðum á sama hátt og segir í 2. mgr. 11. gr.
Verði það þriggja ára meðaltal stiga, sem um ræðir í 3. og 4. mgr., talið óhagstætt vegna sjúkdómsforfalla eða atvinnuleysis er heimilt að leggja til grundvallar meðaltal stiga fleiri ár aftur í tímann og sleppa úr meðaltalinu því almanaksári sem lakast er.
Maður getur notið samtímis makalífeyris og elli- eða örorkulífeyris samkvæmt lögum þessum, enda sé heildarfjárhæð eftirlauna eigi hærri en sem svarar fjárhæð ellilífeyris fyrir 20 áunnin stig.
Þrátt fyrir ákvæði 2. og 4. mgr. er umsjónarnefnd eftirlauna heimilt að ákveða að í sérstökum tilvikum skuli stig, sem eftirlaunaþegi hefur áunnið sér með greiðslum iðgjalds til lífeyrissjóðs, ekki dregin frá heildarstigafjölda hans eða frádráttur þeirra takmarkaður. Með sérstökum tilvikum er átt við að lífeyrissjóður sá, sem veitti iðgjaldi viðtöku, sé gjaldþrota eða gjaldþol hans svo rýrt að hann hafi gripið til skerðingar á lífeyrisgreiðslum til sjóðfélaga.
2. gr.
1. málsl. 14. gr. laganna orðist svo: Greiðslur eftirlauna úr ríkissjóði eða öðrum opinberum sjóðum koma til frádráttar greiðslum skv. 12. gr.
3. gr.
16. gr. laganna orðist svo:
Umsjónarnefnd eftirlauna úrskurðar eftirlaun samkvæmt lögum þessum. Hlutaðeigandi lífeyrissjóðir annast greiðslu eftirlauna skv. I. kafla, en umsjónarnefnd eftirlauna skv. II. kafla.
Eftirlaun skulu ekki greidd lengra aftur en tvö ár, reiknuð frá lokum næsta mánaðar áður en umsókn barst umsjónarnefnd eftirlauna.
4. gr.
4. mgr. 17. gr. laganna orðist svo:
Kostnaði við störf nefndarinnar skal skipt á kostnaðaraðila í hlutfalli við útgjöld til greiðslu eftirlauna.
5. gr.
Í stað „samkvæmt 14. gr.“ í 2. mgr. 18. gr. laganna komi: skv. 12. gr.
6. gr.
19. gr. laganna orðist svo:
Tryggingastofnun ríkisins innir af hendi greiðslur til lífeyrissjóða og annarra aðila samkvæmt úthlutun og úrskurðum umsjónarnefndar eftirlauna, færir þau á viðskiptareikning nefndarinnar hjá Atvinnuleysistryggingasjóði og krefur ríkissjóð og Jöfnunarsjóð sveitarfélaga um útgjaldahluta þeirra.
7. gr.
20. gr. laganna orðist svo:
Eftirlaunagreiðslur samkvæmt lögum þessum falla niður eigi síðar en 1. janúar 1997.
8. gr.
Í stað IV. og V. kafla laganna, 21.–26. gr., komi nýr kafli, IV. KAFLI, Fjárhagsákvæði:
a. (21. gr.)
Kostnaður af eftirlaunum skv. I. kafla greiðist að 3 / 4 hlutum úr Atvinnuleysistryggingasjóði og að 1 / 4 hluta úr ríkissjóði.
b. (22. gr.)
Kostnaður af eftirlaunum skv. II. kafla greiðist að hálfu úr ríkissjóði og að 1 / 4 hluta af Atvinnuleysistryggingasjóði og Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hvorum um sig.
c. (23. gr.)
Þeim eftirlaunaþegum, sem njóta réttar skv. I. kafla laga þessara, skal greidd viðbót sem nemur þremur stigum umfram þann stigafjölda sem önnur ákvæði þessara laga kveða á um. Viðbót þessi skal greidd úr Atvinnuleysistryggingasjóði.
Viðbót samkvæmt þessari grein skerðir ekki þann rétt sem kveðið er á um í 6. mgr. 12. gr.
Þegar um er að ræða rétt skv. 13. gr. laga þessara skal veita viðbót samkvæmt þessari grein í hlutfalli við þann rétt sem reiknaður er skv. I. kafla laganna.
9. gr.
27. gr. laganna verði 24. gr. svohljóðandi:
Lög þessi gilda frá 1. janúar 1992.
Þegar lög þessi hafa hlotið staðfestingu skal fella meginmál þeirra inn í lög um eftirlaun til aldraða, nr. 2 14. febrúar 1985, með síðari breytingum, og gefa þau út svo breytt.
Ákvæði til bráðabirgða
.Við endanlegt uppgjör á framlagi lífeyrissjóða til greiðslu sérstakrar uppbótar skv. I. kafla og greiðslur eftirlauna skv. II. kafla fyrir árið 1991 skal farið eftir áður gildandi reglum, sbr. lög nr. 2/1985 og 130/1989.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Árið 1979 voru sett lög um eftirlaun til aldraðra, nr. 97 24. desember 1979. Við setningu laganna var gert ráð fyrir að eftirlaunagreiðslur samkvæmt þeim féllu niður í árslok 1984. Þegar þar að kom þótti ekki koma til greina að eftirlaunagreiðslur þessar féllu niður án frekari ráðstafana af hálfu stjórnvalda. Ákvæði laganna um eftirlaunagreiðslur voru því framlengd til 1. janúar 1990 með lögum nr. 117/1984 sem síðan voru felld inn í meginmál laga nr. 97/1979 og gefin út sem lög nr. 2/1985. Þegar að því dró að eftirlaunagreiðslur skyldu falla niður frá og með ársbyrjun 1990 var hið sama uppi á teningnum og áður. Lífeyrisgreiðslurnar mættu ekki falla niður þar sem þær skipta miklu um fjárhag og afkomu þess fólks sem nýtur þeirra. Af þessum sökum gaf ríkisstjórnin í tengslum við lausn kjarasamninga í apríl 1989 fyrirheit um að hún mundi beita sér fyrir framlengingu laganna um eftirlaun til aldraðra. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið fól umsjónarnefnd eftirlauna að kanna þetta mál.
