Ferill 182. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 182 . mál.
200. Frumvarp til laga
um kynningu á íslenskri menningu.
Flm.: Svavar Gestsson, Guðrún Helgadóttir.
1. gr.
Markmið laga þessara er að stuðla að öflugri og skipulegri kynningu á íslenskri menningu erlendis. Í því skyni starfar skrifstofa er nefnist Miðstöð íslenskrar menningarkynningar.
2. gr.
Meginhlutverk skrifstofunnar er að vinna að því að kynna erlendum aðilum íslenska menningu.
Verkefni skrifstofunnar eru:
3. gr.
Miðstöð íslenskrar menningarkynningar lýtur yfirumsjón menntamálaráðuneytisins.
Í stjórn skrifstofunnar eiga sæti þrír menn skipaðir af menntamálaráðherra sem hér segir: Einn samkvæmt tilnefningu Bandalags íslenskra listamanna og tveir án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður en hinn skal vera frá fyrirtækjum og stofnunum sem fást við að flytja út íslenskt menningarefni. Stjórnin er skipuð til fjögurra ára í senn. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
Í tengslum við skrifstofuna skal starfa ráðgjafarhópur skipaður fulltrúum helstu listgreina í landinu.
4. gr.
Menntamálaráðherra ræður framkvæmdastjóra skrifstofunnar til þriggja ára í senn með heimild til endurráðningar tvisvar í önnur þrjú ár. Framkvæmdastjórinn er ráðinn að fengnum tillögum stjórnar skrifstofunnar.
Framkvæmdastjóri ræður annað starfslið með samþykki stjórnar og eftir því sem fjárheimildir standa til.
5. gr.
Tekjur skrifstofunnar eru:
6. gr.
Skrifstofan skal hafa sjálfstæðan fjárhag og reikningshald. Hún skal vera undanþegin opinberum gjöldum og sköttum til ríkissjóðs og sveitarfélaga.
7. gr.
Menntamálaráðherra getur með reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd laganna.
8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Frumvarp þetta var upphaflega samið af nefnd sem skipuð var af menntamálaráðherra til þess að gera tillögur um útflutning á íslenskum menningarverðmætum hvaða nafni sem þau nefnast. Um frumvarpsdrögin náðist fullt samkomulag með þeim fulltrúum þáverandi stjórnarflokka sem falið var að gera tillögur um málið.
Frumvarpið er nú lagt fram af þingmönnum Alþýðubandalagsins í samræmi við þá stefnu flokksins sem birtist m.a. í kosningastefnuskrá hans fyrir síðustu alþingiskosningar.
Þegar frumvarpið var lagt fram í ríkisstjórn fylgdi því eftirfarandi greinargerð og athugasemdir:
Frumvarp þetta er samið af nefnd sem menntamálaráðherra skipaði í byrjun janúar 1991 og í áttu sæti Halldór Guðmundsson, tilnefndur af fjármálaráðherra, Jakob F. Magnússon, tilnefndur af utanríkisráðherra, Jón Sveinsson, tilnefndur af forsætisráðherra, og Guðrún Ágústsdóttir, tilnefnd af menntamálaráðherra.
Mikil ásókn hefur verið í kynningu á íslenskri menningu erlendis. Eftirspurn erlendis frá hefur aukist og er margföld á við það sem unnt hefur verið að anna. Ljóst er að þennan mikla áhuga á íslenskri menningu erlendis má nýta betur en gert hefur verið og árangurinn þarf að festa í sessi. Kynning íslenskrar listar erlendis ætti að vera mikilvægur liður í útflutningi landsmanna.
Að undanförnu hefur hvað eftir annað verið efnt til kynningar íslenskrar menningar erlendis með góðum árangri. Samt skortir mjög á nauðsynlega samhæfingu á þessu sviði og tilviljun ræður oft miklu um hvernig til tekst. Þess vegna er æskilegt að stofnuð verði sérstök skrifstofa sem geti eflt samstarf þeirra aðila sem koma við sögu í kynningu á íslenskri list og menningu erlendis. Hlutverk skrifstofunnar yrði með öðrum orðum það að vera samtengjandi skipulagsaðili, svara fyrirspurnum og beiðnum um íslenska menningarkynningu erlendis frá og hafa frumkvæði að kynningu íslenskrar menningar erlendis.
Lengi hafa verið til sérstök lög um Útflutningsráð, en þar er ekki sérstaklega fjallað um menningarmál. Oft hefur verið rætt um það hvort menningarmálin eigi heima í sömu stofnun. Það hefur af ýmsum ástæðum ekki þótt ráðlegt. Ástæðan er aðallega sú að þeir aðilar, sem kynna vörur sínar á vegum Útflutningsráðs, fjármagna starfsemi þess með óbeinum og beinum hætti en skrifstofa, sem kynnir íslenska menningu erlendis, hlýtur öðru fremur að fjármagnast af opinberum aðilum eðli málsins samkvæmt. Þó er í þessu frumvarpi eins og síðar kemur fram gert ráð fyrir því að skrifstofan geti safnað framlögum fyrirtækja til einstakra kynningarverkefna.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Fyrsta grein fjallar um markmið laganna sem er að stuðla að öflugri og skipulegri kynningu á íslenskri menningu erlendis með stofnun skrifstofu sem einkum beiti sér fyrir því að kynna útlendingum íslenska menningu af öllu tagi.
Um 2. gr.
Í greininni er lögð áhersla á það meginverkefni skrifstofunnar að vera samtengjandi skipulagsaðili fyrir þá sem kynna vilja íslenska menningu erlendis. Hér er skilgreint hvaða verkefni skrifstofan hefur á sínum höndum. Í 4. tölul. er einkum átt við kynningu á íslenskri menningu fyrir útlendinga hér á landi, ferðamenn, fræðimenn og aðra þá sem áhuga kunna að hafa.
Um 3. gr.
Í greininni er fjallað um stjórn skrifstofunnar. Í stjórninni eiga þessir aðilar fulltrúa:
Með skipan ráðgjafarhóps myndast tengsl við allar helstu listgreinar og þar með listamenn í landinu. Ráðgjafarhópurinn getur verið til ráðuneytis um almenna stefnumótun varðandi kynningu á íslenskri list. Í reglugerð skal tilgreina hvaða samtök listamanna tilnefna fulltrúa í ráðgjafarhópinn. En nefna má í því sambandi Rithöfundasamband Íslands, leiklistarráð, Tónskáldafélag Íslands, Félag íslenskra tónlistarmanna, Félag íslenkra hljómlistarmanna, Félag íslenskra tónskálda og textahöfunda, Arkitektafélags Íslands, Félag kvikmyndagerðarmanna og Samband íslenskra myndlistarmanna.
Um 4. gr.
Ætlast er til að stjórn miðstöðvarinnar geri tillögur um framkvæmdarstjóra hennar sem ræður starfslið að öðru leyti samkvæmt ákvörðunum á fjárlögum hverju sinni.
Um 5. gr.
Í greininni er undirstrikað að skrifstofan geti auk fjármuna á fjárlögum beitt sér fyrir því að sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklingar eða félagasamtök leggi fram fé til annarra verkefna eftir því sem þurfa þykir.
Um 6.–8. gr.
Greinarnar þarfnast ekki skýringa.