Ferill 179. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 179 . mál.
197. Frumvarp til laga
um þriggja ára þróunarátak í skipasmíðaiðnaði, nýsmíðum og skipaviðgerðum.
Flm.: Svavar Gestsson, Steingrímur J. Sigfússon, Jóhann Ársælsson.
1. gr.
Lög þessi kveða á um þriggja ára þróunarátak í íslenskum skipasmíðaiðnaði, nýsmíði og viðgerðum. Tilgangur laganna er að auka samkeppnishæfni íslenska skipasmíðaiðnaðarins.
2. gr.
Þrátt fyrir ákvæði laga um Fiskveiðasjóð Íslands skal frá og með árinu 1992 til ársloka 1995 aldrei veita hærra lán til smíða eða viðgerða á fiskiskipi erlendis en sem nemur 40% af verði skipsins. Hámarkslán til skipasmíði innan lands skal nema 75%.
3. gr.
Þegar skip er tekið til úreldingar á móti nýju skipi skal draga 20% frá stærð skipsins sem úrelt er ef nýja skipið er smíðað erlendis.
4. gr.
Áður en samningur er gerður um smíði eða viðgerðir á skipi erlendis skal kanna hvort um er að ræða beina eða óbeina ríkisstyrki eða niðurgreiðslur til viðkomandi skipasmíðastöðvar. Leiði könnunin það í ljós að um opinberar stuðningsaðgerðir sé að ræða getur fjármálaráðherra lagt jöfnunargjald á samningsverðið sem nemur allt að 6%.
5. gr.
Verði lagt á jöfnunargjald skv. 4. gr. skal fjármununum varið til þróunarverkefna í skipasmíðaiðnaði eftir nánari reglum sem tilgreindar verða í reglugerð.
6. gr.
Áður en gerður er samningur um nýsmíði á fiskiskipi erlendis eða samningur um meiri háttar viðgerð á skipi erlendis skal ævinlega fara fram útboð sem íslenskar skipasmíðastöðvar geta tekið þátt í samkvæmt reglum sem settar verði að tillögu stjórnar skv. 7. gr.
7. gr.
Til þess að stuðla að samstarfi þeirra aðila, sem í hlut eiga samkvæmt lögum þessum, skipar iðnaðarráðherra fimm manna þróunarstjórn sem fylgist með framkvæmd laganna. Stjórnin er skipuð einum manni frá Fiskveiðasjóði, einum manni sem tilnefndur er af sjávarútvegsráðherra, einum fulltrúa sem tilnefndur er af samtökum launafólks í greininni, einum manni sem tilnefndur er af atvinnurekendum í greininni og einum manni sem tilnefndur er af iðnaðarráðherra og er hann formaður nefndarinnar.
8. gr.
Stjórnin skv. 7. gr. beitir sér fyrir samstarfi þeirra aðila sem mestu skipta um þróun skipasmíðaiðnaðarins, bæði fulltrúa launafólks í greininni og atvinnurekenda, fulltrúa rannsóknastofnana og ráðuneyta. Stjórnin skal sérstaklega beita sér fyrir markaðssetningu á vörum og þjónustu íslenska skipasmíðaiðnaðarins.
9. gr.
Iðnaðarráðherra setur reglugerð um framkvæmd laganna.
10. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1992 og falla úr gildi 31. desember 1995.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er flutt vegna þess vanda sem blasir við íslenskum skipasmíðaiðnaði. Í ályktun aðalfundar Félags dráttarbrauta og skipasmiðja 1991 segir m.a.: „Staða íslensks skipasmíðaiðnaðar hefur aldrei verið verri en nú.“ Það er því ljóst að grípa verður til sérstakra björgunaraðgerða eigi skipasmíðar og skipaviðgerðir á Íslandi ekki að leggjast af. Nauðsynlegt er að hafa í huga að vandinn snýst ekki einungis um skipasmíðaiðnaðinn í þrengstu merkingu. Afleidd störf skipta hundruðum og þá er einnig mikilvægt að hafa í huga að skipasmíðastöðvarnar hafa verið mikilvægur verkmenntastaður fyrir skipasmiði, málmiðnaðarmenn og rafvirkja. Það hefur því augljóslega fjölþætt og alvarleg áhrif ef skipasmíðaiðnaðurinn leggst af.
Nauðsynlegt er einnig að minna á mikilvægi þess fyrir fiskveiðiþjóð umfram aðrar þjóðir að hafa góðan og öflugan skipasmíðaiðnað. Það er beinlínis mikilvægt sjálfstæðismál að greinin nái að dafna og þróast.