Í greinargerð nefndarinnar frá 9. júní 1989 kom fram að hún teldi einkum þrjá kosti koma til greina um framlengingu laganna. Í fyrsta lagi að framlengja enn um sinn gildandi lög í meginatriðum óbreytt að öðru leyti en snertir það iðgjaldshlutfall sem lífeyrissjóðir greiða til þessa lífeyriskerfis. Í öðru lagi að framlengja greiðslur með yfirtöku hins opinbera á þeim. Í þriðja lagi að framlengja greiðslur samkvæmt lögunum en breyta kostnaðarskiptingu milli lífeyrissjóða annars vegar og hins opinbera hins vegar. Umsjónarnefndin taldi síðasta kostinn álitlegastan og lagði síðar fram formlegar tillögur þar að lútandi.
Niðurstaða ríkisstjórnarinnar var sú að framlengja bæri lögin næstu tvö árin, þ.e. 1990 og 1991, með þeim hætti sem gert er ráð fyrir í þeim kosti sem fyrstur er nefndur hér á undan, þ.e. að lögin héldust í meginatriðum óbreytt en að iðgjaldshlutfall það, sem lífeyrissjóðir greiddu til kerfisins, lækkaði. Í því skyni var lagt fram frumvarp þar að lútandi sem var samþykkt og varð að lögum nr. 130/1989. Í greinargerð frumvarpsins var því lýst yfir að á þessu tveggja ára tímabili yrðu lögin tekin til endurskoðunar í tengslum við heildarendurskoðun málefna lífeyrissjóða og með hliðsjón af þeim tillögum umsjónarnefndar sem áður var getið. Það fæli í sér að lífeyrissjóðir greiddu verðtryggð réttindi eftir reglugerðum sínum og í samræmi við iðgjaldsgreiðslutíma, en hið opinbera greiddi það sem vantaði á full réttindi samkvæmt gildandi lögum. Með þeirri tveggja ára framlengingu og breytingu á því iðgjaldshlutfalli, sem lífeyrissjóðum væri skylt að greiða til þessa eftirlaunakerfis og gert var ráð fyrir í frumvarpinu, gæfist bæði ráðrúm til að kanna þessi lög í tengslum við mótun framtíðarstefnu í málefnum lífeyrissjóða og jafnframt fengju núverandi kostnaðaraðilar tóm til aðlögunar að breyttri kostnaðarskiptingu. Heppilegra þætti að framlög sjóða verkalýðsfélaga til greiðslu verðtryggingar skv. I. kafla laganna og framlög annarra sjóða til greiðslu eftirlauna skv. II. kafla væru lækkuð í áföngum á tveimur árum en að þau væru felld niður þegar í stað eins og tillögur umsjónarnefndar gerðu ráð fyrir.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hefur á ný falið umsjónarnefnd eftirlauna að undirbúa frumvarp í samræmi við tillögur hennar frá árinu 1989 og þá stefnu sem mörkuð var í frumvarpi ríkisstjórnarinnar það ár. Hefur nefndin samið frumvarp það sem hér er flutt.
Hér á eftir er gerð grein fyrir þeim eftirlaunum sem hér um ræðir. Fjallað er um aðdraganda laganna, eftirlaunin sjálf, fjölda eftirlaunaþega og kostnað af þessu eftirlaunakerfi, en síðan um þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpi þessu.
Aðdragandi og efni laganna um eftirlaun til aldraðra.
Lögin um eftirlaun til aldraðra, nr. 97/1979, leystu af hólmi lög um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum, nr. 63/1971, en upphafleg lög um þetta efni, nr. 18/1970, voru sett í framhaldi af kjarasamningum 1969 og stofnun hinna svonefndu almennu lífeyrissjóða verkalýðsfélaga í ársbyrjun 1970. Tilgangurinn með lögunum var sá að veita eldri félögum verkalýðsfélaganna réttindi umfram það sem iðgjaldagreiðslutími gat gefið tilefni til þar sem lítið var eftir af starfsævi þeirra eða henni jafnvel lokið. Samkvæmt fyrirheiti ríkisstjórnarinnar við samningana 1969 skyldu útgjöld vegna þessara viðbótarréttinda næstu 15 árin borin af Atvinnuleysistryggingasjóði að 3 / 4 og ríkissjóði að 1 / 4 , en síðan tækju hlutaðeigandi lífeyrissjóðir við, enda yrði þá farið að draga verulega úr útgjöldum vegna þessara ráðstafana. Höfuðástæðan fyrir því að sett voru lög um þetta efni í stað bráðabirgðaákvæða í reglugerðum lífeyrissjóðanna var fjárhagsgrundvöllurinn og því var gert ráð fyrir að lögin féllu úr gildi í árslok 1984.
Réttindi samkvæmt lögunum um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum voru takmörkuð við verkalýðsfélög í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Var sú takmörkun í samræmi við áðurnefndan fjárhagsgrundvöll þar sem Atvinnuleysistryggingasjóður bar 3 / 4 hluta útgjaldanna. Það var enn fremur skilyrði að hlutaðeigandi verkalýðsfélag hefði komið á hjá sér skylduaðild að lífeyrissjóði, þ.e. að yngri mönnum væru tryggð eigi lakari réttindi en þau sem lögin veittu hinum eldri. Réttindi vegna tíma eftir að skylduaðild var komið á, yfirleitt frá ársbyrjun 1970, fóru eftir iðgjaldagreiðslum, en til þess tíma var að ákveðnu marki miðað við launatekjur sem gjaldskyldar hefðu talist ef hlutaðeigandi lífeyrissjóðir hefðu verið starfandi.
Samkvæmt ákvæðum laganna frá 1971 breyttust lífeyrisgreiðslur árlega sem nam breytingu á meðallaunum næstliðinna fimm ára og lífeyrisgreiðslurnar voru því aðeins verðtryggðar að mjög takmörkuðu leyti. Eftir því sem verðbólga færðist í aukana fyrir miðjan áttunda áratuginn fór því hlutfall lífeyris samkvæmt lögunum og launa hríðlækkandi. Úr þessu var bætt til bráðabirgða með samkomulagi samtaka launþega og vinnuveitenda í febrúar 1976 þess efnis að lífeyrir samkvæmt lögunum yrði verðtryggður þannig að lífeyrissjóðir á samningssviði þessara aðila kostuðu sameiginlega þá hækkun lífeyris sem af því hlytist að lífeyririnn breyttist jafnaðarlega til samræmis við launahækkanir.
Verðtryggingarreglurnar frá 1976 hafa haft í för með sér aukna verðtryggingu greiðslna úr lífeyrissjóðum langt út fyrir þann hóp sem rétt á samkvæmt lögum um eftirlaun til aldraðra eða II. kafla laga um Lífeyrissjóð bænda. Munu nú allir þeir lífeyrissjóðir, sem ekki er beinlínis skylt að láta lífeyrisfjárhæðir fylgja breytingum á launum eða kauptöxtum, greiða uppbætur í samræmi við nefnt samkomulag með þeim breytingum sem síðan hafa verið á því gerðar.
Í tengslum við gerð kjarasamninga og við endurnýjun lífeyrissamkomulags aðila vinnumarkaðarins í júní 1977 gaf ríkisstjórnin m.a. fyrirheit um að samdar skyldu tillögur, sem tryggðu öllum landsmönnum svipaðan rétt og lögin um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum ákveða félögum í stéttarfélögum fram til þess að nýskipan lífeyriskerfis tæki gildi. Á grundvelli þessarar yfirlýsingar var undirbúið frumvarp til laga um eftirlaun til aldraðra sem síðar varð að lögum nr. 97/1979.
Lögin um eftirlaun til aldraðra skiptast í sex kafla. Í I. kafla eru ákvæði um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum sem eru efnislega hin sömu og voru í lögunum nr. 63/1971. Í II. kafla er kveðið á um almenn eftirlaun til aldraðra, þ.e. um réttindi sem hvorki falla undir I. kafla laganna né II. kafla laga um Lífeyrissjóð bænda. Með ákvæðum II. kafla voru þeim mönnum, sem ekki hafa verið félagar í stéttarfélögum sem talin eru til verkalýðsfélaga í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar, tryggð nokkurn veginn sömu réttindi og félögum í stéttarfélögum og eftirlaunarétturinn þannig gerður almennur. Í III. kafla eru svo ýmis sameiginleg ákvæði um bótafjárhæðir, tengsl milli I. og II. kafla laganna og II. kafla laga um Lífeyrissjóð bænda, svo og um framkvæmd. Í IV. kafla laganna eru ákvæði um uppbót á lífeyri, þ.e. þá verðtryggingu lífeyris sem fyrst var ákveðin með lífeyrissamkomulagi aðila vinnumarkaðarins í febrúar 1976. Nær verðtryggingin jafnt til lífeyris skv. I. og II. kafla laganna. Í V. kafla eru fjárhagsákvæði og loks eru gildistökuákvæði í VI. kafla.
Í tengslum við gerð kjarasamninga í árslok 1980 var samið um sérstök viðbótarréttindi til handa eftirlaunaþegum skv. I. kafla og var efni þess samkomulags fellt inn í lögin sem 26. gr. með lögum nr. 52/1981. Í þessu felst að frá og með desember 1980 skulu rétthafar skv. I. kafla fá viðbót sem nemur þremur stigum umfram þau réttindi sem lögin veita að öðru leyti. Viðbótin tekur bæði til grunnlífeyris skv. I. kafla og uppbótar og er kostnaður borinn af Atvinnuleysistryggingasjóði.
Ákvæði laganna um eftirlaun.
Eftirlaunin, sem kveðið er á um í lögunum, skiptast í grófum dráttum í þrjá staði: a) eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum (grunnlífeyri) ásamt greiðslu uppbótar (verðtryggingar) á þau og sérstakri greiðslu þriggja stiga uppbótar á þessi fyrrnefndu eftirlaun, b) almenn eftirlaun til aldraðra sem ekki hafa átt aðild að stéttarfélögum og loks c) hliðstæðar eftirlaunagreiðslur úr Lífeyrissjóði bænda.
Sameiginleg skilyrði eftirlaunaréttar eru þau að eftirlaunaþegar séu fæddir 1914 og fyrr, hafi náð 70 ára aldri og látið af störfum eða náð 75 ára aldri án tillits til hvort þeir hafa látið af störfum, eigi að baki a.m.k. 10 ára réttindatíma og hafi hvert þessara ára áunnið sér a. m. k. 1 / 25 úr stigi samkvæmt nánari skilgreiningu. Þá gilda og sömu reglur um tegundir lífeyris, ákvörðun hans og útreikning. Lífeyristegundir eru ellilífeyrir og makalífeyrir (lögin kveða raunar einnig á um örorkulífeyri en um hann er ekki lengur að ræða þar sem örorkulífeyrisþegar hafa nú allir náð ellilífeyrisaldri). Á hinn bóginn gilda mismunandi reglur um fjármögnun lífeyrisgreiðslna. Að öðru leyti má gera nánari grein fyrir eftirlaununum sem hér segir:
Eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum skv. I. kafla laganna.
Grunnlífeyrir. Með grunnlífeyri er átt við þann lífeyri sem lögin kváðu á um í upp-
hafi og miðast við reglugerðarákvæði lífeyrissjóða verkalýðsfélaganna sem stofnaðir voru eftir kjarasamninga á árinu 1969. Fjárhæð þessa grunnlífeyris á hverju almanaksári ákveðst sem hlutfall af meðaltali grundvallarlauna undanfarandi fimm almanaksár. Þessi grunnlífeyrir er kostaður af ríkissjóði að 1 / 4 og af Atvinnuleysistryggingasjóði að 3 / 4 .
Uppbót á grunnlífeyri skv. I. kafla laganna er greidd skv. 21. gr. laganna af lífeyrissjóðum sem aðild eiga að sérstöku samkomulagi lífeyrissjóða á samningssviði ASÍ, FFSÍ, VSÍ og VMS. Uppbót þessi felst í því að í stað þess að lífeyrisréttur miðist við fimm ára meðaltal miðast hann við grundvallarlaun eins og þau eru í byrjun hvers mánaðar. Lífeyririnn fylgir þannig breytingum launa. Greiðslur þessarar uppbótar eru fjármagnaðar með þeim hætti að hver lífeyrissjóður, sem aðild á að samkomulaginu, leggur fram tiltekið hlutfall af iðgjaldstekjum í sameiginlegan sjóð. Þessum sjóði er skipt milli lífeyrissjóðanna í hlutfalli við byrði þeirra af uppbótargreiðslum, en það sem á vantar að þetta dugi greiða sjóðirnir sjálfir vegna eigin sjóðfélaga. Hlutfall það af iðgjaldstekjum sem rann til hins sameiginlega sjóðs var upphaflega 5%, en hefur síðan verið lækkað smám saman og var 2% árið 1990 og 1% árið 1991.
Greiðsla þriggja stiga uppbótar á rætur að rekja til kjarasamninga á árinu 1980. Þessi uppbót rennur eingöngu til þeirra sem eiga lífeyrisrétt skv. I. kafla laganna. Kostnaður er greiddur af Atvinnuleysistryggingasjóði.