Hér á landi er mikil verkþekking í skipasmíðum og skipaviðgerðum. Þessi iðngrein getur því með markvissum ráðstöfunum orðið samkeppnisfær við skipasmíðar í grannlöndum okkar. Til þess að svo megi verða þarf hins vegar skýra stefnu í stað stefnuleysis undanfarinna ára.
Ástæður vandans eru að mati flutningsmanna ekki síst þær að ekki hefur verið tekið heildstætt á málefnum skipasmíðaiðnaðarins á undanförnum árum. Þess vegna hefur iðngreinin grotnað niður og stendur nú frammi fyrir því að leggjast af á næstu tveimur til fjórum missirum að mati þeirra sem starfa í skipasmíðaiðnaði hér á landi.
Í frumvarpi því, sem hér er flutt, er lagt til að gripið verði til heildaraðgerða til að koma í veg fyrir að skipasmíðaiðnaður leggist af á Íslandi. Ákveðið verði að efna til tímabundins þróunarátaks í íslenskum skipasmíðaiðnaði. Gert verði ráð fyrir að átakið standi yfir í þrjú ár. Rökin fyrir tímabundnu átaki eru m.a. þau að ríkisstyrkir hljóta að fara minnkandi á komandi árum. Þegar ríkisstyrkir og niðurgreiðslur opinberra aðila í samkeppnislöndum okkar eru felld niður verður íslenskur skipasmíðaiðnaður að fullu samkeppnisfær. Verði hins vegar ekki gripið til aðgerða af því tagi sem hér er gert ráð fyrir mun skipasmíðaiðnaður lognast út af og enginn verður til þess að taka við iðngreininni þegar ríkisstyrkjakerfi samkeppnislandanna er aflagt og eðlileg samkeppnisskilyrði hafa skapast.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í greininni er skýrður tilgangur laganna.
Um 2. gr.
Gert er ráð fyrir að Fiskveiðasjóður megi lána mest 40% út á smíði skipa erlendis en 75% mest hérlendis. Hér er komið til móts við mikilvæga kröfu skipasmíðaiðnaðarins.
Um 3. gr.
Gert er ráð fyrir að skip, sem er úrelt á móti nýsmíði erlendis, verði reiknað 20% minna en það er í raun þannig að úrelding á móti skipum, sem smíðuð eru erlendis, verði meiri en kveðið er á um í þeim úreldingarreglum sem gilda þegar skip eru smíðuð hér á landi.
Um 4. gr.
Lagt er til að fjármálaráðherra hafi heimild til að leggja á allt að 6% jöfnunartoll þegar um er að ræða ríkisstyrki til þeirra erlendu skipasmíðastöðva sem smíða eða gera við skip fyrir Íslendinga. Í Noregi eru nú í smíðum fimm skip fyrir íslenskan markað. Þau kosta 3,1 milljarð króna. Talið er að í Noregi sé um að ræða um 12% ríkisstyrki til skipasmíðastöðvanna. Með 6% jöfnunargjaldi er aðeins verið að vega upp um helming af þeim niðurgreiðslum sem eiga sér stað í Noregi.
Um 5. gr.
Gert er ráð fyrir að lagt verði á jöfnunargjald sem skal varið til sérstaks þróunar- og markaðsátaks í þágu íslensks skipasmíðaiðnaðar.
Um 6. gr.
Ein aðalkrafa skipasmíðaiðnaðarins hefur verið sú að íslenskum skipasmíðastöðvum gefist alltaf kostur á að bjóða í verk nýsmíða eða viðgerða. Á því hefur verið misbrestur. Hér er gert ráð fyrir breytingum í þeim efnum og er ætlast til þess að þróunarstjórnin fylgist sérstaklega með þessum þætti mála.
Um 7. og 8. gr.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þróunarátakið verði unnið undir forustu fimm manna stjórnar sem skipuð verði af iðnaðarráðherra. Stjórnin skal sérstaklega leitast við að sinna markaðsmálum skipasmíðaiðnaðarins, en jafnframt skal hún standa fyrir samvinnu allra þeirra aðila sem hluta eiga að máli hér á landi eftir því sem ástæður leyfa. Þá skal stjórnin vera iðnaðarráðherra til ráðuneytis um framkvæmd laganna. Einn meginvandi íslenskra fyrirtækja felst í því að hér er lagður á tiltölulega hár veltuskattur, aðstöðugjald, sem er ekki lagður á í grannlöndum okkar. Gera verður ráð fyrir að þróunarstjórnin beiti sér fyrir aðgerðum á þessu sviði þannig að opinber gjöld verði endurskoðuð.
Um 9. og 10. gr.
Greinarnar þarfnast ekki skýringa. Nánar verður fjallað um málið í framsöguræðu.