Almenn eftirlaun skv. II. kafla laganna.
Hér er um að ræða hliðstæðar greiðslur til aldraðra sem ekki eiga aðild að stéttarfélögum og kveðið er á um í I. kafla laganna. Segja má að einkum þrennt skilji á milli lífeyrisþega skv. I. og II. kafla. Í fyrsta lagi eiga þeir sem njóta lífeyris skv. II. kafla yfirleitt ekki aðild að lífeyrissjóði ólíkt því sem gerist um lífeyrisþega skv. I. kafla. Í öðru lagi njóta lífeyrisþegar skv. II. kafla ekki þriggja stiga uppbótar á lífeyri eins og lífeyrisþegar skv. I. kafla. Í þriðja lagi er greiðsla grunnlífeyris og uppbótar á hann (verðtryggingar) til lífeyrisþega skv. II. kafla, fjármögnuð með allt öðrum hætti en greiðslur til lífeyrisþega skv. I. kafla laganna. Greiðslur skv. II. kafla eru í einu lagi kostaðar sem hér segir: a. Lífeyrissjóðir, sem ekki eiga aðild að hinu sérstaka samkomulagi um greiðslu uppbótar á lífeyri skv. 21. gr., leggja fram tiltekið hlutfall af iðgjaldstekjum sínum til þessara greiðslna. Þetta hlutfall var í upphafi 5% en hefur síðan lækkað á sama hátt og hlutfall iðgjaldstekna „samkomulagssjóða“ til greiðslu á uppbót á lífeyri skv. I. kafla og er 1% á árinu 1991. b. Það sem á vantar að greiðslur lífeyrissjóða skv. a-lið hrökkvi til skiptist þannig að ríkissjóður ber 40%, en Jöfnunarsjóður sveitarfélaga og Atvinnuleysistryggingasjóður 30% hvor.
Eftirlaun til aldraðra bænda.
Samkvæmt lögum um Lífeyrissjóð bænda njóta aldraðir bændur, sem uppfylla sömu skilyrði og lífeyrisþegar skv. I. og II. kafla laga um eftirlaun til aldraðra, sams konar eftirlaunaréttar. Kostnaður af þessum greiðslum er borinn þannig að Lífeyrissjóður bænda ber allan kostnað af greiðslum grunnlífeyris sem miðast við meðaltal grundvallarlauna næstliðin fimm ár. Kostnaður af greiðslu uppbótar á þennan lífeyri er hins vegar borinn með sama hætti og greiðslur skv. II. kafla laga um eftirlaun til aldraðra, þ.e. af iðgjaldsframlagi lífeyrissjóða, en að öðru leyti af ríkissjóði, 40%, og Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og Atvinnuleysistryggingasjóði, 30% hvor.
Kostnaður af eftirlaunagreiðslum.
Kostnaður af greiðslu eftirlauna samkvæmt lögum um eftirlaun til aldraðra og lögum um Lífeyrissjóð bænda kemur fram í meðfylgjandi töflu.
Samkomulagssjóðirnir svonefndu báru um fjórðung heildarkostnaðarins 1990 en bera um fimmtung hans samkvæmt áætlun 1991. Þessi kostnaður leggst hins vegar mjög misjafnt á sjóðina. Tveir sjóðir skera sig úr með há nettóframlög í krónutölu til hins sameiginlega sjóðs, þ.e. Lífeyrissjóður verslunarmanna, 31 millj. kr. 1990, 17 millj. kr. 1991 og Lífeyrissjóður sjómanna, 20 millj. kr. 1990, 12 millj. kr. 1991. Þessi framlög nema um 1% af iðgjaldstekjum árið 1991, um 2% árið 1990, og nokkrir aðrir sjóðir greiða álíka mikið nettó til kerfisins í hlutfalli við iðgjaldstekjur. Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar hefur fengið langhæstar greiðslur í krónutölu úr kerfinu, 25,5 millj. kr. 1990 og 13,4 millj. kr. 1991. Af öðrum sjóðum, sem hafa notið verulegra greiðslna, má nefna Iðju, Akureyri og Lífeyrissjóð verksmiðjufólks. Nettógreiðslur til þessara sjóða svöruðu til 8–10% af iðgjaldstekjum þeirra á árinu 1990. Nokkrir sjóðir nutu svo greiðslna á bilinu 3–5% af iðgjaldstekjum.
Skýringin á mismiklum kostnaði lífeyrissjóða af greiðslu uppbótar (verðtryggingar) á lífeyri er sú að aldursskipting sjóðfélaga er mjög mismunandi í einstökum sjóðum. Þetta er og ástæða þess að samkomulag varð milli samtaka launamanna og atvinnurekenda, sem standa að lífeyrissjóðum verkalýðsfélaganna, að kostnaðurinn af greiðslu uppbótar skyldi að hluta borinn sameiginlega af sjóðunum. Þótti sanngjarnt að þeir sjóðir, sem höfðu hagstæðasta aldursskiptingu, léttu þannig undir með hinum sem höfðu hæst hlutfall aldraðra félaga. Með þessu móti hefur kostnaðinum af þessum eftirlaunum verið jafnað niður á kynslóðirnar.
Atvinnuleysistryggingasjóður greiðir röskan helming af heildarkostnaði af lífeyrisgreiðslum samkvæmt lögunum. Hér vegur þyngst greiðsla 3 / 4 hluta grunnlífeyris skv. I. kafla laganna og hefur sjóðurinn borið þessi útgjöld allt frá árinu 1970 er lögin voru fyrst sett. Við þetta var svo aukið verulega á árinu 1980 þegar sjóðnum var gert að greiða þriggja stiga uppbót á eftirlaun lífeyrisþega skv. I. kafla laganna. Þátttaka Atvinnuleysistryggingasjóðs í greiðslum lífeyris er ekki meðal upphaflegra hlutverka hans. Þessi ráðstöfun á fjármunum hans hefur þó þótt réttlætanleg. Sjóðurinn er myndaður af iðgjöldum sem eru í reynd hluti launagreiðslna og lífeyrisgreiðslurnar falla að þeim megintilgangi sjóðsins að tryggja launamönnum framfærslueyri ef atvinna bregst. Þá skiptir og máli að atvinnuástand hefur lengst af verið gott og því hafa talsverðar eignir myndast í sjóðnum. Á hinn bóginn eru eftirlaunagreiðslurnar veruleg byrði fyrir sjóðinn eins og sést af því að á árinu 1990 varði Atvinnuleysistryggingasjóður 36% af iðgjaldstekjum sínum til lífeyrisgreiðslna.
Kostnaður af eftirlaunagreiðslum 1990 og 1991.
(Í milljónum króna.)
Repró í GUT.
Fjöldi eftirlaunaþega og réttindi þeirra.
(Miðað er við fjölda og réttindi í janúar 1991 en verðlag í október 1991.)
Repró í GUT.
Framreikningur á fjölda lífeyrisþega.
Þar sem eftirlaunagreiðslur samkvæmt lögum um eftirlaun aldraðra miðast við þá sem eru fæddir 1914 og fyrr og taka lífeyris hefst við sjötugt hafi menn látið af störfum, en annars við 75 ára aldur, er ljóst að fjöldi ellilífeyrisþega, sem fær greiðslur samkvæmt lögunum, er kominn yfir hámark sitt. Engir bætast í hópinn og eðli málsins samkvæmt fækkar ört í honum á næstu árum. Framreikningur á fjölda ellilífeyrisþega sýnir þetta glöggt. Þessi framreikningur var gerður í Hagstofu Íslands í tengslum við endurskoðun laganna 1989. Var miðað við fjöldann í ársbyrjun 1989, svo og við bestu vitneskju um dánarlíkur eftir aldri og kyni. Ekki eru slík frávik frá þessum framreikningi eða forsendum hans sl. tvö ár að ástæða hafi þótt til að endurgera hann. Fjöldi makalífeyrisþega hefur á sama hátt verið reiknaður fram. Sá framreikningur er þó óvissari þar sem nýir lífeyrisþegar munu bætast í þennan hóp á næstu árum. Reynt hefur verið að taka tillit til þessa með því að áætla hversu margir ellilífeyrisþegar, sem falla frá, láta eftir sig maka sem eiga rétt til makalífeyris. Helstu niðurstöður þessara framreikninga eru sýndar í meðfylgjandi töflum. Við athugun þeirra er rétt að hafa í huga að ætla má að tölur um makalífeyrisþega séu hér fremur ofmetnar en vanmetnar.
Áætlaður fjöldi lífeyrisþega 1. janúar ár hvert.
Tafla repró í GUT.
Áætlaður árskostnaður af lífeyri.
(Í milljónum króna á verðlagi í október 1991.)
Tafla repró í GUT.
Tilllögur þessa frumvarps.
Eins og fram kemur í inngangi þessarar greinargerðar hefur umsjónarnefnd eftirlauna fjallað um þrjá kosti um framlengingu eftirlaunagreiðslna. Hér var um að ræða: 1) að framlengja lögin í meginatriðum óbreytt, 2) að hið opinbera yfirtæki allan kostnað af eftirlaununum og loks 3) að greiðslum eftirlauna yrði fram haldið með breyttri skiptingu á kostnaði milli lífeyrissjóðanna og hins opinbera.
Fyrsti kosturinn, framlenging laganna án breytinga á kostnaðarskiptingu, þykir ekki álitlegur. Lögin áttu upphaflega að falla úr gildi í lok ársins 1984. Þátttaka samkomulagssjóðanna í greiðslu uppbótar á eftirlaun og þátttaka annarra lífeyrissjóða í greiðslum lífeyris skv. II. kafla átti þá að falla niður, en hvort tveggja nam þá 5% af iðgjaldstekjum. Í þess stað voru lögin framlengd, en með þeim breytingum að iðgjaldsframlag beggja hópa lífeyrissjóðanna lækkaði í 4% árið 1985 og 3% árin 1986–1989. Jafnframt var því heitið að hætt yrði að krefjast þessara framlaga í árslok 1989. Lögin voru þó enn framlengd um tveggja ára skeið, en iðgjaldsframlög lífeyrissjóðanna lækkuð í 2% árið 1990 og í 1% árið 1991. Þeirri framlengingu fylgdi yfirlýsing um að í þessu fælist tveggja ára aðlögun að nýjum reglum og lýkur henni í lok ársins 1991.
Annar kostur um framlengingu greiðslna samkvæmt lögunum um eftirlaun til aldraðra væri sá að hið opinbera yfirtæki allan kostnað af eftirlaununum. Hið opinbera, þ.e. ríkissjóður, Jöfnunarsjóður sveitarfélaga og Atvinnuleysistryggingasjóður, greiðir nú alls nær þrjá fjórðu hluta kostnaðarins. Tilgangurinn með slíkri yfirtöku væri að létta byrðum af lífeyrissjóðum og gera þeim betur kleift en ella að standa við eiginlegar skuldbindingar sínar. Talið er að eignir og tekjur starfandi lífeyrissjóða dugi ekki til að mæta framtíðarskuldbindingum þeirra. Hjá mörgum sjóðum skortir mikið á þetta. Ástæðan er ekki síst sú að eignir sjóðanna rýrnuðu mjög er verðbólga varð mest hér á landi, en eignirnar voru enn að mestu leyti óverðtryggðar. Nauðsynlegt er að sem fyrst verði tekið á þessu máli og mótuð samræmd stefna af hálfu hins opinbera um hvernig bregðast eigi við skerðingu lífeyrisloforða vegna eignarýrnunar lífeyrissjóða af völdum verðbólgunnar. Þar til slík stefna hefur verið mótuð þykir rétt að núverandi löggjöf um eftirlaun til aldraðra verði framlengd með kostnaðarþátttöku þeirra lífeyrissjóða sem mestan hlut eiga að máli.
Það er því þriðji kosturinn sem nefndur var hér á undan sem frumvarp þetta byggir á og er það í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá í nóvember 1989. Í frumvarpi þessu er lagt til að eftirlaunagreiðslum samkvæmt lögum um eftirlaun til aldraðra verði fram haldið með þeim hætti að eftirlaunin verði greidd samkvæmt reglugerðum lífeyrissjóða, en hið opinbera greiði það sem vantar á full réttindi samkvæmt gildandi lögum. Nánar tiltekið er hér um það að ræða að samkomulagssjóðirnir greiði eigin sjóðfélögum skv. I. kafla laganna verðtryggðan lífeyri í samræmi við iðgjaldsgreiðslutíma hvers sjóðfélaga til viðkomandi sjóðs. Hið opinbera greiði hins vegar þann hluta eftirlaunanna sem tryggja átti eftirlaunaþegunum, enda þótt þeir hefðu ekki greitt iðgjöld til lífeyrissjóðs.
Í framkvæmd yrði þessu hagað með þeim hætti að lífeyrir eftirlaunaþega skv. I. kafla yrði úrskurðaður að nýju frá og með 1. janúar 1990 á grundvelli reglugerða lífeyrissjóða þeirra. Þessi lífeyrir yrði verðtryggður af lífeyrisjóðunum á grundvelli reglugerða þeirra eða bráðabirgðaákvæða í þeim. Umsjónarnefnd eftirlauna mundi jafnframt úrskurða viðbótarlífeyri til þessa fólks þannig að það bæri hið sama úr býtum og núgildandi lög kveða á um. Þessi viðbótarlífeyrir héldist síðan óbreyttur í hlutfalli við grundvallarlaun.
Með þessu ynnist ýmislegt. Í fyrsta lagi væri komið á rökréttari kostnaðarskiptingu en nú er þar sem hver sjóður væri nú ábyrgur fyrir greiðslu eftirlauna sem svaraði til iðgjaldsgreiðslna hvers lífeyrisþega til viðkomandi sjóðs. Hið opinbera greiddi hins vegar það sem ætlunin hefur ætíð verið að færa þessu fólki af því að það var þegar svo við aldur við stofnun lífeyrissjóðanna að því gafst ekki tækifæri til að ávinna sér umtalsverð réttindi með iðgjaldsgreiðslum til sjóðanna.
Í annan stað fengist með þessu sá ávinningur að lífeyrissjóðirnir gætu gert betur við þessa skjólstæðinga sína en þeir gera nú án þess að greiðslur hins opinbera skertust. Þessi skerðing hefur sætt gagnrýni af hálfu lífeyrissjóðanna.
Í þriðja lagi yrði þetta kerfi einfaldara í sniðum og rekstri en núverandi tilhögun. Eins og nú háttar þarf á hverju ári að áætla iðgjaldstekjur lífeyrissjóðanna, framlög þeirra til hins sameiginlega sjóðs og greiðslur til þeirra úr honum. Þessa áætlun þarf svo að endurskoða í ljósi launabreytinga. Þegar ársreikningar lífeyrissjóðanna liggja fyrir þarf loks að innheimta þá og ákvarða endanleg framlög þeirra og greiðslur. Kostnaðarskiptingin er því ekki ljós fyrr en u.þ.b. hálfu ári eftir lok þess árs sem framlög og greiðslur tóku til. Væri kostnaðarskiptingunni breytt eins og hér hefur verið rakið yrði sú breyting endanleg. Verkefni umsjónarnefndar yrðu þá að úrskurða viðbótarlífeyrinn að nýju og í eitt skipti fyrir öll í upphafi, úrskurða lífeyri nýrra eftirlaunaþega, þ.e. nær eingöngu makalífeyrisþega, og breyta grundvallarlaunum þeim sem eftirlaunin miðast við.
Loks væri með þessu staðið við það fyrirheit að hætt yrði að krefja lífeyrissjóði um sérstakt framlag til að standa undir eftirlaunum annarra en eigin sjóðfélaga.
Kostnaður af eftirlaunakerfinu.
Meðfylgjandi tafla sýnir áætlaðan kostnað á árinu 1992 af eftirlaunum samkvæmt þessu frumvarpi. Til samanburðar er sýnd áætlun fyrir árið 1991 og áætlun fyrir árið 1992 miðað við að gildandi lög héldust óbreytt að öðru leyti en því að ekki er gert ráð fyrir framlagi samkomulagssjóða til sameiginlegs sjóðs til greiðslu á uppbót á eftirlaun skv. I. kafla né framlagi lífeyrissjóða til greiðslu eftirlauna skv. II. kafla. Þetta þykir gefa færi á raunhæfum samanburði þar sem það sýnist ekki fá staðist að krefjast slíkra framlaga lengur. Er þá haft í huga að þessi framlög voru með gildandi lögum lækkuð úr 3% af iðgjaldstekjum sjóðanna árið 1989 í 2% árið 1990 og 1% árið 1991. Sem fyrr segir var ætlunin að árin 1990 og 1991 yrðu aðlögunartími að breyttu fyrirkomulagi sem fælist m.a. í því að horfið yrði frá þessari gjaldtöku.
Áætlunin fyrir árið 1992 sýnir að kostnaður af eftirlaunum skv. I. kafla þessa frumvarps er talinn nema 625 millj. kr. og er niðurstaðan hin sama hvort sem miðað er við tillögur frumvarps eða gildandi lög. Eftir tillögum frumvarpsins fylgja eftirlaun breytingum launa og verða því ákvörðuð í einu lagi en ekki deilt í grunnlífeyri og uppbót eins og verið hefur. Í áætluninni kemur fram að hlutur lífeyrissjóða af útgjöldum af eftirlaunum eykst talsvert og nemur rösklega þriðjungi þeirra samanborið við u.þ.b. fimmtung í áætlun, miðað við óbreytt kerfi, og tæplega 30% á árinu 1991. Skýringin á þessu er sú að samkvæmt frumvarpinu greiða sjóðir verðtryggðan lífeyri í hlutfalli við iðgjaldsgreiðslur eftirlaunaþeganna en hið opinbera greiðir það sem vantar á full réttindi samkvæmt lögunum. Í gildandi kerfi greiða sjóðirnir hins vegar aðeins uppbótina á lífeyrinn eða sem svarar til mismunar eftirlaunanna eins og þau eru þegar þau miðast við samtímakauplag og eins og þau væru ef þau fylgdu meðalkauplagi síðustu fimm ára. Að undanförnu hefur dregið mjög úr verðbólgu og laun hafa því hækkað mun minna í krónutölu en þau gerðu yfirleitt á tímum mikillar verðbólgu. Þetta hefur leitt til þess að mjög hefur dregið saman með launum eins og þau eru í krónum á hverjum tíma og því meðaltali næstliðinna fimm ára sem grunnlífeyririnn miðast við. Byrði lífeyrissjóðanna af greiðslu uppbótar hefur því minnkað til mikilla muna. Eins og áður hefur komið fram hefur greiðsla uppbótar á eftirlaun skv. I. kafla verið að hluta borin sameiginlega af kostnaðarframlagi lífeyrissjóða. Þetta kostnaðarframlag dugði til greiðslu 50–60% af útgjöldum vegna uppbótarinnar, þ.e. verðtryggingar eftirlauna, þegar fyrst var samið um hana og svo hefur verið lengst af. Þetta hlutfall fór hins vegar í 80% árið 1988, varð 100% 1989, um 90% 1990 og verður 100% á þessu ári.
Samkvæmt kostnaðaráætluninni verða framlög Atvinnuleysistryggingasjóðs og ríkissjóðs lægri samkvæmt frumvarpinu en þau verða í ár, en þau mundu að óbreyttum lögum hækka nokkuð. Enn er skýringin sú hve mikið hefur dregið saman með samtímalaunum og meðallaunum sl. fimm ára sem veldur því að hlutur grunnlífeyris í verðtryggðum eftirlaunum hefur aukist að mun.
Eftirlaun skv. II. kafla eru í áætlun, miðað við tillögur frumvarpsins, talin kosta 113 millj. kr. árið 1992 samanborið við 124 millj. kr. við óbreytt kerfi. Þessi munur skýrist af því að í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir að úr lögunum verði felld ákvæði um greiðslu uppbótar á lífeyri bænda. Þessar greiðslur eru taldar nema 15 millj. kr. á þessu ári og 11 millj. kr. árið 1992. Að hluta eru þessi útgjöld nú borin af lífeyrissjóðum, sem ekki eru aðilar að fyrrnefndu samkomulagi aðila vinnumarkaðarins, en að hluta af ríkissjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði og Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Lífeyrismál bænda eru að verulegu leyti samningsefni stjórnvalda og samtaka bænda. Rétt þykir að hið sama gildi um þann hluta lífeyrismála sem hér um ræðir. Sýnist þá helst koma til álita að eins verði farið með eftirlaun til aldraðra bænda og aldraðra félaga í stéttarfélögum, þ.e. að Lífeyrissjóður bænda greiði verðtryggðan lífeyri í samræmi við iðgjaldsgreiðslutíma, en hið opinbera greiði það sem á vantar að réttindum samkvæmt lögum þessum sé náð.
Í heild er gert ráð fyrir að kostnaður af eftirlaunum samkvæmt þessu frumvarpi nemi 738 millj. kr. á árinu 1992. Þar af greiði Atvinnuleysistryggingasjóður 355 millj. kr., ríkissjóður 130 millj. kr., Jöfnunarsjóður sveitarfélaga 28 millj. kr. og lífeyrissjóðirnir greiði 225 millj. kr.
Samkvæmt þessu má áætla að kostnaður af eftirlaunum samkvæmt frumvarpi þessu verði sem hér segir miðað við fjölda og réttindi í ársbyrjun 1992 og kauplag í október 1991:
Tafla repró í Gut.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í 1. gr. frumvarpsins kemur fram helsta breytingin frá gildandi lögum sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Ákvæði um tegundir eftirlauna í 1. mgr. og ákvæði 5. og 6. mgr. eru þó hin sömu og í gildandi lögum. Breytingarnar, sem felast í 1. gr. frumvarpsins, eru þær annars vegar að í gildandi lögum er kveðið á um að fjárhæðir lífeyris séu hundraðshluti af meðaltali grundvallarlauna undanfarandi fimm almanaksár. Hér er því kveðið á um grunnlífeyri en síðar í lögunum er kveðið á um greiðslu uppbótar á lífeyri þannig að hann miðist við grundvallarlaun í byrjun hvers mánaðar í stað fimm ára meðaltals. Hér er lagt til að ákvörðun grunnlífeyris og ákvörðun uppbóta á laun verði sameinaðar þannig að ekki verði lengur gerður greinarmunur á grunnlífeyri og þeirri uppbót sem gera þarf til að eftirlaunin fylgi breytingum launa. Hins vegar er í lokum 2., 3. og 4. mgr. kveðið á um að frá þeirri heildarfjárhæð, sem hverjum eftirlaunaþega er ákveðin, skuli draga þann hluta sem viðkomandi hefur áunnið sér með greiðslum til lífeyrissjóðs. Í þessu felst að í engu er hróflað við greiðslum til hvers og eins en kostnaðinum af þeim er aftur á móti skipt milli hins opinbera og lífeyrissjóða með öðrum hætti en verið hefur. Eins og nú háttar greiða Atvinnuleysistryggingasjóður og ríkissjóður allan grunnlífeyri sem miðast við fyrrnefnt fimm ára meðaltal en lífeyrissjóðir greiða alla uppbót á eftirlaunin, þ.e. verðtryggingu þeirra. Í tillögum 1. gr. frumvarpsins felst að lífeyrissjóðir viðkomandi manna greiði verðtryggðan lífeyri þeirra í samræmi við þau réttindi sem þeir hafa áunnið sér í sjóðunum, en hið opinbera greiði það sem á vantar að réttindum samkvæmt lögunum sé náð. Um áhrif þessa á skiptingu kostnaðar vísast til almennra athugasemda hér að framan.
Það nýmæli er í 7. mgr. að heimilað er að vikið sé frá þeirri reglu að lífeyrissjóður standi undir þeim hluta eftirlaunanna sem eftirlaunaþeginn hefur áunnið sér með greiðslu iðgjalds til sjóðsins. Þetta á við í þeim tilvikum að sjóður er gjaldþrota eða býr við svo rýrt gjaldþol að eftirlaun til sjóðfélaga hafi verið skert. Hér er bæði verið að bregðast við stöðu sem þegar hefur komið fram og koma í veg fyrir að hætta sé á að skert gjaldþol sjóða bitni á hinum elstu meðal eftirlaunaþeganna.
Um 2. gr.
Í gildandi lögum er kveðið á um í 1. málsl. 14. gr. að greiðslur úr lífeyrissjóðum og greiðslur eftirlauna úr ríkissjóði eða öðrum opinberum sjóðum komi til frádráttar greiðslum grunnlífeyris. Það leiðir af ákvæðum 1. gr. þessa frumvarps, þar sem þegar hefur verið kveðið á um að frá heildarstigafjölda hvers manns skuli draga þau stig sem viðkomandi hefur áunnið sér með greiðslum til lífeyrissjóðs, að ákvæði í 1. málsl. 14. gr. um frádrátt greiðslna úr lífeyrissjóðum fellur niður.
Um 3. gr.
Í 16. gr. gildandi laga er kveðið á um að stjórnir hlutaðeigandi lífeyrissjóða úrskurði eftirlaun skv. I. kafla en umsjónarnefnd eftirlauna úrskurði eftirlaun skv. II. kafla. Hér er lagt til að öll eftirlaun verði úrskurðuð af umsjónarnefnd eftirlauna. Þessi tillaga byggir á því að með þessu sé tryggt að ekki verði tafir á úrskurðum og að úrskurðir verði fullsamræmdir. Í reynd ætti þessi tilhögun að vera til talsverðrar einföldunar. Af þessari tillögu leiðir að fella má niður gildandi ákvæði um sérstaka úrskurði umsjónarnefndar um skiptingu greiðslna á milli sjóða í þeim tilvikum að réttindatími er á sviði fleiri en eins lífeyrissjóðs. Á hinn bóginn er ekki gert ráð fyrir breytingu á greiðslutilhögun þannig að hlutaðeigandi lífeyrissjóðir annist greiðslu eftirlauna skv. I. kafla en umsjónarnefnd skv. II. kafla, eins og verið hefur.
Þá er í 3. gr. gert ráð fyrir að 2. mgr. 16. gr. verði óbreytt frá því sem er í 3. mgr. 16. gr. gildandi laga.
Um 4. gr.
Hér er einungis felld niður tilvísun til uppbótar á lífeyri samkvæmt gildandi lögum en hún er felld inn í eftirlaunin samkvæmt þessu frumvarpi. Í þessu felst því engin efnisbreyting.
Um 5. gr.
Sem fyrr segir í athugasemd um 2. gr. er í frumvarpi þessu gert ráð fyrir að ákvæði um frádrátt greiðslna úr lífeyrissjóðum frá eftirlaununum samkvæmt lögum þessum færist úr 14. gr. í 12. gr. Því þarf að breyta tilvísan til þessara ákvæða í 18. gr. laganna.
Um 6. gr.
Hér er sú breyting gerð á ákvæði 1. mgr. 19. gr. að Tryggingastofnun er falið að krefja Jöfnunarsjóð um útgjaldahluta hans á sama hátt og Atvinnuleysistryggingasjóð og ríkissjóð. Með þessu er verið að staðfesta gildandi framkvæmd.
Þá er hér lagt til að 2. mgr. 19. gr. falli niður, en þar er gert ráð fyrir að Tryggingastofnun annist afgreiðslu lífeyris skv. II. kafla eigi hlutaðeigandi ekki aðild að lífeyrissjóði. Á þetta hefur ekki reynt og sýnist ákvæðið óþarft.
Um 7. gr.
Verði frumvarp þetta að lögum er fátt því til fyrirstöðu að eftirlaun samkvæmt þeim verði greidd allt þar til síðasti eftirlaunaþeginn, sem á rétt samkvæmt lögunum, er allur. Í stað þess að hafa lögin ótímabundin þykir engu að síður skynsamlegra að þau komi að liðnum nokkrum árum til endurskoðunar í ljósi þeirra viðhorfa í lífeyrismálum sem þá ríkja. Hér er lagt til að eftirlaunagreiðslur falli úr gildi eftir fimm ár.
Um 8. gr.
Í 8. gr. þessa frumvarps eru ákvæði um breytingu á IV. kafla gildandi laga, Uppbót á lífeyri, og V. kafla, Fjárhagsákvæðum, 21.–26. gr. Í þessum ákvæðum felast eftirtaldar breytingar:
1. Gert er ráð fyrir að gildandi 21. gr. laganna um uppbót á lífeyri skv. I. kafla falli niður, enda er í 1. gr. þessa frumvarps lagt til að eftirlaunin verði ákvörðuð í einu lagi í stað þess að ákvarðast sem grunnlífeyrir og uppbót á laun eins og nú er. Í þessu sambandi vísast til athugasemdar við 1. gr. frumvarpsins. Þar eru einnig raktar tillögur um breytingu á kostnaðarskiptingu milli hins opinbera og lífeyrissjóða af eftirlaunum skv. I. kafla laganna. Í samræmi við þær tillögur er í 8. gr. lagt til að í 21. gr. laganna verði kveðið á um skiptingu kostnaðar af eftirlaunum skv. I. kafla milli Atvinnuleysistryggingasjóðs og ríkissjóðs. Kostnaðarhlutföllin milli þessara aðila eru hin sömu og nú.
2. Í 8. gr. er enn fremur lagt til að í 22. gr. laganna verði kveðið á um skiptingu kostnaðar af eftirlaunum skv. II. kafla laganna milli ríkissjóðs, Atvinnuleysistryggingasjóðs og Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Um þetta atriði vísast til þeirra skýringa sem fram koma í almennum athugasemdum hér á undan.
3. Í tillögum 8. gr. frumvarpsins felst enn fremur að gert er ráð fyrir að uppbót á lífeyri aldraðra bænda skv. II. kafla laga um Lífeyrissjóð bænda, nr. 50/1984, verði ekki lengur greidd sameiginlega af þeim aðilum sem nú bera kostnað af eftirlaunum skv. II. kafla laga um eftirlaun til aldraðra. Þessi tillaga er í samræmi við meginstefnu þessa frumvarps að lífeyrissjóðir annist greiðslu lífeyris í samræmi við áunnin réttindi, en hið opinbera tryggi það sem á vantar að réttindum samkvæmt lögunum sé náð. Gangi þessi tillaga eftir sýnist eðlilegt að greiðslur Lífeyrissjóðs bænda á eftirlaunum til bænda sem fæddir eru 1914 og fyrr verði með sama hætti og hér er gert ráð fyrir, bornar úr sjóðnum sjálfum í samræmi við iðgjaldsgreiðslutíma viðkomandi til sjóðsins. Í þessu sambandi verður að hafa í huga að samkvæmt gildandi lögum nýtur Lífeyrissjóður bænda í reynd meiri greiðslna af almannafé til þeirra eftirlauna sem hér um ræðir en aðrir lífeyrissjóðir.
4. Í 8. gr. frumvarpsins er loks gert ráð fyrir að núgildandi 26. gr. laganna um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs á þriggja stiga uppbót á eftirlaun skv. I. kafla haldist óbreytt sem 23. gr. laganna.
Um 9. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Þarfnast ekki skýringa.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu
á lögum um eftirlaun til aldraðra.
repró í Gut
- Neðanmálsgrein: 1
-
Grundvallarlaun eru tiltekin fjárhæð sem stigaútreikningur og ellilífeyrishlutfall miðast við. Grundvallarlaunin eru ákveðin í lögunum miðað við 1. janúar 1985 en umsjónarnefnd eftirlauna ákveður síðan breytingar þeirra í samræmi við breytingar á launum verkamanna.
Grundvallarlaunin eru 45.602 kr. á mánuði frá 1. nóvember 1989.